Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2010, Page 101

Frjáls verslun - 01.02.2010, Page 101
leikur Tóka munk, Eileen Atkins leikur Eleanor, móður Ríkharðs ljónshjarta, en þess má geta að búið var að ráða Vanessu Redgrave í hlutverkið en hún hætti við þegar dóttir hennar Natasha Richardson lést af slysförum í fyrra. Þá má geta þess að sænski stórleikarinn Max Von Sydow leikur föður Marian. Hrói höttur í 100 ár Fjölmargar kvikmyndir og sjónvarpsseríur hafa verið gerðar um ævintýri Hróa Hattar. Elsta útgáfan er stutt þögul kvikmynd frá 1908. Fyrsta Hollywoodstjarnan sem leikur Hróa er Douglas Fairbanks í Robin Hood (1922). Errol Flynn var næstur í The Adventures of Robin Hood (1938). Sean Connery lék Hróa í Robin and Marian (1976) og Kevin Costner í Robin Hood: Prince of Thieves (1991). Margir minna þekktir leikarar hafa leikið útlagann í gegnum tíðina með misjöfnum árangri. Undanfarin ár hefur sjónvarpið verið vettvangur fyrir Hróa hött og er skemmst að minnast bresku seríunnar Robin Hood sem hefur lifað góðu lífi frá árinu 2006 og meðal annars verið sýnd í sjónvarpi hér á landi. Ridley Scott er ekki hrifin af gömlu mynd- unum um Hróa hött. „Satt best að segja er besta kvikmyndin um Hróa hött Robin Hood: Men in Tights þar sem Mel Brooks gerði grín að þjóðsögunni.“ Í þeirri mynd, sem gerð var 1993, þótti Mel Brooks takast vel upp í háðinu þar sem sykursætur Hrói höttur var leikinn af Cary Elwes. Eftir að handritinu, þar sem fógetinn af Nott- ingham var aðalpersónan, hafði verið hent fékk Ridley Scott Brian Helgeland til að skrifa nýtt handrit. Sá skrifaði meðal annars handritið að LA Confidential (1997) sem gerði Russel Crowe að stjörnu í Hollywood. Helgeland fékk ósk- arinn fyrir það handrit og var tilnefndur fyrir handritið að Mystic River (2003). Mjög gott sýn- ishorn úr Hróa hetti hefur gert það að verkum að margir spá því að myndin verði ein vinsælasta kvikmynd sumarsins. Ridley Scott er alltaf með mörg járn í eld- inum og er jafnvirkur sem framleiðandi og leik- stjóri. Meðal þess sem er í farvatninu hjá honum er að leikstýra nýrri Alien kvikmynd, en hann leikstýrði þeirri fyrstu. Ef af verður mun sagan gerast áður en atburðirnir í Alien (1979) áttu sér stað. kvikmyndafrÉttir F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 1 0 101 Þar sem peningar aldrei sofa Wall Street, sem oliver stone leikstýrði árið 1987, hefur verið mörgum umhugs- unarefni, ekki síst þegar fór að halla undan í fjármálaheiminum. aðalpersónan, Gordon Gekko, fjárfestingarisi á Wall street, þykir eiga margar eftirlíkingar í raunveruleikanum og hin fleygu orð hans „Græðgi er af hinu góða“ þykja hafa verið einkunnarorð alltof margra sem starfa á fjármálamörkuðum. í áranna rás hefur af og til komið upp umræða um framhald, en það var ekki fyrr en fóru að koma brestir í fjármálaheiminn að oliver stone sá möguleika á framhaldi og verður Wall Street: Money Never Sleeps frumsýnd í lok apríl. michael douglas snýr aftur í hlutverki Gordons Gekko, sem nú er rúinn öllu trausti, nýsloppinn úr fangelsi og leitar að nýjum tækifærum. Helsti mót- leikari hans er shia labeouf, sem leikur ungan fjárfestingamann sem fær Gekko til samstarfs. breska nýstirnið Carey mulligan leikur dóttur Gekkos og Charlie sheen snýr aftur í hlutverki bud fox, en nú er aðeins um lítið hlutverk að ræða. Chloe Undanfarin ár hefur lítið farið fyrir einum fremsta leikstjóra kanada, atom Egoyan. Hefur hann haldið sig á heimaslóðum að mestu og er það helst Ararat (2002) sem hefur haldið nafni hans á lofti síð- asta áratuginn. nú er hann aftur á móti kominn með kvikmynd sem verður dreift víða. nefnist hún Chloe og er endurgerð franskrar sakamálamyndar, Nathalie, sem anne fontaine (Coco avant Chanel) leikstýrði. í Chloe leikur julianne moore eiginkonu sem fær unga gleðikonu, Chloe, til að draga eiginmann sinn á tálar þar sem hún er viss um að hann stundi framhjáhald. amanda seyfried, sem gerði garðinn frægan í Mama Mia, leikur Chloe og liam neeson leikur eiginmanninn. Um tíma í fyrra þurfti að stöðva tökur á myndinni eftir að eiginkona neesons, leikkonan natasha richardson, lést eftir skíðaslys. Julianne Moore í hlutverki eiginkonu sem grunar eiginmanninn um framhjáhald. Graslauf í Leaves of Grass leikur Edward norton tvíbura. annar er virðulegur háskóla- prófessor en hinn ræktar hass og býr á heimaslóðum þeirra í oklahoma. Prófessorinn fréttir að bróðir hans hafi verið myrtur og flýtir sér heim. kemur í ljós að bróðir hans er á lífi en flæktur í snöru eiturlyfjabaróns og þarfnast hjálpar bróður síns. Leaves of Grass er bæði gaman og alvara og hefur Edward norton lengi barist fyrir því að myndin yrði gerð. mótleikarar hans eru keri russell, susan sarandon og richard dreyfus. leikstjóri er tim blake nelson, betur þekktur leikari en leikstýrði á sínum tíma O, sem var ágætlega heppnuð nútímaútfærsla á othello. Michael Douglas í hlutverki Gordons Gekko í Wall Street ásamt Shia LaBeouf.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.