Frjáls verslun - 01.05.2007, Page 152
152 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
H E I Ð R Ú N J Ó N S D Ó T T I R
starfsþróunar- og samskiptasviða en auk þess hefur hún yfir-
umsjón með lögfræðimálum fyrirtækisins hér á Íslandi.
Heiðrún er í sambúð með Jóhannesi Sigurðssyni, aðstoðar-
forstjóra hjá Milestone. Þau eiga saman eina dóttur, Heiðveigu
Björgu, sem er tveggja ára. Heiðrún átti fyrir son, Jón Hall-
mar, sem er níu ára. Auk þess átti Jóhannes þrjá syni frá fyrra
hjónabandi.
Heiðrún segir að Eimskipafélag Íslands sé á skemmtilegum
tímamótum. „Það sem kom mér á óvart þegar mér var boðið
þetta starf var hve félagið hefur stækkað gífurlega á örfáum
árum, sér í lagi eftir að Baldur tók við starfi forstjóra. Hann
hefur ásamt sterkum stjórnendum og með stuðningi frá stjórn
félagsins breytt fyrirtækinu, bæði að stærð og styrkleika en þá
ekki síður í ásýnd.
Það sem ég og aðrir stjórnendur leggjum áherslu á er að
þetta er félag með langa og glæsilega sögu sem er samtvinnuð
sögu Íslendinga og hér eru okkar rætur. Við erum og verðum
alltaf fyrst og fremst íslenskt fyrirtæki. Sem dæmi um mikilvægi
sögu félagsins höfum við ákveðið að styrkja aðila í leit að flaki
Goðafoss sem var sökkt við Garðaskaga 10. nóvember 1944, og
með því fórust 43 menn, þar af 24 Íslendingar og 19 Bretar.
Landhelgisgæslan hefur leitað flaksins í nokkurn tíma en
við vinnum þetta auðvitað náið með þeim enda eru þeir okkar
bestu sérfræðingar. Vonir standa auðvitað til að flak skipsins
finnist og að okkur gefist kostur á að halda minningarathöfn
með Landhelgisgæslunni og fleiri aðilum. Auk þess erum við
að styrkja gerð heimildarmyndar um árásina á Goðafoss og
er stefnt að frumsýningu árið 2008. Þá verður saga Goðafoss
vonandi komin í örugga höfn.“
„Stjórn Versacold mælir með því
við hluthafa að þeir taki tilboði
Eimskips og gangi kaupin eftir
verður Eimskip stærsta kæli- og
frystigeymslufyrirtæki í heimi með
um 180 kæli- og frystigeymslur í
fimm heimsálfum.“
EIMSKIP
1. Fyrir nokkrum árum voru starfsmenn Eimskips um
1.000. Núna eru þeir 10.000 í 31 landi.
2. Meginstoðir félagsins í dag eru einkum tvær, skipa-
flutningar og kæli- og frystigeymslur.
3. Félagið er skráð í Kauphöll og eru hluthafar þess rétt
um 25 þúsund.
4. Félagið er einn stærsti vinnuveitandinn á Íslandi með
um 1.000 starfsmenn. Það er með skrifstofur í öllum
fjórðungum auk þess að hafa umboðsmenn á minni
stöðum.
5. Áætluð velta á þessu ári er um 120 milljarðar og mun
hún aukast enn frekar ef yfirtaka á Versacold gengur eftir.
6. Í maí sl. ákvað stjórn félagsins að selja eignir Eimskips
sem tengjast flugrekstri, þ.e. flugfélagið Atlanta og 49%
hlut í Avion Aircraft Trading.
7. Hinn 21. nóvember sl. samþykkti hluthafafundur Avion
Group að breyta nafni félagsins í Hf. Eimskipafélag
Íslands. Breytingin tók gildi þegar í stað.