Frjáls verslun - 01.05.2009, Page 22
22 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9
Sjötta árið í röð velur Frjáls verslun áhrifa-
mestu konur viðskiptalífsins. listinn er
enginn stórisannleikur. Við val á listann í
þetta skiptið var horft meira til kvenna í
bankakerfinu og stóriðju. Konur hafa öðl-
ast meiri völd í bönkunum eftir að kreppan
skall á og bankarnir urðu ríkisbankar. Kona
er bankastjóri íslandsbanka og konur skipa
stjórn nýja Kaupþings. Konur í iðnaði og
stóriðju fá meira vægi á listanum.
Frjáls verslun heldur sig við töluna 100
þannig að veljist margar konur úr einni
atvinnugrein á listann þá þrengir það stöðu
kvenna í öðrum atvinnugreinum. Við val á
listann leggjum við sem fyrr til grundvallar
að konur hafi sig í frammi og vilji hafa áhrif;
láta að sér kveða í atvinnulífinu. aðrir þættir,
sem hafðir eru til hliðsjónar, eru áhrif og
völd í skjóli fjármagns, forystuhugsun, fyrir-
mynd, athafnassemi, eldmóður og stærð
fyrirtækja sem þær stýra.
áhrif og völd í skjóli fjármagns geta
verið tvenns konar. að koma starfs
síns vegna nálægt mjög stórum og
afdrifaríkum ákvörðunum; eða að taka
mjög stórar ákvarðanir sem eigandi fjár-
magns.
texti: Jón g. Hauksson • Myndir: geir ólafsson o. fl.
Árið
2005
Árið
2006
Árið
2007
Árið
2008
Árið
2009
Konur í stjórnum 200
stærstu fyrirtækjanna
13,2% 10,8% 14,0% 16,2% 17,1%
Konur í framkvæmda-
stjórn 100 stærstu fyrir-
tækjanna
- 16% 18% 23,4% 20%
Konur sem forstjórar í
fyrirtækjum á aðallista
300 stærstu
22 25 22 19 18
HvErnig Miðar ÁFraM?
Kannanir Frjálsrar verslunar frá 2005
Áhrifamestu konurnar eftir atvinnugreinum