Frjáls verslun - 01.05.2009, Blaðsíða 28
28 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9
SMáSala
eDDa BJarnaDóTTir,
framkvæmdastjóri hjá Karli K. Karlssyni ehf.
Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis verið í kreppunni?
Fyrirtækið hóf strax að hagræða í rekstri og leita sóknarfæra í
gjörbreyttu markaðsumhverfi.
Í hvaða úrbótum er það að vinna?
Þessa dagana erum við að leita nýrra leiða í rekstrinum til að
bregðast við gríðarlegum skattahækkunum stjórnvalda svo sem á
áfengri drykkjarvöru, sem er okkar helsta söluvara.
Hefur eitthvað jákvætt komið út úr niðursveiflunni fyrir þitt
fyrirtæki?
Já, það er nú enn meiri nákvæmni, eftirfylgni og agi í öllum
rekstri, ásamt því að endurskipulagning í starfsmannahaldi,
verklýsingum og nálgun á markaðinn hefur skilað sér vel inn í fyr-
irtækið.
Ríkisvæðingin er mikil. Hvað lengi eiga ríki og bankar að
reka einkafyrirtækin sem þau taka yfir?
Þeir eiga auðvitað alls ekki að eiga þau. Þetta eru afar sérkenni-
legar aðstæður sem eru komnar upp þar sem venjuleg fyrirtæki
sem berjast í bökkum og heyja harða samkeppni við ríkisfyrirtæki
um viðskiptavini og tekjur.
Hvað viltu sjá að verði gert til að rétta atvinnulífið við?
Það er nauðsynlegt fyrir atvinnulífið að bankakerfið virki þannig
að fyrirtækin geti fjármagnað sig ásamt því að vera ekki með of
íþyngjandi álögur á fyrirtækin sem mörg hver hafa nú þegar lítið
sem ekkert til skiptanna.
Hvaða heilræði hafa reynst þér best í stjórnun?
Að vera með framúrskarandi góðan hóp af jákvæðu starfsfólki
sem sýnir mikið sjálfstæði í starfi og hikar ekki við að sýna frum-
kvæði í krefjandi aðstæðum.
Framtíðin í sex orðum?
Ný gildi munu gera samfélagið betra.
Brynja
Halldórsdóttir,
framkvæmdastjóri
Norvikur.
Hildur Petersen,
stjórnarmaður í
Pfaff og Kaffitári.
steinunn
Jónsdóttir,
stjórnarmaður í
Norvik.
iðunn
Jónsdóttir,
stjórnarmaður í
Norvik.
linda Björk gunnlaugsdóttir,
forstjóri A. Karlssonar.