Frjáls verslun - 01.05.2009, Page 37
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9 37
DR. HERDÍS ÞORGEIRSDÓTTIR,
prófessor og varaforseti Evrópusamtaka
kvenlögfræðinga (EWLA).
Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis verið í kreppunni?
Ég stend ekki í fyrirtækjarekstri um þessar mundir.
Hefur eitthvað jákvætt komið út úr niðursveiflunni?
Í kreppunni felast tækifæri til að endurskapa það kerfi sem olli
því að svona fór. Þetta er dýr lexía.
Ríkisvæðingin er mikil. Hvað lengi eiga ríki og bankar að
reka einkafyrirtækin sem þau taka yfir?
Ekki lengi en nýtt einkavæðingarferli krefst fagmennsku, gegn-
sæis og strangra, lagalegra skilyrða. Það mætti fara óhefðbundnar
leiðir og senda hlutabréf á alla landsmenn.
Hvað viltu sjá að verði gert til að rétta atvinnulífið við?
Skapa heilbrigð skilyrði með lögum og eftirliti. Forðast skatta-
hækkanir, lækka vexti og örva frumkvæði og dugnað.
Hvaða heilræði hafa reynst þér best í stjórnun?
Að hafa sýn og yfirsýn. Vera sanngjarn, lifandi og skemmtilegur.
Gefast ekki upp.
Framtíðin í sex orðum?
Endurvakning siðferðis, samkenndar og upplýstrar, borgaralegrar
þátttöku.
Herdís er stjórnarformaður Tengslanets ehf.
skipaflutningar
Heiðrún Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri þróunarsviðs Eimskips.
Anna Guðný Aradóttir,
framkvæmdastjóri markaðsmála hjá
samskipum.
Anna Guðný Aradóttir,
frkstj. markaðsmála
hjá Samskipum.
Guðrún Högnadóttir,
lektor Háskólanum
í Reykjavík.
Heiðrún Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri
þróunarsviðs Eimskips.