Frjáls verslun - 01.05.2009, Blaðsíða 42
fjárfestingafélög
Kristín Jóhannesdóttir, gaumi og stjórnarmaður í Högum.
Halla Tómasdóttir, starfandi stjórnarformaður auðar Capital.
Kristín Pétursdóttir, forstjóri auðar Capital.
Ingunn Wernersdóttir, eigandi inn-fjárfestinga.
Hrefna Ósk Sigfinnsdóttir, arev verðbréfum; stjórnarformaður áltaks og Yggdrasills.
KRISTÍN PÉTURSDÓTTIR,
forstjóri Auðar Capital.
Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis verið í kreppunni? Í hvaða
úrbótum er það að vinna?
Auður Capital var stofnað árið 2007 til að koma með aukið
jafnvægi inn í fjármálageirann sem þá hafði um nokkurt skeið
einkennst af hagsmunatengslum, áhættusækni, skammtíma-
árangri og þröngri skilgreiningu á árangri. Að okkar mati var sú
nálgun ekki líkleg til að vera árangursrík til lengri tíma litið. Okkar
markmið var að koma með annars konar nálgun þar sem óháð
staða, áhættumeðvitund, gagnsæi, langtímaárangur og víðtækari
skilgreining á árangri væru leiðarljósin. Óveðursskýin voru farin
að hrannast upp og því lögðum við alla áherslu á að fjármagna fyr-
irtækið vel og forðast lántökur.
Hefur eitthvað jákvætt komið út úr niðursveiflunni fyrir þitt
fyrirtæki?
Fólk er farið að huga betur að því hverjum það treystir fyrir pen-
ingunum sínum og mjög margir hafa komist að því að við séum
traustsins verð.
Ríkisvæðingin er mikil. Hvað lengi eiga ríki og bankar að
reka einkafyrirtækin sem þau taka yfir?
Ein versta afleiðing af hruninu væri að fólk myndi missa trúna
á einkaframkvæmd og aðhyllast þá skoðun að rekstri væri best
komið hjá ríkinu. Það er okkar skoðun að einkarekstur eigi heima
sem víðast, þrátt fyrir að ríkið væri í mörgum tilvikum kaupandi
þjónustunnar, þannig væri ríkið líka betur í stakk búið til að sinna
eftirlitshlutverki sínu.
Það er mismunandi hve lengi ríki og bankar þurfa að reka þau fyr-
irtæki sem þau taka yfir, meginreglan er sú að það ætti að vera sem
styst, en það þarf þó að vanda vel til verka við sölu og yfirtökur.
Hvað viltu sjá að verði gert til að rétta atvinnulífið við?
Það þarf að sækja um aðild að Evrópusambandinu sem allra
fyrst. Þá þarf að huga að fjölbreytni og stuðningi við nýsköpun
og sprotafyrirtæki og styrkja rekstrargrundvöll þeirra fyrirtækja
sem möguleika eiga á að standa kreppuna af sér. Umhverfið og
regluverkið verða að hvetja fólk og fyrirtæki til framkvæmda og til
að bjarga sér frekar en að letja.
Hvaða heilræði hafa reynst þér best í stjórnun?
Að byggja upp sterka liðsheild og fela samstarfsmönnum ábyrgð og
tækifæri til að spjara sig.
Framtíðin í sex orðum?
Sjálfbær, skynsamleg og björt í sátt við alþjóðasamfélagið.
Hún situr í stjórn Sambands fjármálafyrirtækja og í framkvæmdastjórn
Samtaka atvinnulífsins.
42 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9