Frjáls verslun - 01.09.2007, Page 36
36 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7
órunn Guðmundsdóttir er fædd í Reykjavík
þann 9. júlí 1957, dóttir hjónanna Guð-
mundar Ingva Sigurðssonar hæstaréttarlög-
manns og Kristínar Þorbjarnardóttur húsmóður
og prófarkalesara. Þegar Þórunn var fjögurra
ára gömul flutti fjölskyldan í Hvassaleiti þar
sem foreldrar hennar höfðu byggt raðhús og þar ólst
hún upp.
Á þessum árum var hverfið að byggjast upp og þar
bjó heill hellingur af krökkum sem gerðu allt sem börn
í dag mega ekki gera, svo sem að kveikja í sinu, leika
sér í byggingagrunnum og stillönsum og sigla á illa
smíðuðum fleytum á tjörnum. Enda segir Þórunn sjálf
það hreint ótrúlegt að hún skuli hafa lifað af barnæskuna
miðað við allt sem gekk á.
Þórunn á tvo eldri bræður þá Sigurður Guðmundsson
landlækni, fæddan 1948, og Þórð Ingva, fæddan 1954
sem starfar í utanríkisþjónustunni. Aðspurð hvort hún
hafi verið dekruð af stóru bræðrum sínum segir Þórunn
það alls ekki hafa verið svo, þau Þórður hafi slegist,
enda sjálfsagt á of líkum aldri, og Sigurður hafi þá verið
svo miklu eldri og því eins konar fjarlægð stærð. Allur
aldursmunur hafi þó horfið með árunum og þau séu öll
mestu mátar í dag.
Frá sex til átta ára aldurs gekk Þórunn í Ísaksskóla og
því næst í Hvassaleitisskóla sem var nýr hverfisskóli, hún
tók Landspróf í Ármúlaskóla og settist síðan á skólabekk
í Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1973. Þórunn
kunni ekki við sig í áfangakerfinu og ákvað því að drífa
námið af og lauk því á þremur árum. Sem unglingur
starfaði hún í unglingavinnunni, kirkjugörðunum og
við fiskvinnslu, en sumarið sem hún varð 15 ára dvaldi
hún í Englandi hjá föðursystur sinni sem þangað giftist á
stríðsárunum. Sá tími segir Þórunn hafa verið óskaplega
skemmtilegan og hafi hún reglulega heimsótt frænku
sína síðan, nú síðast í sumar til að vera í níræðisafmæli
hennar.
Heilsteyptur
gleðigjafi
texti: maría ólafsdóttir • Myndir: geir ólafsson o. fl.
NærmyNd af ÞóruNNi GuðmuNdsdóttur
n æ r m y n d a f þ ó r u n n i g u ð m u n d s d ó t t u r
Þórunn Guðmundsdóttir hæstaréttarlögmaður er einhver allra þekktasti
lögfræðingur landsins. Hún annast lögfræðistörf fyrir fjölmarga aðila
í viðskiptalífinu; hún er formaður yfirkjörstjórnar í reykjavík; hún var
verjandi tveggja endurskoðenda í Baugsmálinu og hún var lögfræðingur
Orkuveitu reykjavíkur í málinu sem svandís svavarsdóttir höfðaði um að
ógilda hluthafa- og eigendafund Orkuveitunnar frá 3. október sl., en í því
máli hefur raunar náðst sátt.
Þ