Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2005, Síða 9

Frjáls verslun - 01.09.2005, Síða 9
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5 9 því að nálgast verkefnin út frá viðurkenndri aðferðafræði: „Þessar lausnir henta jafnt opinberum stofnunum, sveitarfélögum og einka- fyrirtækjum.“ Heildarlausn - ný nálgun „Til að tryggja að allir þættir innleiðingar gangi upp þarf að skoða heildarmyndina. Þegar fyrirtæki eða stofnun leitar til okkar um lausnir þá leggjum við mikla áherslu á undirbúning- inn sem tryggja á góðan árangur þegar fram í sækir. Hluti af undirbún- ingnum er að tryggja sterka og skýra verkefnastjórn. Sé verkefnið ekki nálgast á þann hátt, er hætt við að illa fari. Eins leggjum við ríka áherslu á eftirfylgni, sem er ekki síður mikilvæg. Séu þessir tveir þættir, undirbúningur og eftirfylgni, unnir af metnaði og eftir ítrustu kröfum þá lætur árangurinn ekki á sér standa.“ Auknar vinsældir ISO 9001 Svala Rún segir kröfurnar um gæða- stjórnun sífellt að aukast: „Við erum að sjá gífurlega aukningu í að fyrirtæki og stofnanir taki upp ISO 9001, sem er alþjóðlegur staðall fyrir gæðastjórnun. Hefur orðið stökkbreyting á síðasta ári í þeim efnum, enda tvímælalaust mikill hagur fyrir fyrirtæki að vera með slíka gæðastjórnun í öllum viðskiptum og þá ekki síst í alþjóðlegum viðskiptum. Eitt sem ég legg ríka áherslu á þegar fyrirtæki er að taka upp gæðastjórnun, er að það taki einnig upp skjalastjórn og öfugt. Þetta tvennt er að okkar mati óaðskiljanlegt.“ Týnd skjöl og glötuð tækifæri „Fyrirtæki vanmeta oft gildi skjala sinna, en týnd skjöl eru glötuð tækifæri. Við erum að sjá fyrirtæki með eins konar „svarthol“, þar sem skjölin flæða inn og verða aldrei kölluð fram aftur. Þau eru einhverstaðar í bökkum á skrifborðinu, á pappír, persónulegum tölvudrifum eða í tölvupósti. Sem dæmi má nefna að ábendingar frá viðskiptavinum hverfa oft í „svarthol“, og nýtast þess vegna ekki fyrirtækjum til að bæta sig. Við hjá FOCAL Consulting förum inn í „svartholin“ og greinum skjölin. Greiningin er síðan notuð til að bæta gæðaferla og skjalastjórn og ná þannig betri tökum á innri stjórnun fyrirtækjanna.“ Svala Rún leggur áherslu á styrk FOCAL Software & Consulting: „Yfirleitt eru fyrirtæki á okkar sviði annaðhvort með hugbúnað eða ráðgjöf. Sérstaða okkar og styrkur er að við bjóðum upp á heild- arlausnir, með tengingu á milli faglegrar ráðgjafar og hugbúnaðar- kerfa.“ Hlíðasmára 14 • 201 Kópavogur Sími: 540 0900 • Netsíða: www.focal.is Fyrirspurnir: consulting@focal.is Ráðgjafar FOCAL Consulting búa yfir viða- mikilli menntun og reynslu á sínu sviði. Lögð er áhersla á að veita fyrirtækjum persónulega ráðgjöf þar sem megináhersla er lögð á skuldbindingu stjórnanda til verkefnisins, góðan undirbúning, skipulagða framkvæmd og faglega eftirfylgni. Erla Konný Óskarsdóttir og Guðrún Reynisdóttir. Einar Áskelsson. Erlingur Snær Erlingsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.