Frjáls verslun - 01.09.2005, Síða 30
30 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5
7. október
EF ÉG FER Í BAR-
DAGA ÞÁ FER ÉG
TIL AÐ VINNA
Svar Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar við spurningu sænska
viðskiptatímaritsins Veckans
Affärer um fjárfestingar Straums
í Íslandsbanka vakti mikið umtal
þennan dag þegar Morgunblaðið
vísaði í umfjöllun tímaritsins
um hann. Björgólfur Thor sagði
enga baráttu hafa átt sér stað
um völd í Íslandsbanka: „Ef við
hefðum átt í baráttu heldurðu
að við hefðum ekki unnið hana?
Þetta er eingöngu stöðutaka.
... Ef ég fer í bardaga þá fer ég
með því hugarfari að vinna,“
sagði Björgólfi Thor við Veckans
Affärer.
Björgólfur Thor er þekktur
í Svíþjóð vegna fjárfestinga
Burðaráss í fjármálafyrirtækinu
Carnegie og tryggingafélaginu
Skandia.
Veckans Affärer ræðir um
Rússlandsævintýri þremenning-
anna Björgólfs Guðmundssonar,
Björgólfs Thors og
Magnúsar Þor-
steinssonar og
að þeir hafi
verið sakaðir
um samkrull
við rúss-
nesku mafíuna. Björgólfur Thor
svarar því og segir að vissulega
hafi þeir fengið ýmis tilboð frá
mafíunni en jafnframt að þeir hafi
varað sig á að taka þeim ekki og
ráðið í sína þjónustu öryggisþjón-
ustu og að 20 vopnaðir verðir
hafi gætt verksmiðjanna.
„Þegar ég fór til Rússlands
hélt ég að ég yrði þar í hálft ár
en þau urðu níu. Þetta jafngilti
því að taka þrjár meistaragráður
og eina doktorsgráðu. Þetta var
ótrúlega góður skóli í hagfræði,
viðskiptum og félagsfræði.“
Þá segir Björgólfur um útrás
íslenskra fyrirtækja og alþjóð-
legar fjárfestingar sínar: „Ég vil
frekar vera lítill fiskur í stórri
tjörn en stór fiskur í lítilli tjörn.“
7. október
Nýir í stjórn Atorku
Örn Andrésson og Hrafn Magn-
ússon voru kjörnir í stjórn fjár-
festingarfélagsins Atorku Group
á hluthafafundi félagsins. Þeir
koma í stað þeirra Aðalsteins
Karlssonar og Lárusar Blöndal
sem sögðu sig úr stjórninni í
kjölfar þess að hafa selt hlutafé
sitt í félaginu í byrjun september-
mánaðar.
7. október
Skattbyrði
fyrirtæja 12%
Sagt var frá könnun kanadíska
rannsóknarfyrirtækisins C. D.
Howe Institute um raunveru-
lega skattbyrði á fyrirtæki í 36
löndum. Hún reynist fimmta
lægst á Íslandi. Hún er lægst
í Singapore. Næstlægst í Tyrk-
landi. Þá koma Hong Kong og
Slóvakía og í fimmta sæti er
Ísland. Svíþjóð er í sjötta sæti.
Raunveruleg skattbyrði fyrirtækja
á Íslandi er samkvæmt könnun-
inni undir 12,1%, þó tekjuskatt-
prósentan sé 18%. Þegar „raun-
veruleg skattbyrði“ er könnuð
er tekið tillit til fleiri þátta en
skattprósentunnar, eins og t.d.
afskrifta og arðgreiðslna.
7. október
Þórður hættir
hjá DHL
Þórður Hermann Kolbeinsson
hefur ákveðið að hætta sem fram-
kvæmdastjóri flutningaþjónust-
unnar DHL á Íslandi eftir að hafa
starfað fyrir DHL frá árinu 1992.
Svíinn Mikael Skogsberg, 38 ára,
tekur við sem framkvæmdastjóri,
en hann hefur verið hjá DHL sl.
14 ár.
11. október
Eignir Exista
til Hollands
Ein athyglis-
verðusta frétt
mánaðarins
var sú að
félögin Meiður
Holding S.a.r.l.
og Bakka-
bræður S.a.r.l.
voru leyst upp
eftir að stjórn
Exista ehf. ákvað að hollenskt
eignarhaldsfélag, Exista B.V.,
tæki yfir eignir Exista ehf. Þetta
hljómar auðvitað svolítið flókið
því hollenska félagið er í eigu
Exista ehf.
Engu að síður flytjast stórir
hlutir yfir til hollenska félagsins,
eins og 17,0% hluturinn í Kaup-
þingi banka hf, 21,7% hluturinn í
Flaga Group hf, 29,1% hluturinn í
Bakkavör Group hf. og 45% hlut-
urinn í Skipti ehf. sem á Símann.
Eigendur Exista ehf. eru
Bakkabræður Holding með
59%, KB banki með 19% og þá
á hópur sjö sparisjóða samtals
22% hlut.
11. október
Bílanaust kaupir
þrjú félög í Bretlandi
Það er mikill drifkraftur í kringum
Bílanaust hf. um þessar mundir.
D A G B Ó K I N
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON • MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o.fl.
Björgólfur Thor. „Ef ég fer í bardaga þá fer ég til að vinna.“
Erlendur Hjaltason,
forstjóri Exista.