Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 33
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5 33
D A G B Ó K I N
15. október
Mjólkurrisinn
heitir MS
Mjólkurrisinn sem varð til sl.
vor, þegar Mjólkursamsalan og
Mjólkurbú Flóamanna voru sam-
einuð í eitt félag, fékk loksins
nafn í mánuðinum. Fyrirtækið
mun einfaldlega heita MS. Nafnið
á sér auðvitað langa sögu á
meðal þjóðarinnar og MS-vörur
og Emmess ísinn þarf ekki að
kynna. MS, vissulega styttra
nafn en margir áttu von á.
16. október
Erfitt hjá
Magasin du Nord
Danska blaðið Berlingske
Tidende var með langt viðtal
við Jón Björnsson, nýráðinn
forstjóra Magasin du Nord þar
sem eðlilega kom fram að Jón
væri bjartsýnn á reksturinn, hvað
annað. Hins vegar kom fram að
miklir erfiðleikar hefðu verið í
rekstrinum á þessu ári og ljóst
að nýjum kaupendum hefur enn
ekki tekist að snúa dæminu við.
Samkvæmt síðasta árshlutaupp-
gjöri, sem birt var í ágúst, var
tapið á fyrri hluta ársins tvöfalt
meira en á sama tíma í fyrra.
Sölutekjur höfðu einnig dregist
saman um 8%.
17. október
Bakkavör kaupir
fyrirtæki í Bretlandi
Bakkavör Group
hefur keypt
Hitchen Foods í
Bretlandi og er
kaupverðið 4,7
milljarðar króna
(44 milljónir
punda). Hitchen
Foods framleiðir
ferskt niðurskorið
grænmeti og
salat fyrir stærstu verslunar-
keðjur Bretlands. Kaupin eru fjár-
mögnuð með láni frá Kaupþingi
banka. Afkoma Hitchen Foods
hefur verið góð undanfarin ár og
er gert ráð fyrir að EBITDA, hagn-
aður fyrir afskriftir og fjármagns-
kostnað, verði um 911 milljónir
króna á yfirstandandi ári og að
veltan verði 5,1 milljarður króna.
17. október
Svíarnir selja
hlut sinn í Össuri
Miklar breytingar
urðu í hluthafa-
hópi Össurar
þennan dag, en
þar hafa tveir
stærstu hlut-
hafarnir keppst
um undanfarna
mánuði að vera
með ráðandi hlut
í fyrirtækinu. Það
voru Danirnir sem höfðu betur
gegn Svíunum. Fjárfestingarsjóð-
urinn AB Industrivärden í Svíþjóð
seldi 19,5% af hlutafé sínu í Öss-
uri til William Demant Invest A/S
í Danmörku, Eyris Invest ehf. og
Vik Investment Holding S.a.r.l,
eignarhaldsfélags í eigu Jóns
Sigurðssonar forstjóra Össurar.
Eftir viðskiptin er William Demant
Invest A/S stærsti hluthafi Öss-
urar með 36,9% hlutafjár. Eyrir
Invest ehf. með 14,6% hlut. Þriðji
stærsti hluthafinn með óbreyttan
hlut er Mallard Holding S.a.r.l.,
eignarhaldsfélag í eigu Össurar
Kristinssonar, stofnanda Össurar,
og fjölskyldu hans. Vik Invest-
ment Holding er með 6,4% hlut.
AB Industrivärden átti fyrir söluna
23,4%. Hlutur þess núna er því
3,8%.
18. október
Jón Þórisson
til Samsonar
Jón Þórisson, fyrrverandi aðstoð-
arforstjóri Íslandsbanka, sem
Bjarni Ármannsson lét fara frá
bankanum skömmu fyrir áramót í
fyrra og sem endaði með miklum
titringi innan bankaráðsins í kjöl-
farið, hefur verið ráðinn til Sam-
sonar-samstæðunnar í sérverk-
efni í tengslum við fjárfestingar
félaganna í fjármálafyrirtækjum,
innlendum sem erlendum. Jón
er uppalinn hjá Íslandsbanka og
einn af kunnustu bankamönnum
landsins.
Guðbrandur
Sigurðsson,
forstjóri MS.
Lýður Guð-
mundsson,
forstjóri
Bakkavarar
Group.
Jón Þórisson
Jón
Sigur›sson,
forstjóri
Össurar.