Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2005, Side 37

Frjáls verslun - 01.09.2005, Side 37
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5 37 D A G B Ó K I N vöruþróun félagsins nær viðskipta- vinum þess til að geta þjónað betur mörkuðum í Bandaríkjunum og Evrópu, en starfsemin á Íslandi þótti nokkuð einangruð. 28. október Hagnaðurinn 66 milljarðar Eniga meniga - við erum að tala um peninga. Hagnaður viðskipta- bankanna þriggja, Kaupþings banka, Íslandsbanka og Lands- banka, fyrstu 9 mánuði ársins nam samtals 66 milljörðum. Allt árið í fyrra var hagnaður bank- anna þriggja tæpir 40 milljarðar króna. Hagnaður Kaupþings banka var 34,5 milljarðar króna fyrstu 9 mánuði ársins, Lands- bankans 16 milljarðar og Íslands- banka 15,4 milljarðar. 29. október Íslandsbanki: Kaupin á Sterling hagstæð Greiningardeild Íslandsbanka hefur endurreiknað svonefnt heildarkaupverð, eða EV, á kaupum FL Group á Sterling. Segir Greiningardeildin að gangi spár um hagnað fyrir afskriftir og fjármagnsliði Sterling eftir, þ.e. EBITDA, sé ljóst að kaupin á félaginu megi teljast hagfelld. „Áætluð EBITDA hjá Sterling á árinu 2006 er 345 milljónir danskra króna (DKK). Gefið er upp að kaupverðið sé 1,5 millj. DKK en geti legið á bilinu 1-2 millj. DKK, allt eftir því hvort EBITDA framlegðin verður lægri eða hærri en stefnt er að. Útreikningur Greiningar sýnir að verði framlegðin við neðri mörk verðbils þá gefi það EV/ EBITDA 6,2, en efri mörkin gefi EV/EBITDA 5,5. Gangi þetta eftir er ljóst að kaupin mega teljast hagfelld. Þó verður að líta á að verðmæti fyrirtækja ræðst af því hvers vænta má í framtíðinni en ekki bara á næsta ári,“ segir í Morgunkorni Íslandsbanka. ÞEGAR ÉG VAR að klára viðskiptafræðina í Háskóla Íslands fyrir 25 árum þá einokuðu karlar nánast alla forstjórastóla í bænum. Ekki nóg með það, líftími þeirra í starfi var langur. Það þótti t.d. ekkert óeðlilegt við að menn gegndu sama forstjórastarfinu í yfir tuttugu ár. Okkur, hinum nýútskrifuðu viðskiptafræðingum, fannst þetta ekki gott. Þetta þýddi auðvitað bara eitt: að við ættum minni möguleika á því að komast að. EKKI BÆTTI ÚR SKÁK að mjög margir þeirra sem útskrifuðust úr Viðskipta- deildinni á árunum 1972 til 1975 höfðu verið réttir menn, á réttum stöðum, á réttum tíma - og komist í feitt. Hvaða var til ráða? Það var raunar lítið annað að gera en bíta á jaxlinn, bölva í hljóði og finna sér eitthvað til dundurs. Því eins og bóndinn sagði: „Eitt- hvað verða bændur að gjöra.“ LÍFTÍMI FORSTJÓRA er að sjálfsögðu sígilt umræðuefni í hagfræðinni - sem og hreyfanleiki vinnuafls. Það er hins vegar afar sjaldgæft að líftími forstjóra sé mældur í mánuðum, eins og gerst hefur í íslensku viðskiptalífi síðustu daga. Forstjórar tveggja af sjö stærstu fyrirtækjum landsins, Þórólfur Árnason, forstjóri Icelandic Group, og Ragn- hildur Geirsdóttir, forstjóri FL Group, hafa fengið að reyna „skyndilegt brotthvarf“ eftir aðeins um fimm til sjö mánuði í starfi. Í TILVIKI ÞÓRÓLFS virðist sem nýir eigendur Icelandic Group hafi ekki viljað hafa hann sem kaftein í áhöfninni. Það voru gömlu eigendurnir sem réðu hann og það var þá þeirra að semja við hann um starfslok. Þegar hraðinn er mikill og fyrir- tæki skipta ört um eigendur getur allt gerst gagnvart forstjórum. Starfsöryggi þeirra er minnst allra. UM BROTTHVARF RAGNHILDAR Geirsdóttur er það að segja að mér finnst flestum lítast illa á það - sem og á kaupin á Sterling. Ótrúlega margir virðast ekki hafa trú á kaupunum á þessu danska lággjalda- flugfélagi fyrir um 15 milljarða. Þá hafa skýr- ingarnar á brotthvarfi Ragnhildar einhvern veginn verið rosalega hjákátlegar. „Sameig- inleg“ ákvörðun, en „hún“ ákvað að hætta, sagði nýi stjórnarformaðurinn í sjónvarpinu og var engan veginn sannfærandi. ENDA HVERNIG ÁTTI FÓLK að gleypa þau rök að Ragnhildur hefði verið alveg frábær sem framkvæmdastjóri hjá Flugleiðum og gert allt mjög vel, setið m.a. í stjórn fyrirtækisins, og verið fyrir vikið hampað sem nýjum forstjóra FL Group fyrir fimm mánuðum. En allt í einu: Hún ákvað bara að hætta. Rétt sisvona. Enginn ágrein- ingur. Svona skýringar eru alltof ódýrar. Það er betra að nefna hlutina réttum nöfnum. BROTTHVARF ÞÓRÓLFS OG RAGN- HILDAR, forstjóra, tveggja af sjö stærstu fyrirtækjum landsins, sýnir að það er ekkert tryggt lengur. Það er allra veðra von þegar skipt er ört um eigendur í fyrirtækjum. Það er „ókyrrð í lofti“ fyrr en varir. Gleymum því heldur aldrei að komi upp ágreiningur á milli eiganda og forstjóra þá segir sig sjálft hvor víkur. Það skyldi enginn efast um það. ÞÓTT VIÐ Í VIÐSKIPTADEILDINNI hefðum í den ekki verið sáttir við að for- stjórar einokuðu stólana í tuttugu til þrjátíu ár þá datt okkur auðvitað aldrei í hug að skil- greina líftíma forstjóra stærstu fyrirtækja landsins sem fjóra til fimm mánuði. En það var þá - nú gengur klukkan hraðar. Jón G. Hauksson LÍFTÍMI FORSTJÓRA 21. október Af Netinu (www.heimur.is) 16,0 Sigurjón Þ. Árnason, forstjóri Lands- bankans: 16 milljarða hagnaður. 15,4 Bjarni Ármansson, forstjóri Íslands- banka: 15,4 milljarða hagnaður. 34,5 Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings banka: 34,5 milljarða hagnaður.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.