Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 55

Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 55
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5 55 inn í allt markaðsstarf félagsins, enda séu stjórnendur orðnir sér meðvitaðir um hvaða verðmæti geti verið undir. Heildstæð mynd Í rýni á vörumerki Icelandair nálgaðist ParX - viðskiptaráðgjöf IBM málið úr mörgum áttum, að sögn Heiðar Agnesar Björnsdóttur, en hún leiðir markaðs- og rannsóknasvið fyr- irtækisins. Notast var við aðferðafræði sem nefnist „Brand Audit“ og byggir á gaumgæfi- legri skoðun fjölmargra þátta sem tengjast vörumerkinu í hugum fólks. „Í Brand Audit eru þessir þættir tengdir saman í heildstæða mynd, svo auðvelt er að átta sig á raunverulegri stöðu vörumerkis og taka ákvarðanir í framhaldinu,“ segir Heiður. Kannanir og rýnihópar „Við leituðum fanga víða. Meðal annars byggðum við á þjónustu-, ímyndar- og neyslukönnunum sem Icelandair átti í fórum sínum,“ segir Heiður. „Við vildum vita hvaða hug Íslendingar hafa til vörumerkisins Icelandair og keppinauta þess. Við settum því saman rýnihópa þar sem þátttakendur voru valdir með tilliti til tíðni flugferða, með hverjum þeir ferðuðust mest, aldurs, kyns og margra fleiri þátta. Vinna við verkefnið hófst um áramót og henni var lokið á vor- mánuðum.“ Að sögn Heiðar er dæmigert að vöru- merkjarýni sé framkvæmd ef stjórnendur eru ekki alveg vissir um í hvaða stöðu vöru- merki þeirra sé. „Það getur verið erfitt að móta markvissa stefnu, ef staðan er ekki ljós. Aðstæður á markaði kunna að hafa breyst. Jafnvel þótt vörumerkinu hafi verið stýrt af stefnufestu, til dæmis ef nýir keppinautar hafa komið til sögunnar eða ef þeir sem keppt er við hafa breytt stefnu sinni.“ TEXTI: SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON MYND: GEIR ÓLAFSSON Stefán Sveinn Gunnarsson, markaðsstjóri Icelandair, og Heiður Agnes Björnsdóttir, sem leiðir markaðs- og rannsóknasvið ParX. A Ð R A N N S A K A V Ö R U M E R K I Vörumerkjarýni - Brand Audit - er víðtæk, kerfisbundin skoðun á öllum þáttum vöru- merkis og keppinauta þess, bæði áþreifanlegum og óáþreifanlegum. HELSTU ÞÆTTIR „BRAND AUDIT“: • Árangursmælikvarðar fjalla um hefðbundna mælikvarða, svo sem vörumerkja- virði, vörumerkjatryggð, vörumerkjavitund, gæðaímynd vörumerkis, arðsemi þess, markaðshlutdeild og fleira. Í raun má segja að hér sé metið hvaða áhrif fyrri aðgerðir og ráðstöfun markaðsfjár hafa á árangur vörumerkisins. • Innri þættir fjalla um innra skipulag, til dæmis hvernig stjórnskipulag, ákvarðanataka og þjónusta styður við vörumerkið og hefur áhrif á það. Hvernig tekst vörumerkinu að uppfylla gefin fyrirheit? • Persónuleiki vörumerkisins tekur meðal annars á nafni, merki, slagorðum, stíl, persónuleikaeinkennum, pakkningum, auglýsingum, kynningarefni, boð- miðlun og skilgreindri boðmiðlunarstefnu. Eru umbúðirnar í samræmi við þann persónuleika sem vörumerkinu er ætlað að hafa? • Aðgreinandi þættir vörumerkis eru einkenni sem gerir vörumerkið ólíkt öllum öðrum vörumerkjum. Þessir þættir móta ímynd vörumerkis. Á vörumerkið raunverulega einhver skýr einkenni eða hugtök í hugum neytenda eða er það í einhvers konar miðjumoði og deilir einkennunum með keppinautunum? Reynir vörumerkið að vera allt í öllu? • Staðfærsla snýst um stöðu vörumerkisins í hugum neytenda. Er hún skýr og er hún sú staða sem stjórnendur kjósa helst? Er vörumerkið að nýta krafta sína á markvissan hátt eða er fjármunum sóað til að ná í stöðu sem annað vörumerki á?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.