Frjáls verslun - 01.09.2005, Page 59
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5 59
Moskvu 1997-99 og svo fyrir tölvufyrirtæki
hér í Englandi, ákvað hún að freista gæf-
unnar í því sem hugurinn stóð til. „Ég þóttist
sjá að það væri glufa á markaðnum fyrir
skartgripi sem minntu á það sem Cartier og
Bulgari eru með en á miklu viðráðanlegra
verði.“
Það var á þennan markað sem Hendrikka
stefndi þegar hún fór að þreifa fyrir sér. Hún
hafði verið á Indlandi og byrjaði á að láta
framleiða skartgripi þar. Fyrir tveimur árum
var hún komin með línu nokkurra hluta sem
hún fór að kynna. Auk þess að hanna sner-
ist hún í öllu sjálf, sá um markaðssetningu
og annað sem þurfti að gera, rétt eins og
gjarnan gerist um þá sem hefja umsvif. Hún
gerir lítið úr því að henni hafi tekist vel upp
í að vekja athygli á skartgripunum en segist
núna styðjast við almannatengslafyrirtæki.
„Ég hef reynt að taka eitt skref í einu en fara
ekki of hratt.“
Skýr sýn er nauðsynleg
Skýr sýn á hvert stefnt sé er gott vegarnesti
í viðskiptum og Hendrikka tekur undir að
hún hafi frá byrjun haft skýra hugmynd um
hvað hún ætlaði sér og hvert hún stefndi.
„Ég hef trú á að það sé hægt að byggja
upp alþjóðlegt vörumerki með því að skír-
skota til Íslands rétt eins og Danir skírskota
stöðugt til danskrar hönnunar jafnvel þó
fyrirtækin séu ekki að gera neitt sem minni
á þessa einföldu stílhreinu hönnun sem
Danir eru frægir fyrir. Þeir eru líka snjallir
í markaðssetningu, eiga sér auðvitað engin
náttúruauðæfi en hafa í staðinn notað hug-
vitið. Ég sé ekki af hverju við ættum ekki að
geta gert það sama.“
Þar sem Hendrikka stefnir á alþjóðlegan
blæ í hönnuninni vaknar sú spurning hvort
Ísland sem hugtak eigi eitthvert erindi í
þann ramma sem hlutirnir eru kynntir í. „Já,
þrátt fyrir þennan alþjóðlega blæ þá tengi
ég þetta Íslandi eins og sögunni um barón-
inn, til að ná dulúðinni og áhugaverðum
sögum. En ég tengi hönnunina einnig mínu
eigin lífi og stöðum sem ég hef búið á.
Þannig er ég með rússneska línu sem er inn-
blásin af rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni.
Ég fór alltaf í sunnudagsmessu í kirkju við
Rauða torgið meðan ég bjó þar. Ódýrari
línan mín er undir Japönskum áhrifum þar
sem einfaldleiki ræður ríkjum.“
Notar sögur til að kynna hönnunina
Þar sem markaðssetning er þróað fag í
Englandi eru ýmsar kenningar uppi um
hvernig sé best að fara að. Ein er sú að „frá-
sagnir“, „narratives“, séu til þess fallnar að
setja hlutina í áhugavert samhengi sem um
leið fái þá til að skera sig úr þeim flaumi
sem á boðstólunum er. Hendrikka tekur
undir að sögur séu nauðsynlegar í þessu
samhengi. „Mér finnst það bæði eðlilegt og
nauðsynlegt að nota sögur til að koma hönn-
uninni á framfæri. Því dýpri sem sagan er
því áhugaverðari. Mér finnst líka gaman að
þessar sögur tengist mínu lífi og kem þessu
þannig frá mér þó tengslin þurfi ekki alltaf
að vera ljós.“
Hendrikka leggur mikla áherslu á að hún
hafi farið hægt af stað, með aðeins fáa hluti,
og uppbyggingin heldur áfram, hægt og bít-
andi. Einfalda línan sem hún byrjaði með,
H&W, er með fimmtíu hluti og er framleidd
í Kína en það er enskt fyrirtæki sem heldur
L U N D Ú N A P I S T I L L S I G R Ú N A R
SKARTGRIPIR HENDRIKKU
Silfur og gullhúðaðir hringir frá H&W. Demantahringur úr Baron línunni.
Armbönd frá H&W.
Demanta armbönd úr Baron línunni.
Hringir úr Baron línunni.