Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 66
Áhugi einstaklinga jafnt sem fjárfesta á húsakaupum á suðausturströnd Spánar, allt frá Alicante suður til La Manga del Mar Menor, er mikill, enda er þetta ábatasöm
fjárfesting auk þess sem loftslagið dregur Íslendinga til sín.
Eignaumboðið, fasteignasala, Skúlagötu 32-34, hefur milligöngu
um fasteignaviðskipti við spænska byggingarfyrirtækið Eurom-
arina sem hefur yfir 30 ára reynslu í byggingu og sölu á öllum
stærðum og gerðum fasteigna á þessum slóðum.
„Euromarina er öflugt fyrirtæki með gott orðspor sem býður
upp á heildarlausnir,“ segir Aðalheiður Karlsdóttir hjá Eignaum-
boðinu. „Í boði eru íbúðir, raðhús, parhús og einbýlishús, allt
upp í 100 milljón kr. lúxuseignir með einkasundlaug og öllum
þægindum, og hafa fjárfestar t.d. keypt fjölbýlishús og raðhúsa-
lengjur á ýmsum byggingarstigum. Á Spáni má fá óverðtryggð
lán, allt að 80% af kaupverði til allt að 25 ára, en vextir eru frá
2,95%. Fasteignaverð hefur hækkað um 5-15% á ári að undan-
förnu og allt bendir til áframhaldandi hækkana svo þetta er góð
ávöxtunarleið. Kaupi fjárfestar húsnæði á byggingarstigi og selji
fullklárað verður verðmætaaukningin enn meiri.“
Góð staðsetning skiptir máli. Staðsetning nærri golfvelli og
strönd eykur vinsældir og verðmæti eignanna sem og loftslagið
sem gerist vart betra. Þegar við þetta bætist góð hönnun, frábær
frágangur og fallegt umhverfi er ekki að undra að fasteignir
Euromarina séu vinsælar. Fyrirtækið á mikið land sem það
skipuleggur sjálft og allar framkvæmdir eru á þess vegum, enda
ræður það yfir byggingaverkfræðingum, arkitektum, iðnaðar-
mönnum og verkamönnum til allra verka. Þannig geta Eurom-
arina og Eignaumboðið, sem unnið hefur í 8-9 ár að því að ná
góðum samböndum á Spáni, klæðskerasniðið staðsetningu,
húsnæði, lán og kaupsamninga að þörfum hvers og eins.
Vandað raðhús á Spáni kostar jafnvirði meðalsumarbústaðar
á Íslandi, en fjármögnunin er auðveldari. Þar við bætist að ódýrt
er að lifa góðu lífi á Spáni og ódýrt flug býðst nú til Alicante sem
gerir þetta enn auðveldara. Þessi tegund fjárfestingamöguleika
höfðar til stöðugt breiðari hóps fólks á öllum aldri, bæði til að
njóta og ávaxta fé sitt.
Þeir sem fara til Spánar á vegum Eignaumboðsins gista á
La Laguna, fjögurra stjörnu hóteli í eigu Euromarina við höfuð-
stöðvar fyrirtækisins. Fulltrúar banka og yfirvalda koma á skrif-
stofu Euromarina þegar gengið er frá viðskiptunum og Eigna-
umboðið greiðir kaupendum 60 þús. kr. upp í ferðakostnað.
Hjá Euromarina vinnur íslensk stúlka sem er Íslendingum
innanhandar um alla hluti og er það kostur þar sem ekki tala
allir spænsku. Kaupi menn húsnæði á byggingarstigi eru allar
innborganir bankatryggðar.
Fjöldi Íslendinga hefur nú þegar fest kaup á húsnæði hjá
Euromarina fyrir milligöngu Eignaumboðsins. Flestir koma
vegna þess að þeir hafa heyrt um góða þjónustu og vandaðar
eignir frá einhverjum sem búnir eru að kaupa. Bendir það til að
óskir og þarfir íslenskra neytenda á þessu sviði séu uppfylltar og
eru það bestu meðmælin.
Vextir á Spáni frá aðeins
2,95% en fasteignaverð
hækkar um 5-15% á ári.
Aðalheiður Karlsdóttir hjá Eignaumboðinu.
Húseignir Euromarina á Spáni eru glæsilegar.
TEXTI: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON O.FL.
Húsakaup
á Spáni eru
góð fjárfesting
66 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5
KYNNING