Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2005, Síða 74

Frjáls verslun - 01.09.2005, Síða 74
74 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5 Y firleitt eru það ekki meðmæli með nýrri kvikmynd að miklar tafir hafi orðið á gerð hennar og frumsýningu hafi verið frestað. Ein slík kvikmynd, sem orðið hefur þessum örlögum að bráð, er The Weather Man, sem Gore Verbinski leikstýrir. Hún átti samkvæmt plani að vera löngu tilbúin til sýningar, en tafir af ýmsum orsökum hafa gert það að verkum að hún var ekki frum- sýnd í Bandaríkjunum fyrr en í enda október mánaðar og hér á landi verður hún frumsýnd 18. nóvember. Meðal þess sem orsakað hefur töfina er að Gore Verbinski, sem þekktastur er fyrir að hafa leikstýrt Pirates of the Caribbean: The Curse of a Black Pearl, er kominn á kaf í undirbúning og tökur á tveimur framhaldsmyndum um sjóræn- ingjana í Karíbahafi og búinn að missa áhugann á The Weather Man, hefur kannski fundið fyrir því hann hefur ekki skilað góðu dagsverki og lagt árar í bát. Ef Verbinski hefur ekki lagt mikinn metnað í The Weather Man, þá er ekki hægt að saka aðalleikarann, Nicolas Cage, um það sama. Cage hefur á síðustu árum verið gagnrýndur af kollegum sínum og fleirum fyrir að fara „auðveldu leiðina“ í Hollywood, taka að sér hlut- verk sem víst er að gangi í augun á almenningi. Með The Weather Man ætlaði Cage að sýna hvað í honum býr og að hann gæti leikið hlutverk sem þyrfti mikla alúð við og að ekki mætti neitt út af bera til að persónan yrði ekki óþolandi. Miðað við viðtökur hefur honum ekki tekist ætlunarverk sitt og þarf að bíta á jaxlinn ef hann á ekki að festast í færibandavinnu í Hollywood. Cage hefur sýnt að hann er ágætur leikari (Wild at Heart, 1991, Red Rock West, 1992, Leaving Las Vegas, 1995), en það þarf að fara nokkuð langt aftur í tímann til að sjá hann takast á við erfið hlutverk með góðum árangri. Ekki allt sem sýnist Veðurfréttamaðurinn David Spritz, í The Weather Man, virðist á sjónvarpsskjánum og í samtölum við annað fólk hafa fulla stjórn á því sem hann er að gera. Hann er ófyrirleitinn, gerir oft lítið úr áhorfendum sínum og tekur áhættu sem aðrir þora ekki. Hann er ekkert sérlega vel liðinn af áhorfendum, sem hafa margir hverjir myndað ástar/haturssamband við hann, en Spritz selur og hefur mikið áhorf. Spritz starfar á innanborgarstöð í Chicago, borg sem hefur viður- nefnið „Windy City“, þannig að oftast hefur Spritz úr nógu að moða í veðurspám sínum. Þegar morgunþáttarstjórnandi hjá einni af stóru sjónvarpsstöðvunum býður honum að koma í prufu og ef vel tekst til þá að lýsa veðri á landsvísu, þá sér Spritz sína sæng uppreidda. Slíkt starf myndi veita honum þá viðurkenningu sem hann þarfnast. Það er nú samt svo að ekki er allt sem sýnist í lífi David Spritz, þó ekki verði annað séð á sjónvarpsskjánum. Hann á í mesta basli í einkalífinu og getur á engan hátt tekist á við vandamálin. Eiginkonan, Noreen (Hope Davis) hefur yfirgefið hann vegna sambúðarerfiðleika og tekið tvö börn þeirra með sér. Hann vill fá þau aftur, en ekkert í fari hans bendir til þess að hann vilji eða geti komið til móts við KVIKMYNDIR TEXTI: HILMAR KARLSSON VEÐURFRÉTTAMAÐURINN NICOLAS CAGE SPÁIR FYRIR VEÐRI Í HINNI VINDASÖMU BORG, CHICAGO Nicolas Cage leikur veðurfréttamanninn David Spritz, sem gengur vel í starfi en á í miklum erfiðleikum í einkalífinu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.