Frjáls verslun - 01.05.2005, Side 11
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5 11
FRÉTTIR
Vaskur hópur í Mexíkó
Þ
essi skörulegi hópur kvenna
í atvinnurekstri og stjórn-
málum sótti ráðstefnuna
Global Summit of Women í
Mexíkóborg dagana 23. - 25. júní.
,,Þetta var í fimmtánda skiptið
sem ráðstefnan var haldin en til-
gangur hennar og markmið er að
efla konur og efla efnahagsleg
völd kvenna. „Tæplega þúsund
konur frá öllum heimshornum
sóttu þessa ráðstefnu, bæði úr
viðskiptalífinu og stjórnsýslunni,“
segir Jónína Bjartmarz alþingis-
kona en hún sat í alþjóðlegri undir-
búningsstjórn ráðstefnunnar.
,,Ég sótti fyrst ráðstefnuna
árið 2001 en þá var verið að
kynna viðskiptamöguleika á
Asíumarkaði. Við vorum þá afar
fáar konurnar frá Evrópu á ráð-
stefnunni og ég sú eina sem var
frá Norðurlöndunum en flestar
voru þær frá Asíu og Afríku. Ég
áleit að ráðstefnan gæti leitt til
viðskiptatækifæra fyrir íslenskar
konur og sú hefur orðið raunin.
Íslenskar sendinefndir hafa tví-
vegis farið á ráðstefnuna, með
dyggri aðstoð utanríkisráðu-
neytisins og útflutningsráðs, til
Spánar árið 2002 og til Kóreu
í fyrra. Í ár fór fyrir nefndinni
viðskipta- og iðnaðarráðherra,
Valgerður Sverrisdóttir. Hún flutti
erindi á ráðstefnunni og fundaði
með kvenráðherrum víðs vegar að
úr heiminum, þar sem þær báru
saman bækur sínar um stöðu
kvenna í ólíkum heimshlutum.
Í hópnum sem tók þátt í
ráðstefnunni voru átta konur í
Félagi kvenna í atvinnurekstri,
fulltrúi frá útflutningsráði,
auk mín og Ástu Ragnheiðar
Jóhannesdóttur þingkonu.
Íslenska sendinefndin vakti nú
eins og áður gífurlega athygli og
góður undirbúningur skilaði sér
þegar á ráðstefnuna var komið.
Við höfðum undirbúið fjölda
viðskiptafunda, sýningarbásinn
okkar þótti glæsilegur sem og
bæklingurinn um sendinefndina.
Þetta var því ekki síður góð
landkynning fyrir Ísland.“
Í viðskiptasendinefndinni sem
kannaði tækifæri og möguleika
á frekari fjárfestingum íslenskra
fyrirtækja í Mexíkó voru m.a.
þeir Óli Valur Steindórsson frá
fyrirtækinu Atlantis og Vilhjálmur
Guðmundsson frá útflutningsráði.
Valkyrjunum fannst ótækt annað
en að þeir væru með á myndinni
þrátt fyrir að þeir féllu, strangt
til tekið, ekki inn í mengi kven-
kynsins!
Mexíkófararnir, efri röð frá vinstri: Ásta R. Jóhannesdóttir alþingiskona, Svanhvít Aðalsteinsdóttir,
Útflutningsráði Íslands, Jónína Bjartmarz alþingiskona, Kolbrún Björgólfsdóttir, Kogga keramik gall-
erí, Hansína B. Einarsdóttir, Hótel Glymur, Kristín Karlsdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti. Miðröð
frá vinstri: Hulda Kristinsdóttir, Gluggasmiðjan/Hulda Designs, Jakobína Sigurðardóttir, Nóra, Edda
Sverrisdóttir, Flex, Guðrún Magnúsdóttir, Bergís ehf., Aðalheiður Karlsdóttir, Provida ehf. Neðsta röð frá
vinstri: Óli Valur Steindórsson frá fyrirtækinu Atlantis og Vilhjálmur Guðmundsson frá Útflutningsráði.
Jónína Bjartmarz alþingiskona
sat í alþjóðlegri undirbúnings-
nefnd ráðstefnunnar.