Frjáls verslun - 01.05.2005, Blaðsíða 64
64 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
fylgir áhætta. Þar sem samheldni liðsheild-
arinnar og traust skiptir máli mun fjölgun
kvenna að líkindum koma róti á málin.
Ekki svo að skilja að þeir sem skipa stjórnir
vantreysti konum, en sú stærð sem ekki
er þekkt skapar áhættu og jafnvel óþæg-
indi. Ennfremur má leiða að því líkur að
einhverjir muni bera skertan hlut frá borði
eins og oft vill verða við breytingar og ekki
annað en eðlilegt að menn vilji standa vörð
um sinn hlut.
Ef til vill er þessi þáttur sá sem erfiðast
er að takast á við, meðal annars vegna þess
að það er erfitt að setja hann í orð. Það er
þó mikilvægt að gleyma ekki að umróti og
breytingum fylgja líka tækifæri sem ekki
voru sýnileg áður, þó að þau tækifæri sýni
sig ef til vill ekki án óþæginda.
Hvers vegna ætti að fjölga konum í
stjórnum?
Eðlilegt er að velta upp þeirri spurningu
hvers vegna fjölgun kvenna í stjórnum sé
mikilvægt eða aðkallandi málefni. Ýmsir
hafa bent á að jafnrétti á vinnumarkaði verði
ekki náð nema hlutur kvenna í æðstu stjórn-
unar- og valdastöðum verði réttur af. Enn-
fremur hafa komið fram þau sjónarmið að í
lýðræðisþjóðfélagi eigi tækifæri til valda og
metorða að vera jöfn sem ætti að skila sér í
jöfnu hlutskipti í æðstu stjórnunarstöðum.
Þeir sem eru á öndverðum meiði telja jafn-
réttissjónarmiðið ekki eiga rétt á sér þar
sem hæfari einstaklingar gætu þurft að lúta
í lægra haldi þegar velja skuli einstakling
til ábyrgðarstarfa, og í raun sé eina réttláta
aðferðin sú að hæfni skuli ráða. Að hluta til
hefur umræðan um jafnrétti þó vikið fyrir
þeim sjónarmiðum að það séu bæði mark-
aðslegir, árangurs- og afkomutengdir þættir
sem séu bestu rökin fyrir því að fjölga eigi
konum í stjórnum og stjórnunarstöðum.
Fjölbreytileiki leiðir til betri árangurs
Í seinni tíð hafa þau sjónarmið átt vaxandi
fylgi að fagna að aukin fjölbreytni bæði í
stjórnunarstörfum og liðsheildum skili betri
árangri. Heimur viðskiptanna er að breyt-
ast, hraði og flækjustig að aukast og þar
með þarf fjölbreyttari liðsheild til að stýra
fyrirtækjum. Ólík þekking, reynsla og hæfni
getur samanlagt leitt til betri ákvarðanatöku.
Talsmenn þessara sjónarmiða benda meðal
annars á að fæð kvenna í stjórnum geri
það að verkum að stjórnir verði almennt
einsleitari. Með því að fjölga konum má
auka fjölbreytileika stjórna og þar með bæta
árangur.
Betri skilningur á markaðinum
Bent hefur verið á að viðskiptavinir margra
fyrirtækja séu að stórum hluta konur, kaup-
máttur kvenna hafi vaxið og konur taki
stærstan hluta af daglegum kaupákvörð-
unum. Þess vegna muni þátttaka kvenna á
efri stjórnunarstigum leiða til ákvörðunar-
töku sem byggir á betri skilningi á þörfum
og eðli markaðarins. Að auki eru starfsmenn
fyrirtækja í vaxandi mæli kvenkyns og því
geti fjölgun kvenna á æðstu stöðum leitt til
þess að ákvarðanir séu líklegri til að taka
mið af hagsmunum starfskvenna og þannig
skilað fyrirtækinu betri árangri.
Fyrirtæki mega ekki við því
að vannýta hæfni og krafta kvenna
Eins og fram hefur komið hafa konur í
háskólanámi á Íslandi verið fleiri en karlar í
21 ár og eru í dag um 2/3 hluti háskólanema.
Þessi þróun, sem er ekki ólík þróuninni
í löndunum í kring um okkur, getur ekki
leitt til annars en að menntunarstig kvenna
verður í náinni framtíð hærra en menntun-
arstig karla. Konur eru nálægt helmingi alls
vinnuafls í landinu. Fyrirtæki hafa einfald-
lega ekki efni á því að líta fram hjá mikilvægi
þess að nýta allan þann mannauð sem í boði
er. Ef konur, einhverra hluta vegna, veljast
síður til stjórnunarstarfa eða velja sér síður
stjórnunarstörf er ljóst að fyrirtæki fara á
mis við þekkingu þeirra og krafta. Fjölgun
kvenna í stjórnum er því ekki einungis tæki-
færi fyrir konur heldur tækifæri fyrirtækja til
að efla forystusveit sína, sem og til að senda
skilaboð til annarra kvenna innan fyrirtækis-
ins um að þar séu kraftar þeirra og þekking
eftirsótt og metin að verðleikum.
Fleiri konur - betri afkoma
Sýnt hefur verið fram á að fyrirtæki sem
setja framgang kvenna á dagskrá nái betri
árangri og skili betri afkomu. Rannsóknir
Cranfield University á 100 stærstu fyrir-
tækjum FTSE í Bretlandi og rannsóknir
Catalyst í Bandaríkjunum benda sterklega til
þess að það að tengsl séu milli afkomu fyrir-
tækja og fjölda kvenna í stjórnum. Þrátt fyrir
þessar vísbendingar hefur ekki verið sýnt
fram á orsakasamhengi milli þessara þátta,
og í raun er hægt að deila um hvort það sé
aukinn fjöldi kvenna sem gerir fyrirtækin að
betri fyrirtækjum eða hvort að framsýn og
árangursdrifin fyrirtæki sjái frekar ástæðu til
að opna augun fyrir hæfileikaríkum konum.
Að líkindum eru það þó báðir þessir þættir
sem í sameiningu gefa þessum fyrirtækjum
þann byr sem skilar sér í betri afkomu.
Er aðgerða þörf?
Þeir eru margir sem telja að breytingar muni
gerast af sjálfu sér, konur séu nú allar að
koma til og í raun að sækja fram á ýmsum
sviðum, og vitaskuld kann hér að eiga við
máltækið um að góðir hlutir gerist hægt.
Hins vegar er málið flóknara en svo að
hægt sé að setja það upp með þeim hætti
að þegar konur séu búnar að ná hinu og
þessu takmarkinu verði málið leyst. Það að
staðan jafnist „þegar konur eru búnar að ná
körlum“, felur í sér þá ótvíræðu skilgrein-
ingu að það að hafa það sem karlar hafa sé
réttara og betra. Það er hins vegar allsendis
óvíst að konur hafi yfir höfuð áhuga á „að ná
körlum“ og þaðan af síður víst að í því felist
einhver sérstakur ávinningur fyrir viðskipta-
lífið eða þjóðfélagið að allir hegði sér eins og
karlar. Viðskiptalífið þarf á fjölbreyttum eig-
inleikum að halda, við þurfum á hæfileikum
og gildismati beggja kynja að halda. Þess
vegna þarf að byggja brúna báðum megin
frá og grípa til viðeigandi aðgerða ef hlutirnir
eiga að breytast.
K O N U R Í S T J Ó R N U M F Y R I R T Æ K J A
Konur virðast með einhverjum
hætti „ósýnilegar“ þeim sem
velja í stjórnir eða hafa áhrif
á stjórnarsetu.
Sýnt hefur verið fram á að
fyrirtæki sem setja framgang
kvenna á dagskrá nái betri
árangri og skili betri afkomu.