Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2005, Page 68

Frjáls verslun - 01.05.2005, Page 68
68 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5 Hugtakið grátt svæði tengist mjög umræðu um góða viðskiptahætti og siðferði, því það stjórnast af siðferðisvitund samfélagsins hvort samþykkt verður að auglýsendur séu á gráu svæði með auglýsingar sínar. Í ákvörðun samkeppnisráðs frá árinu 2002 taldi ráðið að með hliðsjón af almennum siðferðislegum gildum samfélagsins, viti stjórnendur fyrirtækja í meginþorra tilvika hvað sé siðferðislega verjandi í viðskiptum og hvað ekki, hvernig sem þeir fara með þá vit- neskju. Hvað má þá? Reyndin er að það má auglýsa allt sem ekki er bannað. Það má ekki auglýsa tóbak og ekki áfengi, þó að óáfenga drykki með sama nafni megi kynna, enda sé augljóst að ekki sé verið að vísa til hinnar áfengu framleiðslu. Það má ekki aug- lýsa lyf nema í fagritum heilbrigðisstétta, að frá- töldum lausasölulyfjum, sem þó má ekki auglýsa í sjónvarpi. Ekki má vera ósanngjarn gagnvart samkeppnisaðilum, það má ekki segja ósatt eða hagræða staðreyndum, það má ekki ofbjóða og ekki pretta og ekki vera óskýr, nema stundum. Það má ekki birta börn í ósæmilegu umhverfi og ekki beina auglýsingum að ungum börnum. Það má ekki auglýsa mig án míns samþykkis og læknar, lögfræðingar og jafnvel tannlæknar mega ekki auglýsa starfsemi sína, nema til kynningar á nýrri staðsetningu. Duldar auglýsingar eru jafnframt með öllu óheimilar. Auglýsing telst dulin þegar umfjöllun í máli eða myndum á vöru, þjónustu, vörumerki eða starfsemi aðila er framleiðir vöru eða veitir þjónustu er felld inn í efni þannig að þeir sem höfðað er til gera sér jafnvel ekki grein fyrir því að um auglýsingu sé að ræða, til dæmis Trópíferna á borði umsjónarmanna í sjónvarpi eða umfjöllun um verðlækkun á tilgreindri bjórtegund í Vínbúð- inni. Þannig auglýsingar brjóta jafnframt gegn siðareglum blaðamanna um að gæta þess að rugla ekki saman ritstjórnarlegu efni, sem hefur augljóst upplýsinga- og fræðslugildi, og auglýs- ingum í myndum og/eða máli. ... en það má allt annað. Það má sem sagt framleiða og birta auglýsingar sem eru löglegar, siðlegar, heiðarlegar og sannar; auglýsingar sem taka tillit til samfélagsins alls, neytenda jafnt sem markaðsaðila. Í reynd halda takmarkanirnar ekki Sett hafa verið lagaákvæði um flesta þá við- skiptalegu tjáningu sem takmörkunar þarfnast en mönnum ber ekki saman um hversu árangursrík slík lagasetning hefur verið. Ljóst er að þrátt fyrir þær takmarkanir sem settar hafa verið þá markast hegðun auglýsenda á markaði fyrst og fremst af þeim viðbrögðum sem fást hjá eftirlits- aðilum. Það eru fyrst og fremst þrír aðilar sem hafa eftirlit með því að auglýsingar sem birtast í fjöl- miðlum séu í samræmi við lög: Neytendastofa tekur nú við eftirliti samkeppnisyfirvalda með brotum gegn lögum um eftirlit með ólögmætum viðskiptaháttum og lögum um neytendalán, Lyfja- stofnun hefur eftirlit með lyfjaauglýsingum en eftirlit með öðrum lagaákvæðum er í höndum lög- reglu. Eftirlitsaðilar þessir hafa frumkvæðisskyldu til viðbragða við brotum en einnig bregðast þeir við kærum sem berast, ýmist frá samkeppnisað- ilum, hagsmunasamtökum, neytendasamtökum eða einstaklingum. Reyndin hefur hins vegar verið sú að frumkvæðisskyldu eftirlitsaðilanna er sjaldan framfylgt vegna manneklu og eru því rann- sóknir á málum háðar einstökum kærum. Auk þessara þriggja aðila fjallar siðanefnd SÍA um mál sem til hennar er vísað vegna meintra brota gegn siðareglum um auglýsingar. Þrátt fyrir viðleitni löggjafans til þess að tak- marka viðskiptalegt tjáningarfrelsi er langt frá því að það hafi gengið eftir, fyrst og fremst vegna þess að markmið flestra þeirra laga, sem sett hafa verið til höfuðs frelsinu, hafa verið þess eðlis að ekki hefur verið talið heimilt að ganga mjög langt í takmörkununum. Jafnframt hefur það sýnt sig að til þess að takmarkanirnar haldi þá verður að ganga langt, skilgreina verður í raun nokkuð nákvæmlega hvað skal falla undir þá auglýsingu sem á að banna eða takmarka. Vegna breytinga á tíðaranda og siðferðisvitund manna eru slíkar skil- greiningar hins vegar mjög vandasamar, því það sem banna þyrfti breytist í takt við slíka þróun. Þar sem svo nákvæmar skilgreiningar eru vart mögulegar þá aukast líkurnar á því að grá svæði myndist og á gráu svæði þrífast þeir sem reyna að fara í kringum lögin með einhverjum hætti. A U G L Ý S I N G A R
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.