Frjáls verslun - 01.05.2005, Page 74
74 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
San Francisco
*Bókað á www.icelandair.is
Ferðatímabil: 16. ágúst - 15. október 2005.
Þetta flug gefur 5.800 Vildarpunkta.
Netsmellir frá 57.900 kr.*
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
28
77
5
0
6/
20
05
Punktaðu ferðina niður!
Nú getur þú notað 10.000 Vildarpunkta
sem 5.400 kr. greiðslu upp í fargjaldið.
fara fram á opinber skipti og stefna forsjár-
málinu til dómstóla. Með því er hægt að fá
skilnað að borði og sæng þrátt fyrir neitun
makans. Að setja skilnaðarmál í þennan
farveg er kostnaðarsamt og oft tekur langan
tíma að fá niðurstöðu um eignaskiptin og
forsjá barna. En því miður er þessi leið oft
óhjákvæmileg. Það kostar oft mikla fjár-
muni að vera þrjóskur og vert er að benda á
að við ákvörðun skiptakostnaðar milli aðila
er oft tekið mið af því.“
- Kemur oft upp ágreiningur um upphæð
meðlaga, framfærslulífeyris eða maka-
lífeyris við skilnað ef maðurinn er t.d.
með mjög góðar tekjur og á fyrirtæki sem
kemur í hans hlut, en konan kannski ekki
á vinnumarkaðnum?
„Ef ekki næst samkomulag um þessi atriði
er hægt að skjóta ágreiningi til sýslu-
manns. Sýslumaður byggir ákvörðun sína á
ákveðnum verklagsreglum eða reiknireglum
þegar ákvörðun er tekin um hvort maður
eigi t.d. að greiða tvöfalt eða þrefalt meðlag.
Það sama gildir um ákvörðun makalífeyris á
meðan á skilnaði að borði og sæng stendur.
Það byggist m.a. á tekjum aðila. Maður sem
er með eina milljón krónur í tekjur á mánuði
getur átt það „á hættu“ að þurfa að greiða
þrefalt meðlag.“
Guðrún Helga segir að mjög oft sé gerður
kaupmáli ef annar aðilinn eigi í vændum eða
hafi fengið mikinn arf, t.d. frá foreldrum.
Hins vegar sé stöðugt algengara við slíkar
aðstæður að gerð hafi verið erfðaskrá þar
sem ákveðið er að arfur skuli vera séreign
erfingja. Þá þarf engan kaupmála og arfur-
inn rennur ekki inn í bú hjónanna. En sé
þessa ekki gætt á hinn aðilinn rétt á að fá
helming af andvirði arfsins. Arfur er alltaf
hjúskapareign og erfinginn getur ákveðið að
halda eigninni, en verður að greiða hinum
aðilanum helming andvirðisins.
Í íslensku þjóðfélagi eru iðulega stjúp-
börn á heimilum. Þau eiga erfðarétt eftir
foreldri sitt og sé ekki búið að ganga frá því
í erfðaskrá að eftirlifandi maki fái að sitja
í óskiptu búi getur stjúpbarnið krafist þess
að fá arfshluta sinn greiddan út. Ótrúlega
margir gera sér ekki grein fyrir þessu. Með
erfðaskrá er hins vegar aldrei hægt að gera
lögerfingja arflausan. Sé lögerfingjum til að
dreifa má aldrei ráðstafa meiru en 1/3 eign-
anna með erfðaskrá.“
- Réttur fólks í sambúð er oft lagður að
jöfnu við rétt fólks í hjónabandi þó það
sé röng túlkun og mikill munur þar á. Í
hverju felst þessi munur aðallega?
„Þá gildir engin helmingaskiptaregla í
sambúð og við sambúðarslit þarf að sýna
fram á hvað viðkomandi aðili á. Gríðar-
lega mikilvægt er að gæta að skráningum,
t.d. að við þinglýsingu á fasteign sé skráð
hversu stór eignarhluti hvers fyrir sig er.
Framfærsluskylda milli aðila er engin og
enginn erfðaréttur er á milli aðila í sambúð.
Réttarstaðan er því gjörólík. Það er ótrúlega
útbreiddur misskilningur að eftir ákveðinn
tíma, t.d. eftir fimm ár í sambúð, taki gildi
helmingaskiptaregla við sambúðarslit. Sam-
búðarfólk gerir ekki mikið af því að ganga
frá samningum sín á milli um eignir og fjár-
skipti, en oft er erfitt að sýna fram á það
hver á hvað við sambúðarslit. Fólk sem kýs
sambúðarformið á að mínu mati að ganga
frá þessum málum, þannig að það liggi skýrt
fyrir hvernig eignir eiga að skiptast. Aðeins
þannig er hægt að tryggja rétt sinn komi til
sambúðarslita.
Konur hafa orðið mun meðvitaðri um
stöðu sína, hafa í auknum mæli gætt réttar
síns, t.d. við skráningu fasteigna við kaup ef
um sambúð er að ræða. Konur hafa oft mun
meiri innsýn í fjármálin, kannski vegna þess
að þær hafa gegnum tíðina borið ábyrgðina
af rekstri heimilisins. Nú, svo finnast auð-
vitað í dag ánægjuleg dæmi - sé horft til
jafnréttis kynjanna - þar sem konan aflar
hærri tekna en maðurinn og hefðbundin
hlutverk hafa snúist við. Það sama má segja
um forsjármál - enn eimir eftir af því sjónar-
miði að feður eigi sama og enga möguleika
til að fá forsjá barna sinna. Mín reynsla er
þó sú að staða þeirra hefur töluvert breyst
til batnaðar undanfarin ár láti þeir reyna á
stöðu sína fyrir dómstólum.“
S K I L N A Ð U R O G S K I P T I N G E I G N A
San Francisco
*Bókað á www.icelandair.is
Ferðatímabil: 16. ágúst - 15. október 2005.
Þetta flug gefur 5.800 Vildarpunkta.
Netsmellir frá 57.900 kr.*
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
28
77
5
0
6/
20
05
Punktaðu ferðina niður!
Nú getur þú notað 10.000 Vildarpunkta
sem 5.400 kr. greiðslu upp í fargjaldið.
„Stöðugt algengara er við
slíkar aðstæður að gerð hafi
verið erfðaskrá þar sem
ákveðið er að arfur skuli
vera séreign erfingja. Þá
þarf engan kaupmála og
arfurinn rennur ekki inn í bú
hjónanna.“
„Fyrirtæki í eigu annars
makans, hvort sem makinn
rekur fyrirtæki einn eða í
samrekstri með öðrum, koma
til skipta með sama hætti og
aðrar eignir búsins.“
„Kaupmálar eru töluvert að
færast í aukana og mér finnst
það jákvætt að fólk skuli sýna
viðleitni til þess að hafa þessi
mál á hreinu.“
„Oft er erfitt að meta verðgildi
fyrirtækja við skilnað, t.d.
viðskiptavild, en ársreikningar
fyrirtækja eru auðvitað
grundvöllur matsins.“
„Arfur er alltaf hjúskapareign
og erfinginn getur ákveðið
að halda eigninni, en verður
að greiða hinum aðilanum
helming andvirðisins við
skilnað.“