Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2005, Síða 74

Frjáls verslun - 01.05.2005, Síða 74
74 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5 San Francisco *Bókað á www.icelandair.is Ferðatímabil: 16. ágúst - 15. október 2005. Þetta flug gefur 5.800 Vildarpunkta. Netsmellir frá 57.900 kr.* ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S IC E 28 77 5 0 6/ 20 05 Punktaðu ferðina niður! Nú getur þú notað 10.000 Vildarpunkta sem 5.400 kr. greiðslu upp í fargjaldið. fara fram á opinber skipti og stefna forsjár- málinu til dómstóla. Með því er hægt að fá skilnað að borði og sæng þrátt fyrir neitun makans. Að setja skilnaðarmál í þennan farveg er kostnaðarsamt og oft tekur langan tíma að fá niðurstöðu um eignaskiptin og forsjá barna. En því miður er þessi leið oft óhjákvæmileg. Það kostar oft mikla fjár- muni að vera þrjóskur og vert er að benda á að við ákvörðun skiptakostnaðar milli aðila er oft tekið mið af því.“ - Kemur oft upp ágreiningur um upphæð meðlaga, framfærslulífeyris eða maka- lífeyris við skilnað ef maðurinn er t.d. með mjög góðar tekjur og á fyrirtæki sem kemur í hans hlut, en konan kannski ekki á vinnumarkaðnum? „Ef ekki næst samkomulag um þessi atriði er hægt að skjóta ágreiningi til sýslu- manns. Sýslumaður byggir ákvörðun sína á ákveðnum verklagsreglum eða reiknireglum þegar ákvörðun er tekin um hvort maður eigi t.d. að greiða tvöfalt eða þrefalt meðlag. Það sama gildir um ákvörðun makalífeyris á meðan á skilnaði að borði og sæng stendur. Það byggist m.a. á tekjum aðila. Maður sem er með eina milljón krónur í tekjur á mánuði getur átt það „á hættu“ að þurfa að greiða þrefalt meðlag.“ Guðrún Helga segir að mjög oft sé gerður kaupmáli ef annar aðilinn eigi í vændum eða hafi fengið mikinn arf, t.d. frá foreldrum. Hins vegar sé stöðugt algengara við slíkar aðstæður að gerð hafi verið erfðaskrá þar sem ákveðið er að arfur skuli vera séreign erfingja. Þá þarf engan kaupmála og arfur- inn rennur ekki inn í bú hjónanna. En sé þessa ekki gætt á hinn aðilinn rétt á að fá helming af andvirði arfsins. Arfur er alltaf hjúskapareign og erfinginn getur ákveðið að halda eigninni, en verður að greiða hinum aðilanum helming andvirðisins. Í íslensku þjóðfélagi eru iðulega stjúp- börn á heimilum. Þau eiga erfðarétt eftir foreldri sitt og sé ekki búið að ganga frá því í erfðaskrá að eftirlifandi maki fái að sitja í óskiptu búi getur stjúpbarnið krafist þess að fá arfshluta sinn greiddan út. Ótrúlega margir gera sér ekki grein fyrir þessu. Með erfðaskrá er hins vegar aldrei hægt að gera lögerfingja arflausan. Sé lögerfingjum til að dreifa má aldrei ráðstafa meiru en 1/3 eign- anna með erfðaskrá.“ - Réttur fólks í sambúð er oft lagður að jöfnu við rétt fólks í hjónabandi þó það sé röng túlkun og mikill munur þar á. Í hverju felst þessi munur aðallega? „Þá gildir engin helmingaskiptaregla í sambúð og við sambúðarslit þarf að sýna fram á hvað viðkomandi aðili á. Gríðar- lega mikilvægt er að gæta að skráningum, t.d. að við þinglýsingu á fasteign sé skráð hversu stór eignarhluti hvers fyrir sig er. Framfærsluskylda milli aðila er engin og enginn erfðaréttur er á milli aðila í sambúð. Réttarstaðan er því gjörólík. Það er ótrúlega útbreiddur misskilningur að eftir ákveðinn tíma, t.d. eftir fimm ár í sambúð, taki gildi helmingaskiptaregla við sambúðarslit. Sam- búðarfólk gerir ekki mikið af því að ganga frá samningum sín á milli um eignir og fjár- skipti, en oft er erfitt að sýna fram á það hver á hvað við sambúðarslit. Fólk sem kýs sambúðarformið á að mínu mati að ganga frá þessum málum, þannig að það liggi skýrt fyrir hvernig eignir eiga að skiptast. Aðeins þannig er hægt að tryggja rétt sinn komi til sambúðarslita. Konur hafa orðið mun meðvitaðri um stöðu sína, hafa í auknum mæli gætt réttar síns, t.d. við skráningu fasteigna við kaup ef um sambúð er að ræða. Konur hafa oft mun meiri innsýn í fjármálin, kannski vegna þess að þær hafa gegnum tíðina borið ábyrgðina af rekstri heimilisins. Nú, svo finnast auð- vitað í dag ánægjuleg dæmi - sé horft til jafnréttis kynjanna - þar sem konan aflar hærri tekna en maðurinn og hefðbundin hlutverk hafa snúist við. Það sama má segja um forsjármál - enn eimir eftir af því sjónar- miði að feður eigi sama og enga möguleika til að fá forsjá barna sinna. Mín reynsla er þó sú að staða þeirra hefur töluvert breyst til batnaðar undanfarin ár láti þeir reyna á stöðu sína fyrir dómstólum.“ S K I L N A Ð U R O G S K I P T I N G E I G N A San Francisco *Bókað á www.icelandair.is Ferðatímabil: 16. ágúst - 15. október 2005. Þetta flug gefur 5.800 Vildarpunkta. Netsmellir frá 57.900 kr.* ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S IC E 28 77 5 0 6/ 20 05 Punktaðu ferðina niður! Nú getur þú notað 10.000 Vildarpunkta sem 5.400 kr. greiðslu upp í fargjaldið. „Stöðugt algengara er við slíkar aðstæður að gerð hafi verið erfðaskrá þar sem ákveðið er að arfur skuli vera séreign erfingja. Þá þarf engan kaupmála og arfurinn rennur ekki inn í bú hjónanna.“ „Fyrirtæki í eigu annars makans, hvort sem makinn rekur fyrirtæki einn eða í samrekstri með öðrum, koma til skipta með sama hætti og aðrar eignir búsins.“ „Kaupmálar eru töluvert að færast í aukana og mér finnst það jákvætt að fólk skuli sýna viðleitni til þess að hafa þessi mál á hreinu.“ „Oft er erfitt að meta verðgildi fyrirtækja við skilnað, t.d. viðskiptavild, en ársreikningar fyrirtækja eru auðvitað grundvöllur matsins.“ „Arfur er alltaf hjúskapareign og erfinginn getur ákveðið að halda eigninni, en verður að greiða hinum aðilanum helming andvirðisins við skilnað.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.