Frjáls verslun - 01.05.2005, Qupperneq 76
76 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
Þ
að er öllum mikilvægt sem vilja ná árangri í vinnu að hafa
sjálfstraust. Vinnuumhverfi er breytingum háð og getur
lítið sjálfstraust dregið úr hæfni starfsmanns til að takast
á við þær og jafnvel haldið aftur af honum. Linda Bára
Lýðsdóttir, sálfræðingur hjá geðdeild Landspítala - háskólasjúkra-
húss og stundakennari við sálfræðiskor Háskóla Íslands hefur látið
sig varða sjálfstraust einstaklinga á vinnustöðum með fyrirlestrum,
námskeiðum og einstaklingsráðgjöf. Áður en hún tók við starfi sínu
hjá LSH var hún ráðgjafi hjá IMG Deloitte.
Í viðtali segir Linda Bára að það sé aldrei ofmetið hversu mikil-
vægt sjálfstraust er fyrir einstakling á vinnumarkaðinum í dag: „Hrað-
inn í atvinnulífinu hefur aukist og breytingar eru
orðnar daglegt brauð. Jafnframt hefur menntunar-
stig hækkað, margar stöður sem kröfðust stúdents-
próf áður fyrr eru mannaðar af háskólamenntuðu
fólki í dag. Starfsmaður sem á erfitt með að aðlagast
breytingum getur auðveldlega orðið óöruggur og
setið eftir. Ástæðan fyrir því getur verið skortur á
sjálfstrausti en jafnframt geta breytingarnar sjálfar
dregið úr sjálfstrausti starfsmannsins.
Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að
stjórnendur eru einnig undir miklu álagi og eiga
oft á tíðum erfitt með að finna tíma til að sinna
starfsmönnum sínum, veita þeim nægjanlegar upplýsingar og upp-
byggilega endurgjöf. Starfsmenn upplifa því oft að þeim sé ekki
nógu vel sinnt, sérstaklega í umróti eins og verður oft við breytingar.
Starfsmenn, sérstaklega þeir sem hafa langan starfsaldur og mikla
reynslu, finnst jafnvel að þeim hafi verið haldið fyrir utan ákvarðanir
um þeirra störf í breytingaferlinu og getur það ýtt enn frekar undir
óöryggi þeirra.“
Linda Bára segir að í vinnuumhverfi nútímans skipti miklu máli
að starfsmenn séu opnir og jákvæðir gagnvart breytingum og sjálfs-
traust spili þar stórt hlutverk: „Einstaklingur sem hefur lítið sjálfs-
traust verður auðveldlega óöruggur um eigin stöðu í breytingum og
getur þess vegna. sýnt henni andstöðu. Stjórnendur vilja eðlilega
ekki mæta andstöðu. Þeir vilja hafa starfsmann sem er tilbúinn til
að takast á við breytingar. Þeir taka eftir þeim starfsmönnum og
umbuna þeim jafnvel fyrir að vera þeim samstíga.“
Hugsun skiptir máli „Ég hef komið inn á marga vinnustaði þar
sem hópur starfsfólks hræðist af einhverjum ástæðum breytingar,
er óöruggur og er jafnvel farinn að vinna gegn breytingum. Stjórn-
endur skilja oft á tíðum ekki að þetta getur stafað af óöryggi og
fyllast óþolinmæði og jafnvel pirringi. Þetta túlka starfsmenn svo
sem höfnun og getur það leitt til þess að jafnvel reynslumiklir og
hæfir starfsmenn missi sjálfstraustið. Þeir fara í vörn og sýna breyt-
ingum enn meiri andstöðu. Starfsmönnum finnst ekki þægilegt að
vera í þessum aðstæðum, þeir hugsa orðið mjög
neikvætt, líður illa og það dregur úr hæfni þeirra til
að sinna starfi sínu vel.
Mikilvægt er að benda á að hugsun getur haft
bein áhrif bæði á líðan og hegðun starfsmanna.
Jákvæð hugsun bætir líðan og eykur árangurs-
ríka hegðun. Neikvæð hugsun veldur vanlíðan
og dregur úr árangursríkri hegðun. Þetta er sama
lögmál og er í íþróttum, leikmaður sem fer inn á
völlinn með það í huga að ógjörningur sé að vinna
leikinn er ekki líklegur til að spila vel. Það að spila
ekki vel dregur úr árangri liðsins og leikmaður
hugsar; sagði ég ekki, ég hafði rétt fyrir mér. Þannig getur þetta orðið
neikvæður vítahringur sem erfitt er að brjóta.“
Fyrirtæki getur umbreyst á einu ári Linda Bára er spurð hvort
nýir starfsmenn missi ekki einnig sjálfstraust þegar ætlast er til of
mikils af þeim og þeir fái erfiðari verkefni upp í hendurnar en þeir
reiknuðu með. „Jú, það getur verið tilfellið. Hraðinn er mikill, breyt-
ingar örar og oft lítill tími til að setja nýja starfsmenn vel inn í störf.
Í dag geta fyrirtæki auðveldlega umbreyst á einu ári, til dæmis með
samruna. Það er mín tilfinning að oft séu kröfur vinnumarkaðarins
orðnar meiri en margir ráða við. En að sjálfsögðu er þetta einstak-
lingsbundið. Margir starfsmenn, gamlir sem ungir, eru að standa
sig mjög vel í starfi og þar spilar sjálfstraust eflaust stóran þátt.
Breytingar geta valdið því að starfsfólk missir sjálfstraust TEXTI: HILMAR KARLSSON
MYND: GEIR ÓLAFSSON
Í dag geta fyrirtæki
auðveldlega umbreyst á
einu ári, til dæmis með
samruna. Það er mín
tilfinning að oft séu
kröfur vinnumarkaðar-
ins orðnar meiri
en margir ráða við.
LINDA BÁRA LÝÐSDÓTTIR, SÁLFRÆÐINGUR
SJÁLFSTRAUST
M I K I L V Æ G I S J Á L F S T R A U S T S