Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2005, Side 88

Frjáls verslun - 01.05.2005, Side 88
88 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5 vilja sinna börnunum (sem mennirnir mega iðulega ekki vera að) eða af því þeim er beint þangað inn? Engin einhlít skýring - en verðugt umhugsunarefni... Mismununarmálaferlin úr fjármála- geiranum vekja mesta athygli því þar eru upphæðirnar hæstar og lýsingarnar safaríkastar. Nýlega fréttist að ástralski lögfræðingurinn Elizabeth Weston væri aftur komin á stúfana. Weston er þrí- tug og hætti hjá Merill Lynch í fyrra með milljón pund í vasanum eftir jólapartíið, sem fór doldið úr böndunum. Háttsettur lögfræðingur, Nathaniel Norgren, starfsbróðir Westons hafði ýmis sóðaleg orð um útlit Westons, einkum brjóstmálið, velti yfir hana borði svo hún fékk rauðvínið yfir sig, sagði manninn hennar heppinn að eiga svona konu en gekk líka á hana með spurningar eins og ‘Hvað oft í viku?’ Hún stefndi bankanum, sem borgaði sumsé frekar en að fara í réttinn - en það er reyndar athyglisvert að maðurinn ku enn halda stöðunni. Já, eiginlega makalaust að fyrirtæki sé sátt við að hafa mann í vinnu sem getur kostað það milljón (pund!) um leið og hann fær sér í glas með starfs- systur sinni. Nýja stefna Westons varðar meðmælabréf sem hún fékk eftir starfslokin. Hún segir bréfið hefnigjarnt og niðurlægj- andi fyrir sig en bankinn heldur því fram að hún sé tæki- færissinni - bréfið sé réttlátt. Það sem kom fram í þessum réttarhöldum og öðrum ámóta er hvað háspennan í fjár- málageiranum er hlaðin karlhormónum, sem leita útrásar í ósmekklegri framkomu við kvenfólk. Auðvitað er þetta heldur hvimleitt og skapar oft óþol- andi andrúmsloft fyrir kvenfólk. Verra er að þessi andi skilar sér einnig í launaumslaginu: nýleg athugun sýnir að konur í fjármálageiranum fá allt að 42 prósent lægri laun en karlarnir - sem er rúmlega tvöfalt launabil miðað við þjóðfélagið í heild. Níu starfskonur Merill Lynch hafa höfðað mál af þessu sökum og ML hefur líklega greitt fjórar milljónir punda í skaðabætur auk 800 þúsund punda í málskostnað. Af því launagreiðslur eru oftast trúnaðarmál er ekki auðvelt fyrir konur að grafast fyrir um hvort þeim sé mis- munað í launum. Fyrir tveimur árum voru sett ný lög hér sem eiga að auðvelda fólki að afla upplýsinga um hvort launamismunun eigi sér stað, hvort sem stafar af kynferði, kynþætti eða öðru. Þá ályktaði háttsettur lögfræðingur ML að áhættan á þessu sviði væri að verða of mikil til að hægt væri að líta framhjá henni, auk þess sem álitshnekkirinn væri verulegur þegar svona kæmi upp. Annar starfsmaður sagði að lögin væri tímasprengja. Þessi skoð- anaskipti hafa síðan komið fram í málaferlum kvenna gegn ML. - Og já, þetta er bara eitt fyrirtæki... af mörgum. Mér sýnist stundum að viðskipta- heimurinn sé klofinn í herðar niður: annars vegar eru fyrirtæki þar sem stöðugt er talað um mannauð og gildi þess að rækta hann, hins vegar fyrirtæki sem svífast einskis í að borga sem minnst og krefjast sem mests. Mannauðstalið má að hluta rekja til áhrifamikillar bókar, Emotional Intelligence eftir Daniel Goleman, sem kom út 1995. Þar bendir hann á að gáfur hafi verið ofmetnar - það sem skipti máli séu hæfi- leikar til mannlegra samskipta, svo sem sjálfsskilningur, sjálfsagi, úthald og tilfinning fyrir öðrum. Þessar hugmyndir hafa víða verið aðhæfðar stjórnunar- kenningum - og í því sambandi er gjarnan bent á að í fyrirtækjum sem „hugsa“ á þennan hátt eigi konur bæði máttinn og dýrðina þar sem þær séu tilfinningalega „hæf- ari“ en karlar. Danskur prófessor í hagfræði, Nina Smith, kunngerði nýlega áhugaverða rannsókn sem sýndi að fyrir- tækjum þar sem konur eru í stjórnarteyminu vegnar betur en ‘karlkyns’ fyrirtækjum - það er því ekki eins og fyrirtæki þurfi að tapa á að leyfa helmingi mannkynsins eðlilegan framgang. En hvað er til ráða meðan við bíðum eftir þessum dýrðar- dögum þegar manngæði og tillitssemi verða efst á blaði og allir metnir að verðleikum? Mikilvægi góðrar barnagæslu verður seint ofmetið - en jákvæð mismunun hefur einnig gert kraftaverk í landi jafnréttisins, Svíþjóð. Grunnhug- myndin er að þegar tveir jafnhæfir umsækjendur eru um starf þá skuli ráða þann sem kemur úr hópi sem fæstir eru úr á vinnustaðnum: sumsé er karl ráðinn sem fóstra og kona bankastjóri á þessum forsendum. Já, nú heyri ég þjóta í mörgum... Ég hef oft heyrt konur taka vanþóknunardýfur yfir jákvæðri mismunun, sérstak- lega ungar konur - og kannski af því ég var sjálf einu sinni í þeim hópi þá fannst mér þetta líka alltaf frekar fráleitt. En af því maður vitkast með aldrinum þá hef ég snarskipt um skoðun: elskurnar mínar, meðan karlmenn þurfa almennt ekki áfallahjálp fyrir að vera ráðnir eingöngu út á hormóna- starfsemina sé ég enga ástæðu til að kvenfólk þurfi að vera eitthvað feimið við jákvæða mismun... til að sleppa við að tapa hvað eftir annað fyrir neikvæðri mismunun! J A F N R É T T I Í B R E T L A N D I Það sem kom fram í þessum réttarhöldum er hvað háspennan í fjár- málageiranum er hlaðin karlhormónum, sem leita útrásar í ósmekklegri framkomu við kvenfólk.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.