Frjáls verslun - 01.05.2005, Blaðsíða 110
110 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
KYNNING
Þ að er afar skemmtilegt að fá að hanna og smíða skart úr gulli, silfri og demöntum,“
segir Sigríður Anna Sigurðardóttir
gullsmiður sem ásamt eiginmanni
sínum, gullsmiðnum Timo Salsola,
hefur í 12 ár rekið verkstæði og
verslunina Sigga & Timo í fallegu
húsi við Strandgötu 19 í Hafnarfirði.
„Gullið nýtur nú vinsælda á nýjan
leik en silfrið hefur verið ríkjandi
um langt skeið. Íslenskar konur eru
einnig að komast að því að fátt
jafnast á við demanta. Við Timo höfum síðustu misserin lagt meiri
áherslu á að hanna stærri skartgripi úr gulli og með demöntum enda
hefur verið eftirspurn eftir þeim. Við sérsmíðum einnig skartgripi og
hönnum í samráði við viðskiptavini armbönd, hálsmen eða hringi svo
eitthvað sé nefnt. Við erum sífellt með púlsinn á því sem er að gerast
hverju sinni, förum á sýningar og fylgjumst með því nýjasta í gegnum
fagtímarit, tískutímarit, sjónvarpsþætti og jafnvel kvikmyndir en
höfum mótað okkar eigin stíl og sérstöðu. Við viljum höfða til allra
aldurshópa, vera með vörur í sem flestum verðflokkum og veita góða
þjónustu. Viðskipti snúast fyrst og fremst um mannleg samskipti og
ég hef afskaplega gaman af þeim. Ég sé að mestu leyti um verslunina
og Timo um framleiðsluna en bæði komum við að hönnuninni.“
Sigríður Anna stefndi frá 12 ára aldri á nám í gullsmíði en fagið
lærði hún bæði hér á Íslandi og í Finnlandi þar sem Timo kom til sög-
unnar. „Ég ætlaði meira að segja að opna verslun í því húsnæði sem
við erum í dag,“ segir hún og hlær. Hvort tveggja hefur gengið eftir og
raunar ekkert ótrúlegt við það því gullsmiðurinn er viljasterk kona,
einbeitt og ákveðin. „Ég fæ í starfinu góða útrás fyrir þá skapandi
krafta sem ég bý yfir en hef jafnframt eftirsóknarvert sjálfstæði. Starf
gullsmiðsins er einnig mjög gefandi. Við erum að taka þátt í mörgum
af mikilvægustu stundunum í lífi fólks. Það er auðvitað lykilatriði að
standa undir því trausti sem okkur er sýnt, við hönnun og smíði skart-
gripanna, en ekki síður að halda trúnaði um viðskiptin sjálf.“
SIGGA & TIMO GULLSMÍÐI
Smíða úr
skíragulli og
demöntum
Gullsmiðurinn Sigríður Anna í Sigga & Timo segir skartgripi úr gulli og
demöntum ávallt vera sígilda.
Það er auðvitað lykil-
atriði að standa undir
því trausti, sem okkur
er sýnt, við hönnun
og smíði skartgrip-
anna, en ekki síður að
halda trúnaði um við-
skiptin sjálf.