Frjáls verslun - 01.05.2005, Qupperneq 118
118 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
KYNNING
K læðaburður skiptir miklu máli fyrir heildarsvip fyrirtækis og skapar ákveðna ímynd. „Debenhams býður upp á sérstök fyrirtækjakvöld þar sem starfsmenn fá ráðgjöf um fataval í
samræmi við fatastaðal fyrirtækisins um leið og valinn er fatnaður
sem hæfir hverjum og einum,“ segir Anna Toher, þjónustustjóri Deb-
enhams í Smáralind.
Þeir sem óska eftir stílistaráðgjöf Debenhams bóka tíma og fá ráð-
gjöf um fataval, snið, samsetningu og það sem hæfir þeim best. Ráð-
gjöfin er bæði fyrir dömur og herra, enda selur Debenhams fatnað
fyrir karla og konur. „Við aðstoðum fólk við að finna hvað passar
því. Reynt er að draga fram persónuleika einstaklingsins um leið og
við aðstoðum hann við að fela það sem þarf að fela og draga fram
það sem koma má betur í ljós. Stílistaráðgjöfin er ókeypis og ekki er
skilyrði að kaupa það sem mátað er eða skoðað.“
Anna segir að fyrirtæki séu yfirleitt hætt að láta fólk klæðast ein-
kennisfatnaði en geri eftir sem áður kröfur um snyrtilegan klæðnað,
t.d. ekki í gallabuxum. „Ekki er allt fólk jafnöruggt um það hvernig
það eigi að klæða sig. Til að koma til
móts við þarfir fólks bjóðum við upp á
fyrirtækjakvöld fyrir t.d. 10 manna hópa
þar sem stílisti gefur ráð og reynt er að
skýra línur í fataval. Það fer að sjálfsögðu
mikið eftir því hvert fyrirtækið er en
stundum getur fólk þurft að taka mið af
viðskiptavinunum og reyna að koma til
móts við þá.“
Gott er að vita hvernig best er að
velja saman fötin svo þau nýtist sem
best. Í hinum fullkomna fataskáp eru 11
stykki sem blanda má saman á 47 mis-
munandi vegu.
Konum er skipt í fimm flokka eftir fatavali:
DRAMATÍSKA TÝPAN vill láta bera á sér, notar skraut og klæðir
sig svolítið ögrandi. Hún þekkir vel tískumerkin.
NÁTTÚRULEGA TÝPAN gengur í fötum úr náttúruefnum, hör
og bómull og leðri, er í þægilegum skóm og skreytir sig ekki mikið.
Fötin eru einföld og látlaust.
KLASSÍSKA TÝPAN velur klassískan fatnað með tímalausum
sniðum og litum sem endast. Hún er alltaf strokin og snyrtileg og
notar skartgripi í hófi.
LISTRÆNA TÝPAN blandar saman mörgum litum, mynstrum
og stílbrigðum og klæðist hátískufatnaði í bland við gömul föt og
hleður einni flík yfir aðra á skemmtilegan hátt.
TÍSKUTÝPAN þekkir tísku og merki vel. Hún notar einfalda liti
sem tóna saman og fyllir upp í með
einum aukalit. Fatnaðurinn er einfaldur,
úr góðum efnum.
DEBENHAMS
Náttúrulega týpan t.v.
og sú dramatíska t.h.
Á milli þeirra er klassíska
herratýpan.
Stílista-
ráðgjöf fyrir
starfsfólk
fyrirtækja
Anna Toher er þjónustustjóri hjá Debenhams þar sem boðið
er upp á stílistaráðgjöf.
Réttur fatn-
aður skapar
rétta ímynd
fyrirtækis.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
82
43
04
/2
00
5
ÞÚ HORFIR
Merkjabúð á tveimur hæðum
Í Debenhams finnurðu stórkostlegt úrval af fatnaði og gjafavöru á verði sem kemur þér í gott skap.
Herrajakkaföt 29.990 kr., herraskyrta 4.990 kr., herrabolur 2.490 kr., vínrekki úr leðri 9.990 kr., stálklukka 3.490 kr., Wedgewood Celestial Platinum bolli
2.490 kr., Wedgewood Celestial Platinum undirskál 2.390 kr., Wedgewood Celestial Platinum sykurkar 6.900 kr., veggklukka 5.990 kr., dömupeysa 3.590 kr.,
dömubuxur 6.990 kr., taska 3.490 kr., dömuskór 6.990 kr., barnahattur 1.490 kr., barnabolur frá 1.490 kr., barnapils 2.190 kr., barnastígvél 2.490 kr., strá
1.690 kr., leðurrammi 1.290 kr., viðarrammi 1.690 kr., bleik skál 1.290 kr., bleikur vasi 899 kr., geymslukassi 5.990 kr.