Frjáls verslun - 01.05.2005, Page 128
128 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
KYNNING
Þ að er alltaf eitthvað að gerast í kortaheim-inum, stöðugar tækninýjungar og breytingar á ferðinni, engin kyrrstaða,“ segir Anna Inga
Grímsdóttir, fjármálastjóri VISA. „Við erum byrjuð
á örgjörvavæðingu kreditkortanna og reiknum
með að henni ljúki fyrir áramót.“ Kortafyrirtæki
hafa þurft að glíma við aukin kortasvik erlendis
þar sem svikarar komast yfir kort manna, kópera
segulröndina og falsa ný kort auk þess sem þeir koma fyrir búnaði
við hraðbanka til að ná pin-númerum fólks.
„Svikararnir hafa lengi haft við tækninni en við bindum miklar
vonir við öryggið sem fylgir örgjörvunum. Byrjað var á að skipta út
öllum platínu- og gullkortum og tekur við hver týpan af annarri og
verkinu lýkur í árslok. Þetta hefur í för með sér að korthafar
verða að muna pin-númerið sitt því að framvegis verða
þeir að slá það inn til að staðfesta viðskiptin í stað þess að
notast við undirskriftir. Örgjörvavæðingin er ekkert smá-
verkefni því að 155 þúsund VISA kreditkort eru á Íslandi.“
Erlend færsluhirðing Að sögn Önnu Ingu eru mörg verkefni
í gangi hjá VISA og menn verða að vera á tánum til að fylgjast með
framþróuninni. „Nýjar búgreinar eru stöðugt að bætast við. Ein af
þeim nýrri er svokölluð erlend færsluhirðing. Innlend færsluhirðing
er sá hluti starfseminnar sem hefur verið stunduð frá upphafi og
snýr að söluaðilunum sem VISA hefur gert samninga við um að taka
við kortum hér og þjóna, en VISA er einnig farið að hirða færslur
fyrir erlenda aðila. Þetta eru fyrst og fremst netviðskipti þannig að
færslurnar koma hingað og VISA Ísland sér um uppgjör á þeim og
fær þóknun af viðskiptunum. Öll landamæri eru horfin í þessum við-
skiptum og nýir möguleikar hafa opnast. Þessi búgrein er skemmti-
leg viðbót við starfsemina sem fyrir er.
Fyrirtækjalausnir Segja má að kortamarkaðurinn hér sé nánast
mettaður og allflestir, sem aldur hafa til, komnir með kort. Þó er enn
eftir að innleiða kort í ríkara mæli í viðskiptum á milli fyrirtækja. Visa
býður nú fyrirtækjum Innkaupakort VISA sem er aðlagað að þörfum
hvers viðskiptavinar. Það er ætlað til innkaupa á aðföngum og lager-
vörum. Allar færslur birtast á Innkaupavef VISA sem hefur verið
aðlagaður að öllum helstu bókhaldskerfum. Með innleiðingu kort-
anna geta birgjar einfaldað innheimtuferli sitt og treyst á skilvirkar
greiðslur 2. dag hvers mánaðar.
Anna Inga hefur starfað hjá VISA síðan 1990 og
segist eiginlega vera alin upp í fjármálaheiminum.
Afi hennar var sparisjóðsstjóri og síðar faðir og sjálf
fór hún mjög ung að vinna í Búnaðarbankanum og
hefur allan sinn starfsaldur hrærst í bankaheimi
einnig eftir að hún kom til VISA en fyrirtækið er í
eigu bankanna eins og kunnugt er.
„VISA er skemmtilegt fyrirtæki að starfa hjá.
Það er orðið 22 ára og hér vinna um 100 manns. Flestir með mjög
langan starfsaldur og menn hætta ógjarnan nema þeir fari í nám eða
flytji af landi brott,“ segir Anna Inga Grímsdóttir að lokum.
VISA ÍSLAND
Örgjörvavæðingunni
lýkur fyrir áramót
Anna Inga Gríms-
dóttir hefur starfað
hjá VISA í 15 ár.
„Örgjörvavæðingin er
ekkert smáverkefni því
að 155 þúsund VISA
kreditkort eru á Íslandi.“