Frjáls verslun - 01.05.2005, Side 134
134 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
KYNNING
Mikill vöxtur hefur verið í starfsemi Eirvíkur frá því fyrir-tækið tók til starfa fyrir rúmum áratug. Eigendur eru hjónin Eyjólfur Baldursson og Þórdís Sigurgeirsdóttir en Eirvík
flytur inn heimilistæki frá fjölmörgum þekktum framleiðendum. Í
upphafi voru það Smeg-heimilistækin sem vöktu hvað mesta athygli
hjá Eirvík sem síðar hóf að selja Miele-tæki sem eru þekkt fyrir mikil
gæði að sögn Þórdísar Sigurgeirsdóttur, sem lengst af hefur starfað
við fyrirtækið við hlið manns síns.
„Eirvík byrjaði smátt en fyrirtækið hefur stöðugt
verið að auka hlutdeild sína í sölu heimilistækja, enda
alltaf verið með vörur frá þekktustu framleiðendum.
Við seljum nú mest af tækjum frá Miele,“ segir Þórdís.
Önnur þekkt merki hjá Eirvík eru Fischer&Paykel,
Elica, Liebherr og Eumenia svo nokkuð sé nefnt.
Nýverið var svo farið að selja tæki frá General Electric og Kenwood
í samstarfi við Heklu, sem flytur tækin inn. Seldir eru kæliskápar frá
General Electric og smærri heimilistæki frá Kenwood.
Miele er þekkt fyrir gæði og hugvit og ræður yfir fjölmörgum
einkaleyfum, t.d. tromlunni í Miele-þvottavélinni að sögn Þórdísar,
sem bætir við að Miele-vélin hafi verið sú fyrsta sem kom hingað
með íslensku stjórnborði.
Ryðfría stálið vinsælast. „Heimilistæki úr ryðfríu stáli njóta hvað
mestra vinsælda um þessar mundir þótt alltaf velji einhverjir hvít
tæki og einnig tæki úr áli. Fólk kemur oft og spyr hvort við séum
með „kámfrí“ stáltæki en svo er ekki. Framleiðendur tækjanna sem
við flytjum inn framleiða ekki slík tæki, enda er ekkert vandamál að
halda stálinu í tækjum þeirra gljáandi sé borið á það og það pússað
vel.“
Meðal nýjunga í heimilistækjum er gufuofn sem gufusýður t.d.
grænmeti og fisk. Hann er svo fullkominn að nóg er að láta hann
vita hvað á að elda þá stillir ofninn sig í samræmi við það. Þórdís
fullyrðir að matur soðinn í gufuofni sé margfalt bragðbetri en matur
soðinn í vatni.
Rétt er að nefna að hjá Eirvík eru til sölu gjafabréf
sem hafa verið vinsæl hvort heldur í brúðargjafir eða
við önnur tækifæri, enda henta smátækin sem fást í
versluninni mjög vel í gjafir auk þess sem gjafabréf
getur að sjálfsögðu gengið upp í kaup á stærri hlutum.
Eirvík selur ekki aðeins tæki til heimilisnota. Sam-
býli, stofnanir, hótel og gistiheimili velja gjarnan Miele-tæki og
íslenski skipaflotinn nýtur góðs af þeim líka. Vilji menn hins vegar
litla þvottavél má fá sér 3 kg, vandaða Eumenia-þvottavél sem einnig
hentar í sumarhúsið.
Eirvík er að Suðurlandsbraut 20 og hefur deilt húsnæði að
undanförnu með Trésmiðjunni Borg sem nú flytur í nýtt húsnæði.
Gott hefur verið að geta boðið eldhúsinnréttingar og heimilistæki
á sama stað og segir Þórdís mikla eftirsjá að Borgar-fólkinu en nú
verði sýningarrými verslunarinnar stækkað svo tækjaúrvalið fái
meira rými en að sjálfsögðu munu tæki frá okkur verða hjá Borg
framvegis sem hingað til.
Hlutdeild Eirvíkur
í heimilistækja-
sölunni fer stöðugt
vaxandi.
Þórdís Sigurgeirsdóttir sér um
starfsmanna- og auglýsinga-
mál hjá Eirvík en kemur víðar
við í rekstrinum.
EIRVÍK
Sérverslun með heimilistæki
Þórdís Sigurgeirsdóttir
sér um starfsmanna- og
augl‡singamál hjá Eirvík
en kemur ví›ar vi› í
rekstrinum.