Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 6

Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 6
6 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6 ekki á neinni sérstakri krísustjórnun að halda. Þeir hafa obbann af sínum málum á þurru og úrvalsvísitalan má lækka um 20% í frjálsu falla án þess að menn þurfi að fara á taugum. Hún væri eftir sem áður mjög há í sögulegu samhengi og hærri en í októ- ber sl. þegar flestir náðu ekki andanum af hrifningu yfir því hve há hún væri. ÉG HELD AÐ góður PR-maður segði við bankana núna að þeir ættu að vera óþrjótandi duglegir við að koma sínum sjón- armiðum á framfæri við fjölmiðla hér heima og erlendis og til helstu viðskiptavina sinna. Ennfremur að þeir ættu að hlusta með jákvæðni á þá gagnrýni sem dunið hefur á þeim og laga það sem augljóslega er hægt að laga fljótt og vel - og fer svona hræðilega fyrir brjóstið á erlendu greiningarfyrirtækjunum. Það verður þá bara minna að gagnrýna næst. ENNFREMUR HELD ÉG að góður PR-maður segði við stjórnendur bankanna að það hefði ekkert að segja að láta fjöl- miðla pirra sig og agnúast út í þá, væna þá um léleg vinnubrögð og segja þá hlutdræga í fréttaflutningi og illa upplýsta. Jafnvel þó þetta sé allt rétt og satt. Fjölmiðlar fara alltaf létt með að svara svona gagnrýni og grípa þá gjarnan til gömlu tuggunnar um að ekki þýði að skjóta sendiboðann og að ekki megi skerða tjáning- arfrelsið. Sumir fjölmiðlar hafa meira að segja svo mikið sjálfs- traust „að þeir hafa tamið sér að hafa alltaf rétt fyrir sér“. LOKS HELD ÉG að góður PR-maður segði við stjórnendur bankanna að staldra ekki of lengi við fortíðina og hvað þeir eigi að gera vegna umræðunnar að undanförnu – því þeir geti gleymt því að hægt sé að stjórna efnistökum fjölmiðla. Þeir ættu heldur að undirbúa sig fyrir næstu gusu og hafa svörin og athugasemd- irnar þá á hraðbergi. Það er enginn PR-karl svo klár að hann tryggi eftir á - þegar skaðinn er skeður. Neyðaráætlunin verður að vera tilbúin þegar snjóflóðið brestur á. ÞÁ MÁ EKKI gleyma því að Dönum finnst þeir niðurlægðir um þessar mundir og danskir fjölmiðlar munu aldrei hætta að spá því að Ísland sé á barmi gjaldþrots, að allt sé að hrynja eins og spilaborg og að Íslendingarnir verði að selja fyrirtækin frá sér. ÞAÐ SEM STJÓRNENDUR íslensku bankanna þurfa fyrst og fremst að átta sig á núna er að stóru útlendu bankarnir eru farnir að líta á íslensku bankana sem alvöru keppinauta - og eru tilbúnir til að sparka í þá. Uppgangur bankanna hefur verið með þeim hætti að það gætir öfundar í þeirra garð og hugsanlega hafa þeir stigið á tærnar á einhverjum í samkeppninni. Eitt geta bankarnir hins vegar verið vissir um; það kemur ný skýrsla og ný gusa. Jón G. Hauksson RITSTJÓRNARGREIN ÞAÐ HEFÐI EINHVERN tíma þótt saga til næsta bæjar að Morgunblaðið væri vænt um æsifréttamennsku. Engu að síður er það svo að mörgum í viðskiptalífinu finnst blaðið hafa haft þá ásjónu í frásögn sinni af dökkum erlendum skýrslum um íslensku bankana að undanförnu. Blaðið hefur verið leiðandi í fréttaflutningi íslenskra fjöl- miðla af þessum skýrslum og hefur sætt gagnrýni fyrir að birta hverja skýrsluna af annarri hráa þegar augljós gassagangur og rangtúlkanir eru í þeim. Þessi gagnrýni hefur verið réttmæt að mínu mati. Framsetning fréttanna hefur verið með þeim hætti að koll- steypa væri framundan. EN HANN ER greinilega vand- rataður meðalvegurinn þegar sagðar eru fréttir. Núna hefur þeirri umræðu skotið upp kollinum að íslenskir fjölmiðlar verði að gæta sín á því sem þeir segja. Hér er ég að vísa til ræðu sem Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður FL Group, flutti á aðal- fundi félagsins, en þar sagði hann að „ástæða væri til að hvetja þá sem hefja upp raust sína hér heima, hvort heldur sem um er að ræða stjórnvöld, einstaka stjórnmálamenn, fréttamenn eða álitsgjafa, að hafa það hugfast að tiltölu- lega saklaust neistaflug á hinu íslenska alþingi götunnar getur orðið að afdrifaríku báli á stærri markaðssvæðum og valdið viðkomandi fyrirtækjum og um leið samfélaginu öllu miklu tjóni.“ ÉG ER NOKKUÐ viss um að þessi orð Skarphéðins Bergs Steinarsson, sem er einn þekktasti maður viðskipta- lífins og stjórnarformaður í nokkrum stórfyrirtækjum á vegum Baugs, eigi eftir að falla í grýttan jarðveg. Sem fyrr- verandi stjórnarformaður Dagsbrúnar, útgáfufélags 365 miðla, ætti hann að vita að fátt er mikilvægara fyrir lýð- ræði hvers lands og framfarir en málefnaleg, hlutlaus og hispurslaus umræða um það sem er efst á baugi. Það er einmitt þannig sem á að segja fréttir - líka viðskiptafréttir um banka. ÞRÁTT FYRIR AÐ skýrslur erlendu mats- og greining- arfyrirtækja hafi dunið yfir bankana eins og hressilegar haustlægðir og fjölmiðlar sagt frá þeim eins og allt væri að fara til fjandans, þá held ég að íslensku bankarnir þurfi Þá má ekki gleyma því að Dönum finnst þeir niðurlægðir og danskir fjölmiðl- ar munu aldrei hætta að spá því að Ísland sé á barmi gjaldþrots. FRAMSETNING FRÉTTA: Æsifréttamennska um bankana?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.