Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 101
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6 101
Lýsing í kringum sumarbústaðinn í skammdeg-
inu getur verið þægileg og í sumum tilfellum
meira að segja falleg. Ýmsir halda því fram að
velupplýstir/flóðlýstir bústaðir verði síður fyrir
ásókn óboðinna gesta, en aðrir telja að ljósin
geti allt eins dregið þjófa að. Hvernig má rök-
styðja það?
Þægilegt er að koma að upplýstri heim-
keyrslu á dimmu vetrarkvöldi. Nokkrar leiðir
má fara til að hægt sé að njóta lýsingarinnar.
Sumir eru með tímastilla sem kveikja ljós á
ákveðnum tímum, aðrir eru með ljósnema
sem sjá til þess að ljósin kvikni þegar dimmir
og enn aðrir eru með hreyfiskynjara svo ljósin
kvikna við hreyfingu. Sé síðasta aðferðin
notuð kvikna ljósin þegar bíllinn ekur í hlað og
þegar fólk gengur heim að húsinu og síðan er
hægt að tendra ljósin á venjulegan hátt svo
þau slokkni ekki aftur af sjálfsdáðum.
Stjörnur og norðurljós týnast
Eitt af því skemmtilegasta á vetrarkvöldum
utan þéttbýlis er að njóta tunglskins, horfa á
stjörnur himinsins og dást að norðurljósunum
þegar veður leyfir. Ef allt of mikil lýsing er í
sumarbústaðahverfum getur þetta orðið nán-
ast ómögulegt.
En hugleiðum þetta með þjófana. Hræðast
þjófar upplýst hús eða dregur ljósið þá að
bústað þar sem augljóslega er ekki lifandi
hræðu að finna í næsta nágrenni? Gera ljósin
mönnum ekki bara auðveldara fyrir að ganga
beint til verks og athafna sig innan dyra sem
utan? Getur nágranni, sem kynni að vera ein-
hvers staðar nálægt, greint á milli eiganda
og þjófs ef bústaðurinn er upplýstur? Tæpast
nema hann þekki eigandann þeim mun betur
og mjög stutt sé milli húsa í hverfinu.
Sílogandi ljós geta því haft bæði kosti og
galla þótt kostirnir séu yfirgnæfandi þegar eig-
andinn er sjálfur á staðnum. Fallega upplýst
tré og runnar setja líka ótrúlega dularfullan
svip á umhverfið og sé vel farið með lýsing-
una er hún hið mesta happ sem fylgir því að
vera með rafmagn í bústaðnum. Kúri sumar-
bústaðirnir hins vegar í niðamyrkri þegar eig-
endurnir eru fjarri hlýtur að vera erfitt fyrir þjóf
að komast að þeim og erfitt að greina þá frá
ójöfnunum í landinu.
Hjarta sumarhússins
Lifandi eldur dregur fólk að sér eins og segull.
Seiðandi logarnir sem dansa í eldhólfinu, ylurinn sem breiðist út frá
ofninum og snarkið í kvistum sem springa í hitanum hafa þau áhrif
að flestir setjast við eldinn þegar búið er að kveikja upp og snúa
andlitinu að honum til að njóta hans til fulls.
Arinninn eða kamínan verða því ósjálfrátt hjarta sumarbústað-
arins þar sem hægt er að gleyma sér við að horfa í eldinn meðan
maður hitar kakóið sitt eða koníakið á arinhillunni.
Hjá mörgum verða arinn eða kamína fljótlega hluti af vist-
vænum lífsstíl fjölskyldunnar í sumarbústaðnum, því að í eldhólfinu
má brenna hluta af þeim úrgangi sem ekki fer í moltutunnuna og
eigandinn ber því heim mun minna af rusli en hann hefði annars
gert. Hitunarkostnaður frá annarri kyndingu minnkar og það sama
gerist með rafmagnskostnað vegna lýsingar.
Gífurlegt úrval er af örnum og kamínum á markaðinum og það
ætti ekki að vera vandi að finna einn sem passar í bústaðinn.
Lýsing til
góðs og ills
Ljós úr Lúmex lýsa upp umhverfi sitt.