Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 36
36 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
D A G B Ó K I N
VELGENGNI ER AÐ
GLÍMA VIÐ VERKEFNI
– OG FINNA LAUSNINA
Sú tilfinning sem fylgir því að ljúka verkefni á
farsælan hátt – stóru eða smáu, krefjandi eða
auðveldu – er engu lík.
Glitnir er á heimavelli á sviði fjármála og þar
býr bankinn að langri reynslu. Okkur þykir fátt
jafn gefandi og að finna snjalla lausn á flóknu
úrlausnarefni. Lausn sem skilar viðskiptavinum
okkar ávinningi.
FJÁRHAGSLEG VELGENGNI ÞÍN
ER OKKAR VERKEFNI
Í lögfræðilegri greinargerð,
sem unnin var fyrir Byko vegna
þessa máls, kom fram að það
gæti verið brot á jafnræðisreglu
stjórnsýslulaga að úthluta
Bauhaus lóð sem Byko hefur
sóst eftir fyrir svipaða starfsemi
árum saman.
Jón Helgi
Guðmunds-
son, stjórn-
arformaður
Byko, sendi
frá sér
yfirlýsingu
stjórnar Byko
vegna orða
Bauhaus, en
þar sagði m.a.:
„BYKO hafði aldrei afskipti
af viðræðum Bauhaus og Urriða-
holts um kaup Bauhaus á lóð
fyrir byggingarvöruverslun í
Urriðaholti í Garðabæ. Bauhaus
og Urriðaholt slitu sjálf viðræð-
unum án þess að BYKO hefði
neina vitneskju eða þekkingu
þar um. Eftir að þeim hafði verið
slitið kannaði Urriðaholt vilja
BYKO til kaupa á umræddri lóð
og viðræður á milli fyrirtækjanna
hófust.
Stjórn BYKO harmar að sjá
með hvaða hætti fyrirtækið
er dregið inn í umræðu sem á
sér enga stoð í veruleikanum.
BYKO hefur alltaf og mun alltaf
leggja sig fram um að þjóna við-
skiptavinum sínum í eðlilegu og
heilbrigðu samkeppnisumhverfi.
Því miður hafa forsvarsmenn
Bauhaus ítrekað farið með rangt
mál og reynt að sverta starfs-
hætti BYKO. Undarlegt er að sjá
þýskt stórfyrirtæki beita slíkum
vinnubrögðum við að koma sér
fyrir á markaðnum hér á landi.“
9. mars
Fjárfestingin í
Magasin búin
að borga sig
Hún vakti mikla athygli yfirlýsing
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar,
forstjóra Baugs, í samtali við
danska blaðið Börsen að fjárfest-
ing Baugs í Magasin du Nord sé
nánast búin að borga sig upp
enda hafi hún skilað 300 millj-
ónum danskra króna í hagnað
í næsta mánuði. Jón bætti því
svo við að stefna Baugs væri að
það fé sem það legði í fyrirtæki
í Danmörku og Bretlandi skil-
aði sér aftur í vasa eigendanna
innan þriggja ára og að það hefði
gengið eftir varðandi dönsku
verslunina Magasin. Það verður
fróðlegt að fylgjast með afkomu-
tölum Magasin á næstunni - en á
það skal bent að mikil fasteigna-
viðskipti fylgdu kaupum Baugs á
fyrirtækinu.
Jón Ásgeir Jóhannesson.
9. mars
Tilfinningar
þvælast ekki fyrir
Það voru fleiri en Jón Ásgeir sem
voru með yfirlýsingar við dönsku
fjölmiðlana um að fjárfestingar
Íslendinga séu að skila sér til
baka. Þannig sagði Hannes
Smárason, forstjóri FL Group, við
Börsen að útlit væri fyrir að hagn-
aður félagsins af rekstri Sterling
og Maersk Air fyrir skatta og
afskriftir næmi 345 milljónum
danskra króna á þessu ári, eða
um 3,9 milljarða króna. Hannes
bætti því við að velgengni
íslenskra fjárfesta í Danmörku
réðust m.a. af því að þeir létu
ekki stjórnast af tilfinningum.
10. mars
Róbert Melax
selur í Degi Group
Róbert Melax
hefur selt eign-
arhluti sína í
Degi Group
og Nordex til
Árdegis sem eru
í eigu hjónanna
Sverris Bergs
Steinarssonar
og Ragnhildar Önnu Jónsdóttur.
Þau hjón eiga núna bæði félögin
að fullu. Róbert átti meirihlutann
í Degi Group.
Í byrjun febrúar sl. seldi Dagur
Group fyrirtækið Senu til Dags-
brúnar. Dagur Group á og rekur
9 BT verslanir, 3 Skífuverslanir,
2 verslanir undir nafni Hljóð-
færahússins auk Sony Center í
Kringlunni. Nordex rekur verslun-
ina Next í Kringlunni. Þá rekur
Árdegi verslunina NOA NOA í
Kringlunni og fer fyrir fjárfestingu
í raftækjakeðjunni Merlin sem
rekur 48 verslanir í Danmörku.
15. mars
Allir sýknaðir í
Baugsmálinu
Héraðsdómur Reykjavíkur sýkn-
aði alla ákærðu í Baugsmálinu
af öllum átta ákæruliðunum.
Þetta mál er þó væntanlega
hvergi búið því flestir reikna
með að saksóknari sendi málið
fyrir Hæstarétt og sömuleiðis
að hann ákæri aftur í einverjum
þeirra 32 liða sem Hæstiréttur
vísaði frá vegna þess að ákær-
urnar væru ekki dómtækar.
Héraðsdómur féllst heldur ekki
á að fjórir ákærðu hefðu sett
fram rangar upplýsingar í árs-
reikningum Baugs. Lánin, sem
forsvarsmenn Baugs fengu frá
félaginu, þóttu ekki eiginleg lán,
eins og saksóknari hélt fram.
Jón Gerald Sullenberger var
lykilvitni ákæruvaldsins í ákæru
vegna tollalagabrota. Framburður
hans þótti ekki sannfærandi og
var það rökstutt af dómnum
þannig að vitað væri að hann
bæri þungan hug til Jóns Ásgeirs
Jón Helgi Guð-
mundsson.
Róbert Melax.
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði alla ákærðu í Baugsmálinu af
öllum átta ákæruliðunum.