Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 114
114 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
KVIKMYNDIR
TEXTI: HILMAR KARLSSON
Þ
að var ekki laust við að Hollywood kæmi upp í hugann
þegar fréttir bárust af hinu bíræfna ráni í Bretlandi á dög-
unum þar sem ræningjar stálu 50 milljón pundum, sem í
fyrstu virtist vera hið fullkomna rán. Svo reyndist þó ekki
vera og einhvers staðar á leiðinni missteig sig hópur ræn-
ingja sem höfðu undirbúið sig vel.
Oft hefur Hollywood gert kvikmyndir um nánast fullkomið rán,
þar sem yfirleitt er að finna einhverja bresti. Ef svo hið fullkomna
rán heppnast að öllu leyti er yfirleitt verið að ræna þá sem eru enn
verri en ræningjarnir, samanber Ocean’s Eleven og Ocean’s Twelve.
Oftar er þó um að ræða stórrán sem á að heppnast en heppnast
ekki. Nýlegt dæmi um slíka mynd er The Score, sem skartaði Mar-
lon Brando, Robert De Niro og Edward Norton í aðalhlutverkum.
Inside Man, sem frumsýnd er um þessar mundir í Bandaríkj-
unum og verður tekin til sýningar hér á landi í næsta mánuði er
stjörnum prýdd kvikmynd um fullkomið rán sem fer úrskeiðis.
Ekki er allt sem sýnist Clive Owen leikur hámenntaðan og bíræf-
inn bankaræningja, Dalton Russell, sem undirbýr og fremur hið
fullkomna bankarán í upphafi myndarinnar. Leyndin yfir ráninu er
þó ekki meiri en svo að ein færasta löggan í New York, harðjaxlinn
Keit Miller, sem Denzel Washington leikur, fær veður af því. Miller
á í persónulegum vandamálum, honum hafði mistekist illa í síðasta
verkefni sínu svo það er mikið í húfi fyrir hann að sanna sig, sér-
staklega þar sem hann á von á stöðuhækkun. Vitneskja og aðgerðir
Millers gerir það að verkum að bankaránið snýst upp í gíslatöku.
Ekki bætir úr skák fyrir Miller þegar þekktur og valdamikill lögfræð-
ingur með dularfulla fortíð, sem Jodie Foster leikur, fer að skipta
sér að málinu og gerir Miller erfitt fyrir. Um tíma er spurning hver
er kötturinn og hver er músin auk þess sem skilin á milli þess hvað
er rétt og hvað er rangt verða óljós.
Það sem kemur einna mest á óvart við Inside Man er að Spike
Lee skuli vera leikstjóri myndarinnar, en þetta er stærsta og dýrasta
kvikmynd sem hann hefur leikstýrt til þessa. Eina mynd hans sem
kemst eitthvað nálægt að umfangi er Malcolm X. Lee hefur hingað
til ekki verið hrifinn af stórmyndagerð í Hollywood, en sjálfsagt
hefur slæmt gengi síðustu mynda hans átt einhvern þátt í að hann
tók að sér að leikstýra Inside Man.
Áhrif Lees eru víða sýnileg Það efast enginn um að áhrif Spike
Lees á bandaríska kvikmyndagerð hafa verið mikil þegar kemur
að réttindabaráttu svartra. Hann hefur ávallt verið hvað harðastur í
að koma á framfæri meðbræðrum sínum af afrísk/amerískum upp-
runa á framfæri og margir af þekktustu svörtu kvikmyndaleikurum
í Hollywood geta að stórum hluta þakkað Lee frama sinn, má þar
nefna Laurence Fishbourne (School Haze), Samuel L. Jackson (Do
the Right Thing, Jungle Fever), Denzel Washington (Mo’ Better
Blues, Malcolm X, He Got Game), Wesley Snipes (Mo’ Better
Blues, Jungle Fever), Halle Berry (Jungle Fever) og Angela Basset
(Malcolm X). Öll voru þau lítt þekkt þegar þau léku fyrst fyrir Spike
Lee.
Þá hefur Lee haldið tryggð við marga karakterleikara af afrískum
uppruna. Giancarlo Esposito, Ossie Davis, Lonette McKee, Delroy
Lindo, Bill Nunn og Alfred Woodard eru allt leikarar sem hafa leikið
í mörgum mynda hans.
Spike Lee hefur á síðustu árum ekki bundið sig við leiknar kvik-
myndir, heldur jöfnum höndum verið að leikstýra heimildamyndum,
sjónvarpsmyndum, auglýsingum og tónlistarmyndböndum. Frá alda-
INNHERJINN:
Spike Lee sendir frá sér hefðbundna
Hollywood spennukvikmynd með
stórstjörnum í aðalhlutverkum.
BANKARÁN
SNÝST UPP Í GÍSLATÖKU
Clive Owen, Spike Lee
og Denzel Washington
við tökur á Inside Man.