Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 44
KYNNING44 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
Um síðustu áramót tóku til starfa tvö ný fjárfestingafélög, Hildingur ehf. og Upphaf ehf. Eru félögin
dótturfélög KEA. Móðurfélagið KEA er
einnig fjárfestingafélag sem hefur að mark-
miði að efla atvinnulíf og búsetuskilyrði á
starfssvæði eigenda sinna. Hildingur og
Upphaf líta fyrst og fremst til beinnar arð-
semi af fjárfestingum sínum. Þriggja manna
stjórnir leiða félögin og er formaður stjórna
beggja félaganna Halldór Jóhannsson,
framkvæmdastjóri KEA. Framkvæmdastjóri
beggja félaga er Bjarna Hafþór Helgason.
„Stofnun félaganna Hildings og Upp-
hafs var ákveðin á síðasta ári,“ segir Bjarni
Hafþór, „og eru þau 100% í eigu KEA. Hild-
ingur stundar hefðbundnar fjárfestingar og
er stofnfé félagsins 1200 milljónir króna.
Hins vegar er Upphafi ætlað að sinna fram-
taks- og nýsköpunarverkefnum. Stofnfé þess er 500 milljónir
króna. Heimild er síðan til að skuldsetja félögin um sömu
upphæð og stofnféð er. Auk þess getur móðurfélagið aukið
hlutafé ef svo ber undir.“
Andvirði eigna sem Hildingur hefur þegar fjárfest í er um
300 milljónir króna og í farvatninu eru ýmis verkefni sem er
verið að huga að.
Umtalsverð fjárfestingageta
Bjarni Hafþór segir eðlismun vera á félög-
unum tveimur. „Hildingur einbeitir sér fyrst
og fremst að hreinum arðsemisfjárfest-
ingum í þroskuðum fyrirtækjum og umbreyt-
ingarverkefnum. Fjárfestingageta Hildings
er umtalsverð og markmiðið er að félagið
sé eftirsóknarverður samstarfsaðili um
hvers kyns arðvænleg fjárfestingaverkefni,
svo sem um útvíkkun á starfsemi félaga,
sameiningar og fjárhagslega endurskipu-
lagningu. Í Hildingi erum við sjálfir að leita
eftir tækifærum til að fjárfesta og erum
meðal annars í sambandi við fyrirtækja-
miðlara. Við erum tilbúnir að skoða alla
möguleika; við veltum fyrir okkur að kaupa
fyrirtæki og flytja þau til Akureyrar og eins
að kaupa fyrirtæki og reka þau þar sem
þau eru staðsett og selja okkur síðan út úr
þeim. Við getum einnig vel hugsað okkar að fjárfesta erlendis,
þannig að við erum opnir fyrir tækifærum hvar sem þau bjóð-
ast.
Hvað varðar það svæði sem við teljum okkar félagssvæði,
sem er Eyjafjörður og Þingeyjarsýslur, þá er markmiðið að
byggja þar upp öflug fyrirtæki sem skila arði og nýta þann arð
til að byggja upp önnur fyrirtæki á svæðinu. Við fjárfestingar
Leitað eftir
tækifærum
með arðsemis-
sjónarmið í huga
TEXTI: HILMAR KARLSSON • MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON ofl.
Fjárfestingafélagið Hildingur og Upphaf Fjárfestingageta
Hildings er umtals-
verð og markmiðið
er að félagið sé
eftirsóknarverður
samstarfsaðili um
hvers kyns arðvænleg
fjárfestingaverkefni.
Bjarni Hafþór Helgason, framkvæmda-
stjóri Hildings og Upphafs.