Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 9
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6 9
upphitunar á ferskvatni og til framleiðslu á rafmagni. Jarðhita-
vökva um 80°C heitum, sem ekki er nýttur í orkuverinu, er
hleypt út á hraunbreiðuna, þar er hann blandaður þéttivatni
háhitagufunnar og myndar Bláa lónið. Einstakt lífríki ásamt
miklu magni af náttúrulegum steinefnum, kísli og sérstökum
blágrænum þörungi mynda mjúkan hvítan leirinn í lóninu og
gefa því sinn sérstaka bláa lit.
Friðrik getur þess að Hitaveita Suðurnesja sé byrjuð á 30
megavatta viðbót við Svartsengi, er ætlunin að ljúka verkinu
í lok næsta árs og er búið að selja helming orkunnar til Norð-
uráls. „Staða okkar á markaðinum styrkist þegar stækkun
Svartsengis kemur inn í reksturinn. Allt sem við sækjum nú
er kostnaðarauki fyrir okkur en ætlunin er að breyta því með
þeirri aukningu á orku sem við getum boðið þegar viðbótin
við Svartsengi kemur.“
Reykjanesvirkjun
Reykjanesvirkjun tekur til starfa 1. maí næstkomandi og
hefur raforkusölu til Norðuráls á Grundartanga. „Þetta er
langstærsta verkefnið sem við höfum ráðist í og er stærra en
allt Svartsengi sem byggt var í fimm áföngum,“ segir Júlíus.
„Um er að ræða 100 MW stöð á Reykjanesinu sem við ætlum
að gangsetja 1. maí næstkomandi. Mun Norðurál kaupa 80
MW á ársgrundvelli næstu 20 árin og 20 MW til 5 ára.“
Orkuverið á Reykjanesi kemur til með nýta jarðgufu úr
jarðgeymi þar sem hitastig er frá 290 til 320°C og má búast
við að hver hola skili 9-13 MW af rafafli. Ekki hefur áður verið
reynt að nýta svo heita gufu til slíks verkefnis og má því segja
að hið nýja orkuver verði hið fyrsta sinnar tegundar í heim-
inum. Notast verður við háan inntaksþrýsting við framleiðsl-
una til að losna við útfellingar en hætt er við að vatnsdropar í
öftustu þrepum hverflanna valdi auknu sliti.
Þekking og reynsla
Hjá Hitaveitu Suðurnesja er að finna mikla þekkingu og
reynslu í að nýta auðlindirnar, þekkingu sem hefur orðið til
við að virkja Svartsengið og er hlúð að þeirri þekkingu. „Þessi
þekking og reynsla hefur komið að góðum notum við Reykja-
nesvirkjun,“ segir Júlíus. „Staðreyndin er að Reykjanesið er
erfitt svæði, erfiðara en Svartsengi og mun erfiðara en Nesja-
vellir, sem eru með mjög lítið magn sjávarseltu.“
Hvað varðar framtíðina þá er Júlíus bjartsýnn fyrir hönd
Hitaveitu Suðurnesja. „Við munum skapa okkur tækifæri í
framtíðinni. Við erum að fara að bora aðra holu í Trölladyngju
en við boruðum eina holu þar 2001 og þar má segja að sé
framtíðarverkefni fyrir okkur. Eins erum við með rannsóknir í
Krýsuvík, þannig að nóg er um svæði þegar þörf er fyrir meiri
orku. Og í ljósi nýrra laga leggjum við okkur fram um að vera
samkeppnishæfir í verði og bjóða áfram góða þjónustu.“
Brekkustíg 26 (aðalskrifstofur)
232 Reykjanesbær
Sími: 422 5200 • Fax: 421 4727
Netfang: hs@hs.is • Netsíða: www.hs.is
Líkan af sólinni mun prýða sýninguna og hefur hér
verið sett inn á teikningu af stöðvarhúsinu.
Orkuverið Jörð
Í tilefni opnunar Reykjanesvirkjunar 1. maí verður efnt til
sýningar um orkuna sem hefur hlotið nafnið Orkuverið
Jörð. Þessi sýning hefur lengi verið í undirbúningi og margt
mun þar koma hinum almenna notanda orkunnar á óvart.
Sýningin hefst fyrir utan orkuverið, þar sem hún er kynnt og
gestir leiddir að henni. Við bílastæðin verður sett upp líkan
af sólinni sem verður þrír metrar í þvermál og upphitað. Út
frá sólinni verður sólkerfið sett upp í réttum hlutföllum og
gangstígar gerðir til plánetna kerfisins. Þannig verður jörðin
álíka stór og borðtenniskúla og fjarlægasta stjarnan, Plútó,
verður að líkindum nærri Bláa lóninu svo dæmi séu tekin.
Upplýsingar verða við sólarlíkanið og pláneturnar.