Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 67
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6 67
E
llert Vigfússon, forstjóri Asíu-
og Ameríkudeildar Icelandic
Group, hefur ekki setið auðum
höndum yfir ævina og á skemmti-
legan feril að baki. Eftir mennta-
skóla gekk hann í lögregluna. Ellert er einn
af stofnendum Víkingasveitarinnar, hann
hefur stundað sjóinn, kafað eftir ígulkerum
og leikið handbolta með
landsliðinu. Í dag höndlar
hann með fisk og fiskaf-
urðir í Asíu og Ameríku.
Ellert er fæddur 10.
júní 1955 í kjallaraíbúð í
Mávahlíð 3 í Reykjavík.
Foreldrar hans eru Vigfús
Tómasson og Kristín Val-
gerður Ellertsdóttir, Vig-
fús starfaði mestan hluta
ævinnar sem framleiðslu-
og sölustjóri hjá Sláturfélagi Suðurlands
en Kristín annaðist heimilið. Um fimm ára
aldur flutti hann ásamt foreldrum sínum
og systur, Elínu Vigfúsdóttur, í Bústaða-
hverfið þar sem hann ólst upp og gekk í
skóla. Líkt og aðrir strákar í Bústaðahverf-
inu æfði hann fótbolta með Víking en
þegar leið á unglingsárin hætti hann í boltaí-
þróttum um tíma. Að loknu skyldunámi fór
hann í Menntaskólann við Tjörnina. Hinrik
Morthens, skólafélagi Ellerts úr mennta-
skóla, segir að eins og gengur og gerist
hafi Ellert haft mismunandi áhuga á fögum
og að þeir hafi eytt drjúgum tíma á gamla
Billanum að spila upp á geim. „Þetta er járn-
karl og hann hafði lítinn tíma fyrir skólann.
Hann er afskaplega vel gefinn og ég held
hreinlega að honum hafi þótt námið of auð-
velt til að nenna að stunda það.“
Eftir stúdentspróf, árið 1975, lá leið Ell-
erts í lögregluna, fyrst sem sumarmaður, en
síðar sótti hann nám í Lögregluskólanum.
Hann byrjaði að æfa sem
markmaður í handbolta
með lögguliðinu 1978
en fljótlega eftir það fór
hann að æfa með Vík-
ingi undir stjórn Bogdan
Kowaltsic. Ellert segir
að það hafi verið mjög
góður tími því liðið hafi
bæði verið sigursælt og
skemmtilegt. Hann spil-
aði með Víkingi til ársins
1985 en flutti sig yfir til Vals 1986. Ellert
var í landsliðinu í handbolta og lék meðal
annars á heimsmeistaramótinu 1986 sem
haldið var í Sviss. „Ég var nú yfirleitt þriðji
markmaður en fékk þó að leika nokkra
leiki.“ Páll Björgvinsson, sem var fyrirliði
Víkings í handbolta, segir að Ellert hafi
komið seint inní boltann en að hann hafi
náð skjótum frama. „Ég efast ekki um að
hann hefði geta orðið atvinnumaður hefði
hann byrjað að æfa fyrr.“ Ellert varð frægur
fyrir það að vera eini markmaðurinn sem
lék í stuttbuxum og því hefur verið haldið
fram að hann hafi gert það til að gíra sig
upp. Páll segir að það geti svo sem vel
verið. „Hann er hörkutól en persónulega
held ég að hann hafi bara gert þetta af sýn-
ingarþörf.“
Einn af stofnendum Víkingasveitarinnar
Ellert segir að hann hafi alltaf verið ævin-
týramaður í sér og að það hafi verið þess
vegna sem hann sótti um í lögreglunni.
Hann hóf störf sem almennur lögreglu-
þjónn og starfaði sem slíkur í fjögur ár þar
til hann skipti yfir í umferðardeild en að
lokum var hann fluttur yfir í fíkniefnadeild.
Árið 1982 var Ellert sendur til Noregs
ásamt þremur félögum sínum úr lögregl-
unni til þess að undirbúa stofnun Víkinga-
sveitar lögreglunnar. Ellert segir að þeir
félagarnir hafi sótt ansi stíft þriggja vikna
námskeið þar sem þeir hafi hver um sig
misst tæp tíu kíló þrátt fyrir að þeir hafi
allir verið í góðu líkamlegu formi. Eftir að
heim kom stóðu þeir svo fyrir námskeiðum
og stjórnuðu æfingum fyrir væntanlega vík-
ingasveitarmenn. Ellert hætti í lögreglunni
árið 1986. „Mér fannst einfaldlega kominn
tími til að breyta til.“
Magnús Einarsson fyrrverandi yfirlög-
regluþjónn og yfirmaður Ellerts í víkinga-
sveitinni ber honum vel söguna og segir
að Ellert sé afskaplega góður drengur að
sínu mati. „Þetta er mjög traustur, duglegur
og vinnusamur strákur en hann hefur ríkt
skap. Honum leiðist alveg rosalega að gera
eitthvað sem hann sér ekki tilganginn með
og hann á erfitt með að þola droll eða leti
meðal samstarfsmanna sinna og hann vill
hafa reglu á hlutunum.“
Ellert kynntist Jóhönnu Sigríði Njáls-
dóttur, eiginkonu sinni, í Lögregluskólanum
og þau giftu sig 1977. Þau eiga tvær dætur,
Kristínu Valgerði sem er tuttugu og fjögurra
ára og Elínu Þóru sem er sextán ára.
E L L E R T V I G F Ú S S O N Í N Æ R M Y N D
Honum leiðist alveg rosa-
lega að gera eitthvað sem
hann sér ekki tilganginn
með og hann á erfitt með
að þola droll eða leti
meðal samstarfsmanna
sinna og hann vill hafa
reglu á hlutunum.
„TRAUSTARI EN STÁL“
Ellert Vigfússon, framkvæmdastjóri hjá Icelandic
Group, er ævintýramaður sem þykir traustari
en stál. Hann var mikill íþróttamaður, stundaði
köfun, var í Víkingasveitinni og stofnaði Sjóvík.
TEXTI: VILMUNDUR HANSEN
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON