Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 48
48 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
Lögmanna Laugardal sem er lögmannsstofa Karls Georgs. Fjár-
málaeftirlitið hefur haldið því fram að tilteknir kaupendur stofnfjár
virðist ekki hafa reitt fram greiðslur í tengslum við kaup þeirra. Þá
blandast dótturfélag Baugs Group, A. Holding, inn í þetta magnaða
SPH-mál þar sem það fjármagnaði kaup á
bréfum með því að leggja 1,9 milljarða inn
á reikning Lögmanna Laugardal - í þeim
tilgangi að ávaxta sitt pund.
Björn fékk 84 milljóna starfslokasamn-
ing
Eitt fyrsta verk nýrrar stjórnar í fyrravor
var að segja upp nýráðnum sparisjóðs-
stjóra, Birna Inga Sveinssyni, fyrrum borg-
arverkfræðingi. Björn hafði gegnt starfinu
í aðeins fjóra mánuði og það kostaði sitt að losna við hann. Starfs-
lokasamningurinn við Björn Inga kostaði sparisjóðinn 84 milljónir.
Magnús Ægir Magnússon var ráðinn sparisjóðsstjóri í hans stað
og stýrir núna sparisjóðnum. Sparisjóður Hafnarfjarðar er næst-
stærsti sparisjóður landsins. Þrátt fyrir þessa stærð hafa verið
mjög fáir stofnfjáraðilar; 45 lengst af. En tveir fulltrúar bæjarins,
sem sátu í stjórninni, Ingvar Viktorsson og Gissur Guðmundsson,
bættust við fyrir tveimur árum og þar með urðu stofnfjáreigendur
47 talsins. Núna eru þeir hins vegar 31.
Fjármáleftirlitið og ríkislögreglustjóri
Allt frá því að stjórnarbyltingin í Spari-
sjóði Hafnarfjarðar var gerð í fyrravor
hefur Fjármálaeftirlitið (FME) rannsakað
viðskipti með stofnfjárbréf í aðdraganda
aðalfundarins í þeim tilgangi að kanna
hvort þar hafi myndast „virkur eignar-
hlutur“ stofnfjáreigenda fyrir aðalfundinn
í fyrravor. Harka færðist svo í leikinn
í byrjun þessa árs þegar efnahagsbrota-
deild ríkislögreglustjóra hóf rannsókn
á viðskiptunum með stofnfjárbréfin að
beiðni Fjármálaeftirlitsins.
Virkur meirihluti í 40 ár?
Ásökunum Fjármálaeftirlitsins um „virkan eignarhlut“ hefur verið
harðlega mótmælt af þeim sem stóðu að áhlaupinu í fyrravor. Þeir
hafa sagt sem svo; að fyrst Fjármálaeftirlitið líti svona á málið - þá
skuli það líta sér nær, því þá hafi stjórn SPH undir stjórn Matthí-
F R É T T A S K Ý R I N G - S P A R I S J Ó Ð U R H A F N A R F J A R Ð A R
Hæstaréttarlögmennirnir Karl Georg
Sveinbjörnsson og Sigurður G. Guð-
jónsson hafa haft milligöngu um
viðskipti með stóran hluta stofnfjár-
bréfa í SPH og hafa greiðslurnar
runnið í gegnum fjárvörslureikninga
lögmannsstofu Karls Georgs.
Þau hljóta að hafa verið þungstíg sporin hans Matthíasar Á Mathiesen, fyrrum
ráðherra og alþingismanns og formanns
stjórnar Sparisjóðs Hafnarfjarðar til 40 ára,
þegar hann yfirgaf aðalfund sparisjóðsins
20. apríl í fyrra. Nýr meirihluti var tekinn við
völdum, hallarbylting orðin staðreynd.
Matthías og félagar höfðu barist til
þrautar. En þegar upp var staðið lá niður-
staðan fyrir: Listi fráfarandi stjórnar, A-listi,
hlaut þar 22 atkvæði en B-listi, undir for-
ystu Páls Pálssonar, framkvæmdastjóra í
Firði - verslunarmiðstöð, hlaut 23 atkvæði
og sigraði. Stofnfjáraðilar voru 47 talsins,
einn skilaði auðu og einn stofnfjáraðili
mætti ekki á fundinn, það var hinn kunni
athafnamaður, Helgi Vilhjálmsson, jafnan
kenndur við Góu.
Sólarhring fyrr höfðu Páll Pálsson for-
ystumaður B-lista og Sigurður Þórðarson,
ríkisendurskoðandi og skráður stofnfjár-
eigandi frá A-lista, og Bjarni Þórðarson,
varaformaður stjórnar, fundað til að kanna
möguleika á að bjóða fram sameiginlegan
lista. Niðurstaða af þeim fundi var skýr:
engir samningar.
Aðalfundurinn var harðvítugur eins og
þeir vita sem hann fengu að sitja og stóð
í fimm klukkustundir. Kjósa þurfti um alla
hluti, t.d. um það hvort aðstoðarmönnum,
þ.m.t. lögmönnum, sem ekki voru á lista
yfir ábyrgðarmenn/skráða eigendur stofn-
fjárbréfa, skyldi heimil seta á fundinum.
Sú heimild var loks samþykkt. Þá hafa
andstæðingar Matthíasar sagt að hann
hafi gleymt að leggja listann fram þremur
dögum fyrir fundinn og listinn hafi nánast
verið settur saman á sjálfum aðalfundinum.
Hörð orð féllu úr herbúðum A-liðsins.
Matthías gekk sjálfur á milli manna og
reyndi að auka
fylgið; koma
saman auknum
stuðningsmanna-
lista við A-lista
sitjandi stjórnar.
B-listinn taldi sig
hafa nálægt 33
atkvæðum. Þau
reyndust 23 í kosn-
ingunni. Eitt atkvæði felldi risann. Konung-
dæmi féll á einum manni.
Heimildamenn segja engan vafa leika á
því að Páll Pálsson forystumaður B-listans,
sem tók við stjórnarformennskunni í SPH
eftir fundinn, hafi boðið skráðum eigendum
stofnfjárbréfa að sjá um sölu bréfanna á
tilteknu verði að því tilskildu að þeir styddu
framboð B-listans á aðalfundinum í apríl
2005.
ÞUNGSTÍG SPOR MATTHÍASAR
Matthías Á.
Mathiesen.
Þungstíg spor af
aðalfundinum í fyrra
eftir formennsku í
nær 40 ár.
TEXTI: JÓNAS GUNNAR EINARSSON