Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 31
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6 31
D A G B Ó K I N
20. febrúar
Eins og fuglinn Fönix
Berlingske Tidende sagði frá því
að tekjur dönsku verslunarinnar
Illum hefðu aukist um 14% í jan-
úar frá sama mánuði í fyrra og
að verslunin væri nú að rísa úr
öskustónni, eins og fuglinn Fönix
eftir margra ára taprekstur. Illum
er í eigu Baugs Group.
21. febrúar
Bjarni með 80
milljónir í árslaun
og hlunnindi
Í ársreikningi Íslandsbanka (núna
Glitnis) kom fram að Bjarni
Ármannsson, forstjóri bankans,
hefði fengið 80 milljónir króna í
laun og hlunnindi á síðasta ári.
22. febrúar
Exista og Síminn
með 38% í Kögun
Eftir tvenn kaup
í febrúar voru
Exista og Síminn
komin með 38%
í Kögun og voru
rétt undir mörk-
unum um yfir-
tökuskyldu. Sím-
inn keypti tæpan
27% eignarhlut
snemma í febrúar og Exista kom
svo í kjölfarið og keypti 11%
hlut. Þriðji stærsti hluthafinn
í Kögun var Teton, með 8,6%
hlut, en það félag er í eigu Gunn-
laugs Sigmundssonar, forstjóra
Kögunar, og stjórnarmannanna
Arnar Karlssonar og Vilhjálms
Þorsteinssonar.
Teton og aðaleigendur þess
áttu ásamt starfsmönnum Kög-
unar nær 18% hlut í félaginu.
Straumur-Burðarás átti 8,4% og
Iða fjárfesting 6,8% hlut. Ljóst
er að Síminn og Kögun ætluðu
að vinna nánar saman eftir þessi
kaup á sviði fjarskipta og upplýs-
ingatækni.
Þess má geta að Exista er
stærsti eigandinn í Símanum
með tæpan 44% hlut.
Í samstæðu Kögunar eru
dótturfélögin Verk- og kerfis-
fræðistofan, Kögurnes, Ax hug-
búnaðarhús, Hugur, Landsteinar
Strengur, Skýrr, Teymi, Opin
Kerfi Group Holding ehf. og
Hands ASA.
22. febrúar
Olsen, Olsen
vegna Fitch
Velta má því fyrir sér hvort
danskir blaðamenn séu að fara
á taugum yfir fjárfestingum
Íslendinga í Danmörku. Þegar
Berlingske Tidende fjallaði um til-
kynningu alþjóðlega matsfyrirtæk-
isins Fitch Ratings um lánshæfi
íslenska ríkisins, sagði blaðamað-
urinn Lars Olsen að lánstraust
Íslands á alþjóðavettvangi væri
brátt á þrotum. Þess má geta að
inntakið í skýrslu Fitch Ratings
var að of mikið mæddi á Seðla-
banka Íslands einum í baráttunni
við verðbólgu og hvatti fyrirtækið
íslenska ríkið til að draga úr fram-
kvæmdum til að minnka þenslu.
En útkoman hjá Lars þessum
varð eiginlega Olsen, Olsen; láns-
traust Íslands brátt á þrotum.
23. febrúar
Fitch og bankarnir
Þrátt fyrir að alþjóða mats-
fyrirtækið Fitch Ratings breytti
horfum ríkissjóðs úr stöðugum
í neikvæða þá metur fyrirtækið
horfur á lánshæfismati íslensku
bankanna vegna skuldbindinga
í innlendri og erlendri mynt
stöðugar.
Lánshæfismatsfyrirtækið
Fitch staðfesti allar lánshæfis-
matseinkunnir íslensku bank-
anna eins og þær voru fyrir.
Lánshæfismatseinkunnir íslensku
bankanna eru eftirfarandi: Kaup-
þing banki, Landsbanki og
Íslandsbanki fá allir sömu ein-
kunnir - til langs tíma A, skamm-
tíma F1, fjárhagslegur styrk-
leiki B/C og horfur stöðugar.
Straumur Burðarás fær til langs
tíma BBB (BBB mínus), skamm-
tíma F3.
25. febrúar
Pálmi heldur í
Iceland Express
Þegar fréttir bárust um það
snemma í febrúar að til stæði að
skrá Icelandair í Kauphöllina til
að selja hluta af því og fá nýja
meðeigendur komu fljótlega fram
fréttir um að Pálmi Haraldsson,
annar eigenda Fons, vildi hætta
við að selja Fons. Sú hefur orðið
raunin. Það hefur
verið tekið úr
sölumeðferð og
verður því áfram
í eigu Fons.
Ástæðan er sú
að Pálmi telur
ekki um hags-
munaárekstra
að ræða þegar FL Group verður
aðeins einn margra eigenda að
Icelandair Group, en Fons er hlut-
hafi í FL Group. Iceland Express
er skilgreint sem einn helsti
keppinautur Icelandair.
27. febrúar
79 milljarðar eru
ekkert vandamál
Dagsbrún skortir ekki fé ef
marka má viðtal norska dag-
blaðsins Dagens Næringsliv við
Gunnar Smára Egilsson, forstjóra
Dagsbrúnar. Hann segir að Orkla
Media hafi gott af því að fá nýja
eigendur, enda hafi hann þá til-
finningu eftir fund með fólki frá
Orkla Media að það hefði ekki
áhuga á að leiða félagið áfram.
Hefur blaðið eftir Gunnari Smára
að Dagsbrún hafi meiri áhuga á
dönskum fjölmiðlum í eigu Orkla
Media en norskum og að fjár-
mögnunin 79 milljarðar íslenskra
króna væri ekkert vandamál fyrir
Dagsbrún.
Bjarni Ármannsson.
Erlendur
Hjaltason,
framkvæmda-
stjóri Exista.
24. febrúar
MOODY’S EKKI Í TAKT VIÐ FITCH
Morgunblaðið sagði frá því
að alþjóðamatsfyrirtækið
Moody´s gæfi ríkissjóði
Íslands einkunnina AAA
sem væri hæsta einkunn
fyrirtækisins. Í samtali við
Kristin Lindow, sérfræðing
hjá Moody´s, kom fram að
fyrirtækið hefði alls ekki séð
ástæðu til að breyta horfum
á lánshæfismati ríkissjóðs.
Enda væru skuldir ríkissjóðs
mjög litlar og hann vel í
stakk búinn að mæta hugsan-
legum skakkaföllum.
Pálmi
Haraldsson.