Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 86
86 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
SUMARHÚS
KYNNING
F átt er eftirsóknarverðara en glæsilegt frístundahús með stór-brotnu útsýni á góðu landi og helst ekki allt of langt frá Reykja-vík. Frístundahúsin sem nú eru að rísa í landi Syðri-Brúar og
Búrfells I í Grímsnesi uppfylla öll þessi skilyrði og meira til og eru
auk þess í aðeins 65 km fjarlægð frá höfuðborginni. Litlir læknir
renna um margar lóðirnar og þar eru tjarnir á stangli auk þess sem
gróður er fallegur og berjalönd og afþreying á næsta leiti.
Það er fyrirtækið Landmenn ehf. sem stendur að uppbyggingu
á jörðunum Syðri-Brú og Búrfelli I í Grímsnesi en eigendur þess
eru Steinar Árnason byggingameistari, Sigurður Másson á Geysi
í Haukadal og Árni Steinarsson. Skammt er síðan landið undir frí-
stundahúsin var keypt og ætlunin var að það byggðist upp á næstu
tíu árum en eftirspurnin hefur verið svo mikil að hluti landsins
er seldur og bústaðir á löndin sömuleiðis, að sögn Steinars Árna-
sonar.
Gott land og vandaðir bústaðir
Á jörðunum tveimur hefur verið skipulagt land undir um 300 sumar-
bústaði. Í byrjun var ráðgert að leigja löndin en í ljós koma að miklu
meiri áhugi var á að kaupa þau en leigja svo ákveðið var að fara þá
leið. Þremenningarnir standa ekki aðeins að skipulagi og sölu lands
heldur reka þeir Bústaðasmiðjuna að Syðri-Brú og þar eru smíðuð
sumarhús, innandyra, og síðan eru þau flutt og sett niður á löndin
eftir óskum kaupenda. Það sem gerir skipulagið þarna sérlega
skemmtilegt er að í boði hafa verið fjórar ólíkar gerðir sumarhúsa,
m.a. finnsk bjálkahús, og senn bætast við fjórar gerðir til viðbótar
svo yfirbragð frístundasvæðisins verður líflegt og fjölbreytilegt
með misstórum og ólíkum húsum.
Í Bústaðasmiðjunni eru smíðuð hús allt frá 20 fermetrum upp í
hátt á annað hundrað fermetra en Steinar segir að flestir velji hús í
stærri kantinum. Einu sinni hafi 50-60 fermetra bústaður þótt stór
en nú sé algengt að bústaðir séu 70-80 fermetrar og sumir séu jafn-
vel 170 fermetrar. Þegar hús eru orðin þetta stór er vart hægt að
tala um frístundahús eða sumarhús, enda eru þetta heils árs hús og
ekkert að vanbúnaði fyrir fólk að búa í þeim allt árið.
Útsýnið er engu líkt
Lóðirnar í landi Búrfells I eru í suðvesturhlíðum fjallsins þar sem
útsýni verður því stórbrotnara sem ofar dregur. Þarna má virða
fyrir sér Sogið, Álftavatn, Hvítá, Ölfusá og Selfoss fyrir utan fjalla-
hringinn til vesturs og austurs. Landið hefur verið friðað fyrir
ágangi búfjár í nokkur ár og sér þess merki því að víðikjarrið er
þegar orðið fyrirferðarmikið. Á landinu eru líka margir litlir lækir
sem Steinar kallar krakkalæki þar eð þeir eru ekki stærri en svo að
óhætt er að leyfa börnum að
busla í þeim og stífla þá
sér til skemmtunar. Úr
Syðri-Brúarlandinu sem
BÚSTAÐASMIÐJAN:
Frístundahús á draumastað
með stórfenglegu útsýni
Steinar Árnason
virðir fyrir sér útsýnið
af palli húss í landi
Búrfells I.