Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 50

Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 50
50 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6 Er verið að leggja SPH í einelti? Rannsókn Fjármálaeftirlitsins hefur verið gagnrýnd með þeim orðum að nánast sé verið að leggja SPH í einelti á meðan stórfelld viðskipti í SPRON og Sparisjóði vélstjóra séu látin afskiptalaus. Í stuttu máli: Að jafnræðisreglan, þ.e. að allir séu jafnir fyrir lög- unum, sé því þverbrotin í þessu máli. Í greinargerð, sem stjórn SPH sendi frá sér 13. janúar sl. í kjöl- far þess að efnahagsbrotadeild lögreglunnar hóf rannsókn sína, sagði: „Stofnfé SPRON var sett á opinn markað fyrir tveimur árum og síðan þá hefur stofnfjáraðilum í sjóðnum fækkað úr 1.105 í 808. Núna eiga 20 stærstu stofnfjáreigendurnir í sjóðnum 62% af stofnfé hans. Í byrjun þessa árs skiptu 8% af stofnfé SPRON um eigendur í einu lagi. Kaupverðið var 1.400 milljónir og var kaupandinn félag að nafni Tuscon Partners Corporation. Þá má nefna umfangsmikil kaup MP fjárfestingabanka í Sparisjóði vélstjóra á síðustu vikum. Ekki er að sjá að þessi miklu viðskipti með stofnfé hafi sætt athugasemdum af hálfu Fjármálaeftirlits- ins.“ Samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki skapast „virkur meiri- hluti“ við 10% eða meira af eigin fé, stofnfé eða atkvæðisrétti. Í lög- unum segir um sparisjóðina: „Þó er einstökum stofnfjáreigendum aldrei heimilt, fyrir sjálfs sín hönd eða annarra, að fara með meira en 5% af heildaratkvæðamagni í sparisjóði, hvort sem yfirráð yfir atkvæðisrétti byggjast á beinni eða óbeinni hlutdeild í stofnfé spari- sjóðsins.“ Fjármálaeftirlitið: „Óbeinn“ virkur eignarhlutur Eftir látlausa rannsókn í marga mánuði komst Fjármálaeftirlitið að því um miðjan febrúar sl. að myndast hefði „óbeinn virkur meiri- hluti“ tiltekinna aðila í Sparisjóði Hafnarfjarðar fyrir aðalfundinn í fyrra. Þessari niðurstöðu eftirlitsins hefur verið hafnað kröftuglega af lögmönnum þeirra, sem þarna eiga hlut að máli, á þeirri for- sendu að hugtakið „óbeinn virkur meirihluti“ finnist ekki í lögum um sparisjóði. Lögmennirnir tveir hafa gagnrýnt Fjármálaeftirlitið harðlega fyrir þessa niðurstöðu og vænt það um klúður og að hamast í málinu að ósekju. Fjármálaeftirlitið tilkynnti stjórn spari- sjóðsins þessa niðurstöðu sína daginn fyrir aðalfund sparisjóðsins, 21. febrúar sl., og óskaði raunar eftir því við hann þennan sama dag að aðalfundinum yrði frestað. Við þeirri ósk var ekki orðið af hálfu stjórnar SPH og bar hún fyrir sig að beiðnin hefði komið allt of seint komin fram, en Fjármálaeftirlitið hafði verið látið vita af fundinum með tólf daga fyrirvara og voru fyrstu viðbrögð þess að fá að eiga fulltrúa á fundinum. FME í nóvember: Stöðvið öll viðskipti Í nóvember sl. hafði Fjármálaeftirlitið farið fram á það við stjórn SPH að hún samþykkti engin frekari framsöl stofnfjárbréfa þar til eftirlitið hefði lokið athugun sinni á því hvort myndast hefði „virkur eignarhlutur“. Stjórnin varð ekki við þeirri beiðni, virti hana að F R É T T A S K Ý R I N G - S P A R I S J Ó Ð U R H A F N A R F J A R Ð A R Rannsókn Fjármálaeftirlitsins hefur verið gagnrýnd með þeim orðum að nánast sé verið að leggja SPH í einelti á meðan stórfelld viðskipti í SPRON og Sparisjóði vélstjóra séu látin afskiptalaus. Verð stofnfjárbréfa í SPH hefur hækkað ævintýralega. Fyrir aðalfundinn í fyrra var „uppreiknað nafnverð“ hvers stofnfjár- bréfs innan við 176 þúsund krónur. Strax eftir aðalfundinn í fyrra seldist hvert bréf á 20 milljónir. Núna selst það á 45 til 50 millj- ónir króna. Það merkir að markaðsverð allra 93 stofnfjárbréfanna er um 4,2 milljarðar króna en eigið fé SPH var um síðustu ára- mót tæpir 3,8 milljarðar. Nokkru fyrir aðalfundinn í apríl í fyrra lá fyrir hugmynd að kaupverði stofnfjárbréfa og vilyrði fyrir kaupum - og þá var þegar ljóst að allir skráðir stofnfjáreigendur myndu hagnast vel, hvernig sem leikurinn færi. Stofnfjárbréf í Sparisjóði Hafnarfjarðar eru 93 talsins. Þau voru í eigu stofnfjáreigend- anna 47 á aðalfundinum í fyrravor, en allir stofnfjáreigendur að einum undanskildum áttu þá tvö stofnfjárbréf. Núna eru stofnfjár- eigendur 31 og flestir þeirra eru þekktir fjár- festar eða fjárfestingafélög. Fyrstu „frjálsu“ viðskiptin með stofnfjár- bréfin eftir aðalfundinn voru á verðinu 20 milljónir króna bréfið. Fljótlega eftir aðalfund- inn hækkaði verð hvers stofnfjárbréfs um 5 milljónir, í 25 milljónir króna. Áfram hélt svo verð bréfanna að hækka. Núna er verð hvers bréfs á bilinu 45 til 50 milljónir króna. Það eru augljóslega breyttir tímar. Í stjórnartíð Matthíasar Á. Mathiesen voru viðskipti með stofnfjárbréf eingöngu á „upp- reiknuðu nafnverði“. Það var komið upp 176 þús. krónur á bréf um síðustu áramót og samtals var stofnféð allt uppreiknað um 16,4 milljónir króna. Eigið fé Sparisjóðs Hafnarfjarðar um síðustu áramót var á hinn bóginn tæpir 3,8 milljarðar króna. Miðað við að markaðsverð stofnfjárbréfa í SPH sé núna um 45 milljónir króna bréfið þá er markaðsverð allra 93 bréfanna tæpir 4,2 milljarðar. Hafi flestir gömlu stofnfjáreig- endanna selt bréfin sína á 20 til 25 milljónir þá hefur umfang þeirra viðskipta verið í kringum 2,0 milljarðar króna. BREYTTIR TÍMAR: STOFNFJÁRBRÉF ÚR 176 ÞÚS. Í 45 MILLJÓNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.