Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 84
84 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
Heilsubót
fyrir sál og líkama
SUMARHÚS
Stutt í bústaðinn
Af og til má sjá auglýsingar í blöðum þar sem óskað er
eftir sumarbústað eða sumarbústaðalandi og þá helst ekki
fjær Reykjavík en sem nemur 100 km. Ef litið er á kortið
sést að með þessu kemur fram ósk um að vera ekki
lengra í burtu frá höfuðborginni en sem svarar vegalengd-
inni austur að Laugarvatni, upp í Borgarfjörð eða vestur
á Mýrar, nú þegar Hvalfjarðargöngin hafa stytt okkur
„sporin“ sé haldið í þá átt.
Þeir sem eiga hentug lönd undir frístundahús eru fyrir
löngu búnir að gera sér þetta ljóst og nú rísa bústaðir í
tuga ef ekki hundraða tali fyrir austan fjall og á Vestur-
landi. Með þessu móti getur fólk farið oftar í bústaðaferð
en áður, þegar engum datt í hug að fara fyrir minna en
eina helgi eða jafnvel viku. Sé horft lengra aftur í tímann
var fjarlægðin, þótt stutt væri, samt ærið löng. Vegna
lélegra vega og minni bílaeignar var fólk lengi á leiðinni og
margir, sérstaklega mæðurnar og börnin, völdu að dveljast
í sveitinni allt sumarið eða að minnsta kosti allt sumarfríið.
Úti á landi, t.d. í námunda við Ísafjörð og Akureyri, er
víða stutt í sumarhúsabyggðir ekki síður en í Reykjavík
og þar eru að byggjast upp sumarbústaðakjarnar. Nú er
svo komið að víða er ekkert einfaldara en að skreppa á
góðviðrisdegi út úr bænum kl. 4 eða 5 eftir vinnu og njóta
sveitalífsins fram undir 10 eða 11 á kvöldin. Þá er haldið
heim á leið eftir að hafa eytt „heilum“ degi í sveitinni.
Heitur pottur er enginn lúxus. Hann er einhver vinsælasti aukabúnað-
urinn við sumarbústaði og yfirleitt sá dauði hlutur sem fólk vill síst
skilja við sig í bústaðnum. Hvort sem potturinn er hörð skel, fyllt með
hitaveituvatni eða mjúkur pottur úr einangrunarefni og hitaður með raf-
magni verður hann jafnan uppáhaldsathvarf fjölskyldunnar.
Þegar fólk kaupir sér heitan pott er fyrsta hugsunin yfirleitt að njóta
hans með vinum og ættingjum í blíðvirði og sólskini. Flestir eiga sínar
fyrstu góðu stundir í pottinum með börnunum eða vinunum og vita
þá strax að potturinn er paradís. Þegar potturinn fer að ná fótfestu
á staðnum gera eigendurnir sér hins vegar fljótlega grein fyrir því, að
hann er ekki einungis skemmtitæki á góðviðrisdögum, heldur er hann
ekki síður nauðsynlegur þegar maður er einn og hefur þörf fyrir hvíld og
slökun. Veður og árstíðir hætta að skipta máli og það er síst verra að
sitja með prjónahúfuna í heitu vatninu og horfa á norðurljósin meðan
kuldaboli bankar á dyr en þegar lóan syngur vorsöng sinn í gróand-
anum.
Heita vatnið hefur undraverð áhrif á stirða liði og þreytta vöðva og
jafnt gigtar- og vöðvabólgusjúklingum sem örþreyttum íþróttamönnum
líður hvergi betur en í pottinum sínum.
100 km