Frjáls verslun - 01.02.2006, Qupperneq 52
52 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6 530 5700
www.hollin.is
Hjólbarðahöllin
Fellsmúla 24 · 108 ReykjavíkRéttarhálsi 2 · 110 Reykjavík
Gúmmívinnustofan
www.gvs.is
587 5588
327C
18"/20"
EMR 360C
16"/17"/18"
348BM
18"
635C
17"/18"
EMR 310 C
17"/18"
EMR 429AM
18"/19"
347C
16"/17"/18"
415C
16"/18"
220BM
17"
635BM
18"/20"
Vorið er komið.
Nú þegar dagurinn lengist er kominn tími álfelganna.
Bíllinn tekur miklum breytingum með nýjum felgum.
- Hann gjörsamlega skiptir um ham!
Hvaða felgur henta bílnum þínum?
Komdu við hjá okkur og skoðaðu það nýjasta í felgum.
Fagmenn okkar veita þér ráðgjöf í vali á felgum fyrir bílinn þinn.
- Við erum fagmenn í felgum!
324C
17"/18"
F R É T T A S K Ý R I N G - S P A R I S J Ó Ð U R H A F N A R F J A R Ð A R
Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður segir Frjálsri verslun aðspurður að engar
greiðslur hafi runnið í gegn hjá sér og engin skjöl
verið í sinni vörslu um viðskipti með stofnfjárbréf
í SPH. Greiðslurnar hafi farið í gegnum lögmanna-
stofuna Lögmenn Laugardal, stofu Karls Georgs
Sigurbjörnssonar, hæstaréttarlögmanns.
Sigurður segist ekki hafa gerst milliliður milli
kaupenda og seljenda og að hann hafi ekki verið
kallaður til yfirheyrslu. Hann staðfestir að hann
hafi sjálfur haft samband við tvo skráða eigendur
stofnfjárbréfa, þá Eggert Ísaksson og Einar Þorgils-
son, og keypt af þeim fjögur stofnfjárbréf. Hann
hafi útbúið skjöl vegna þessara viðskipta sjálfur og sömuleiðis
greitt fyrir bréfin sjálfur.
Sigurður er spurður nánar um störf lögmanna í þágu við-
skiptaaðila og umfangsmikinn fréttaflutning Morgunblaðsins
nýlega af þeim málum:
„Þetta eru allt hefðbundin lögmannsstörf. Það þarf að
athuga rétt afsal, skjöl og undirskriftir. Um vörslureikninga
lögmanna gilda mjög strangar reglur og um trúnaðarskyldu
lögmanna gilda sérstök lög. Fjármálaeftirlitið og Morgun-
blaðið hafa misst sig í þessu máli. Þessir aðilar gera sér ekki
grein fyrir því að það ríkir frelsi í viðskiptum á
Íslandi. Fjármálaeftirlitið á ekki að stýra því hverjir
mega selja og kaupa eignir og eignahluti.“
- Hvað með frumvarpið til laga um breytingar á
heimildum laga um opinbert eftirlit með fjármála-
starfsemi?
„Fjármálaeftirlitið hefur óskað eftir auknum
heimildum frá Alþingi til að hrella frekar Sparisjóð
Hafnarfjarðar. Viðskiptaráðherrann virðist ætla að
koma því í gegnum þingið á mettíma. Þessi lög
breyta engu um trúnaðarskyldu lögmanna.“
Hefur stofnast virkur eignarhlutur í SPH?
„Um langt árabil fram til aðalfundarins í apríl 2005 var aðeins
einn virkur 100% eignarhlutur í Sparisjóði Hafnarfjarðar. Einn
maður fór með hlutinn, því aðrir í hópi ábyrgðarmanna voru
áhrifalausir. Enda allir komnir þangað inn meira og minna
fyrir hans orð. Þetta var og er svo fámennur hópur að engin
leið er að koma saman 5 mönnum á lista og öðrum 5 sem með-
mælendum án þess að þeir 10 af 47 séu yfir því hlutfalli sem
áskilið er í 40. grein laga um fjármálafyrirtæki. Nú eru þeir 31
svo þetta er enn erfiðara.“
eftirlitsins og efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra snúist í raun
um að kanna það.
Það hefur komið fram að A. Holding, dótturfélag Baugs Group,
hafi lagt fram 1,9 milljarða króna inn á reikning lögmannastofunnar
Lögmenn Laugardal til þess að ávaxta fjármuni sína. En lögmanna-
stofan, en þar er Karl Georg Sigurbjörnsson lögmaður, hefur haft
milligöngu um viðskipti með stofnfé í SPH.
Í viðtali Morgunblaðsins hinn 4. mars sl. við Stefán Hilmarsson,
stjórnarmann í A. Holding, segir hann að ekkert sé ólöglegt við
að leggja fram fé til að fjármagna kaupin og að engir af forráða-
mönnum A. Holding hefðu verið kallaðir í skýrslutöku hjá Fjármála-
eftirlitinu.
Lögmaður bauð 67% stofnfjár í SPH til kaups
Þá hefur það komið fram í fréttum að Fjármálaeftirlitið hafi fengið
þær upplýsingar sl. haust við rannsókn á viðskiptum með stofnfjár-
bréf í Sparisjóði Hafnarfjarðar að lögmaður á vegum lögmannastof-
unnar Lögmenn Laugardal hafi í september sl. boðið sparisjóði til
kaups 67% stofnfjár í SPH.
Að mati Fjármálaeftirlitsins hafði lögmaður Lögmanna Laugar-
dals talið sig geta boðið til sölu, ekki einungis hluta stofnfjár sem
félli undir að vera virkur eignarhlutur í skilningi 40. gr. laga um
fjármálafyrirtæki, heldur meirihluta stofnfjár í Sparisjóði Hafnar-
fjarðar.
Jón Auðunn Jónsson lögmaður var kjörinn stjórnaformaður
Sparisjóðs Hafnarfjarðar á aðalfundinum 21. febrúar sl. Jón Auð-
unn hefur sagt í fjölmiðlum að stjórnin hafi ekki markað neina
stefnu varðandi breytingu á starfsemi sjóðsins. Stjórn SPH væri
hins vegar opin fyrir því að gera breytingar og að það eina sem
hann sæi fyrir sér væri að sameina Sparisjóð Hafnarfjarðar ein-
hverjum öðrum sparisjóði.
Auðvelt er að leggja út af þessum orðum Jóns Auðuns: Að sagan
af átökum og eftirmálum um stjórn og eigið fé Sparisjóðs Hafnar-
fjarðar sé hluti af miklu stærri sögu þar sem barist er um áhrif, völd
og eignarhald á íslenskum sparisjóðum.
SIGURÐUR G. GUÐJÓNSSON:
„FRUMVARP TIL AÐ HRELLA SPH“
Sigurður G.
Guðjónsson hæsta-
réttarlögmaður.
VIÐTAL: JÓNAS GUNNAR EINARSSON