Frjáls verslun - 01.02.2006, Page 72
72 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
HVERNIG Á AÐ SEGJA UPP FÓLKI?
Uppsagnir eru erfitt verkefni. Mannleg innsýn, þekking og reynsla skiptir öllu máli til að uppsagnir fari sem
best fram og sem minnstur skaði hljótist af.
Hafa skal í huga að landið er lítið og þjóðin
fámenn og því skiptir máli að reyna að
skilja við fólk með sæmd, því enginn veit
hvenær næstu samskipti gætu átt sér stað
og undir hvaða kringumstæðum.
Uppsagnir verða þó aldrei auðveldar,
en nokkrar aðferðir virðast reynast vel
og hér hefur verið dregið saman það sem
erlendir fræðimenn hafa lagt til sem „bestu
aðferðir“ og það sem íslenska rannsóknin
leiddi í ljós.
Undirbúningur lykilatriði Undirbúningur
fyrir uppsagnir er fyrir mestu. Allar áætl-
anir um uppsagnir skulu vera vandlega
undirbúnar, áætlun um hve mörgum þarf
að segja upp og hvers vegna. Mistök í upp-
sögnum verða ekki tekin til baka.
Gott er að kynna sér vel öll lagaleg atriði
sem taka þarf tillit til varðandi uppsagnir
og hafa samband við stéttarfélög áður ef
þörf er á.
Nauðsynlegt er að undirbúa vel hvað á
að segja í viðtalinu vegna uppsagnarinnar
og hvernig á að taka á þeim spurningum
sem starfsmenn kunna að bera upp. Hver
og einn verður að finna sína aðferð við und-
TEXTI: SIGRÚN HILDUR
KRISTJÁNSDÓTTIR
MYND: GEIR ÓLAFSSON
Hér koma nokkur hagnýt ráð við uppsagnir. Sigrún Hildur Kristjáns-
dóttir, MA í mannauðsstjórnun, rannsakaði í tengslum við meistara-
verkefni sitt í Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands hvernig
íslenskir stjórnendur haga uppsögnum starfsmanna.
Sigrún Hildur Kristjánsdóttir,
MA í mannauðsstjórnun, skrifar hér
einstaklega athyglisverða grein um
það hvernig eigi að segja upp fólki.