Frjáls verslun - 01.02.2006, Side 94
SUMARHÚS
KYNNING
S umarbústaðir landsmanna verða stöðugt stærri og vandaðri og um leið verðmætari. Það er því mikill skaði ef þeir verða fyrir áföllum vegna veðurs og vinda, innbrota, vatnsleka eða
bruna. Sumarhúsavörn er af þessum sökum bráðnauðsynleg í alla
bústaði, og reyndar ekkert síður í þá sem minni eru því að þeir eru
eigendum sínum ekki síður dýrmætir en stærri bústaðir.
Trausti Harðarson, forstöðumaður Einstaklingssviðs Securitas,
segir að fyrirtækið bjóði öryggiskerfi sem er sér-
staklega ætlað fyrir sumarbústaði. Það sé bæði ein-
falt í uppsetningu og auðvelt í notkun. Hann bætir
við að kerfið sé upprunnið í Noregi, sérhannað með
notkun í sumarhúsum í huga, og hafi verið lagað
að íslenskum aðstæðum. Sumarhúsakerfið, eins og
önnur öryggiskerfi sem Securitas býður, er í eigu
Securitas, en fólk greiðir ákveðið mánaðargjald
fyrir leiguna.
Kerfið vakir yfir bústaðnum Ýmislegt getur komið
upp á í sumarhúsinu sem kerfið lætur vita af.
Reykskynjari segir til ef eldur er að koma upp,
hreyfiskynjari lætur vita af óeðlilegri hreyfingu,
t.d. ef óboðinn gestur er kominn í húsið. Það er einmitt eitt sem
stundum gerist og sest fólk jafnvel að í bústöðum og dvelst þar um
tíma án þess að eigendur hafi hugmynd um. Þá er gott að vera með
hreyfiskynjarann sem lætur vita.
Í sumarhúsavörninni er: Reykskynjari, hurða/glugganemi,
hreyfiskynjari, lyklaborð, stjórnstöð og síðan nákvæmar leiðbein-
ingar um uppsetningu og notkun á íslensku og loks límmiðar til
að setja í glugga eða á útidyr og gefa til kynna að bústaðurinn sé
vaktaður af Securitas.
„Sumarhúsavörnin er þráðlaust öryggiskerfi með innbyggðu
GSM og fæst afhent í hentugum umbúðum tilbúið til uppsetningar.
Sumarhúsavörnin er auðveld í uppsetningu og setur notandinn
kerfið sjálfur upp,“ segir Trausti. „Þegar kerfið hefur verið sett
upp tengist það sjálfvirkt stjórnstöð Securitas hjá
Neyðarlínunni 112 og þangað berast boð ef eitthvað
ber út af. Sérstök útkallsþjónusta er í boði og um
leið og boð berast frá bústaðnum fara öryggisverðir
Securitas á staðinn frá starfstöðvum Securitas á
Selfossi, í Borgarnesi eða Reykjavík. Útkallssvæðið
nær til bústaða sem eru í allt að 50 km radíus frá
starfsstöðvunum.“ Mikilvægt getur verið að komast
sem fyrst á staðinn og verja húsið fyrir eyðileggingu
veðra og vinda, standi það opið eða ef rúður eru
brotnar.
Hiti hækkaður og ljós kveikt með sms-skilaboðum
Auk þess búnaðar sem nefndur hefur verið má
tengja við öryggiskerfið vatnsnema, fjarstýringu og fjarstýrðan
raftengil. Að því viðbættu býður kerfið einnig upp á ýmis aukaþæg-
indi eins og fjarstýringu hita og lýsingar með sms-skilaboðum. Með
þessu móti er hægt að hækka hitann í bústaðnum nokkru áður en
eigendur ber að garði og kveikja ljós í innkeyrslunni, svo dæmi sé
tekið.
Sumarhúsavörn gerir
mönnum kleift að
vera áhyggjulausir
hvað varðar bústað-
inn. Þeir fá t.d. boð ef
gluggar eru opnaðir,
óboðnir gestir koma
í bústaðinn eða vatn
fer að leka.
SECURITAS:
Vakað yfir bústaðnum
Trausti Harðarson
er forstöðumaður
Einstaklingssviðs
hjá Securitas.