Frjáls verslun - 01.02.2006, Side 104
104 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
SUMARHÚS
KYNNING
�������������������
��������������������
���������������������
����������������������������������������������������������������������������
���������������������������������������������������� �������������
�������������������������������������������������������������������������������
� �������������������������
Óvenjugóður vetur hefur valdið því að löngunin til að hressa upp á garðinn eða umhverfi sumarbústaðarins er löngu vöknuð. Falleg steina- eða hellulögn, ljós í steinsúlum og
blómaker setja vissulega svip á umhverfið og allt
þetta og meira til má fá hjá MEST í Reykjavík, sem
einnig er með starfstöðvar í Hafnarfirði, á Selfossi
og Reyðarfirði.
„Það má skipta starfsvettvangi MEST í þrennt,“
segir Þórður Birgir Bogason forstjóri. „Við seljum
almennar byggingarvörur, seljum og önnumst þjón-
ustu við vélar og búnað, framleiðum steypu, hellur og
garðeiningar til húsbygginga og lóðarframkvæmda.
Vöruframboð okkar er allt frá fyrstu skóflustungu
að fallegri lóð en við höfum ekki komið að innrétt-
ingu hússins. Vöruúrvalið hjá MEST er mikið og öfl-
ugt vöruþróunarteymi vinnur stöðugt að nýsköpun.
Ennfremur bjóðum við viðskiptavinum að njóta
leiðbeininga landslagsarkitektanna Stanislas Bohic
og Einars Jónssonar við skipulag garðsins.“
Mikil vöruþróun og fjölbreytt úrval Þórður segir að MEST leggi
mikla áherslu á vöruþróun og fylgist vel með nýjungum erlendis
svo viðskiptavinir MEST fái að njóta þess besta sem í boði er
hverju sinni og nefnir sem dæmi nýjar útfærslur á frágangi í
kringum sorpskýli sem hafa verið fábrotnar og lítið spennandi til
þessa. MEST framleiðir mikinn fjölda af garðsteinum og hellum og
hægt að fá margs konar steyptar einingar með ljósum sem prýða
umhverfi sitt. Helluúrvalið er margbreytilegt; t.d. er boðið upp á sér-
unnar hellur með gamaldags útliti sem eru þó jafnsterkar og aðrar
hellur og henta þær vel vilji fólk fá sérstakan svip á garðinn eða
umhverfi bústaðarins. Hellurnar frá MEST eru með
því sterkasta sem gerist í heiminum í dag og þola
margra ára ánauð bíla og þungra véla svo ekki sé
minnst á umhleypingasama, íslenska veðráttu.
Auk hellna er hægt að fá gangstíga eða bíla-
plön með sérstakri skrautsteypu en þá er mynstur
stimplað í yfirborðið. Það hefur m.a. þann kost
fram yfir hellurnar að þegar fram í sækir vex
gróður þar ekki eins og milli þeirra en hann er
þyrnir í augum margra.
Verktökum veitt þjónusta og ráðgjöf „MEST veitir
þeim þjónustu sem sinna garðvinnu því að hjá okkur
geta bæði verktakar og einstaklingar leigt allar nauð-
synlegar vélar. Oftast vilja viðskiptavinir okkar fá
fagmenn til hellulagnanna og við getum haft milli-
göngu með það. Í þessu sambandi má heldur ekki
gleyma ráðgjöf landslagsarkitektanna Stanislas og Einars sem veitt
er að kostnaðarlausu öllum þeim sem við okkur versla.“
Mikið er af sumarbústaðalöndum á Suðurlandi og MEST er með
starfstöð á Selfossi og nú er í ráði að þar geti menn einnig fengið
ráðgjöf á sumrin þegar þeir skreppa úr bústaðnum til að kaupa
hellur og steina í gangstíg eða stétt sem er ekki síður hentugt en
trépallar.
Afgreiðslutími MEST
er tveir dagar en oft á
tíðum er hann styttri
því vörustýring mið-
ast við stuttan afhend-
ingartíma á vinsælum
vörum. MEST rekur
einnig heimkeyrslu-
þjónustu sem ekur
með hellur og steina
til kaupenda.
MEST:
Allt í garðinn heima
og sumarbústaðalandið
Katrín sölustjóri á fallegri stétt. Þórður forstjóri við hlaðinn brunn.