Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 118
118 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
Uppáhaldsborgin:
ALGJÖR BRJÁLSEMI
Las Vegas er uppá-
haldsborg Benedikts
Eyjólfssonar, fram-
kvæmdastjóra Bíla-
búðar Benna. Þangað
hefur hann farið fimm
sinnum - en segir að
það sé nóg að koma
þangað tvisvar til
þrisvar sinnum.
„Borgin er svo
brjálæðisleg. Þetta
er algjör klikkun. Auð-
vitað er gaman að sjá
gleðina og mannmergðina. Borgin
er misskilin. Þessu fylgir ákveðin
stemmning. Og gleði.“
Las Vegas er
fræg fyrir ljósaskiltin
og segist Benedikt
hafa heyrt að í borg-
inni sé skipt um
100.000 ljósaperur
á sólarhring. „Hótel-
herbergin í borginni
eru yfir 100.000.“
Benedikt bendir
á að mörg hótel séu
með ákveðið þema.
„Á Exclibur-hótelinu
eru t.d. allir starfs-
menn í „Prince Valiant búningum“,
á MGM Grand-hótelinu eru allir í Dis-
ney-búningum og inni á Venetian-
hótelinu eru gondólar og síki.
Á Paris Las Vegas-hótelinu er
m.a. eftirlíking af Eiffel-turninum og
á New York-hótelinu er eftirlíking af
Empire-state byggingunni. Þetta er
gerviheimur. Ævintýri. Það passar
að 12 ára krakkar fari í Disney-
land en fólk um fertugt fari til Las
Vegas. Ég ráðlegg öllum að fara að
minnsta kosti einu sinni á ævinni til
Las Vegas.“
ÚR EINU Í ANNAÐ
Sjórinn hefur alltaf heillað Soffíu Sigurgeirs-
dóttur, markaðsstjóra Netbankans, og hún
vildi kynnast honum betur. Hún lærði að
kafa við Fiji-eyjar árið 1991 og fékk öll rétt-
indi í kjölfarið. Hún hefur eingöngu kafað í
útlöndum; í Miðjarðarhafinu, Kyrrahafinu,
Rauðahafinu og Karíbahafinu.
Hún segir sjóinn vera allt öðruvísi en fólk
heldur. „Skynjunin á veruleikann er allt önnur.
Fyrstu viðbrögð mín voru „VÁ“. Þetta er stór-
kostlegt. Litirnir eru svo magnaðir og áferðin
á öllu svo ólík því sem maður hafði vanist.
Ég hef aldrei séð jafnmikla litadýrð og flóru af
fiskum og jafnmögnuð rif eins og í Kyrrahaf-
inu. Þau eru hvít og þverhnípt.“
Hún sér sjóinn með öðrum augum en
áður en hún byrjaði að kafa. „Ég ber mikla
virðingu fyrir sjónum. Hann er eins og blátt
silki sem umvefur mann þegar hann er falleg-
astur. Þetta er eins og að vakna í draumi.
Þetta er ekki líkt þeirri veröld sem ég þekki
daglega.“
Soffía hefur rekist á nokkrar hákarlateg-
undir. „Hjartað í mér hætti einu sinni að slá
þegar ég sá eitthvað skyggja á sólina. Þetta
var hamarhákarl sem svamlaði beint fyrir
ofan mig og fleiri kafara. Við vorum kyrr í
nokkrar mínútur, sem voru eins og nokkrir
klukkutímar, á meðan hákarlinn synti í hringi
fyrir ofan okkur. Einn úr hópnum var búinn
með súrefnið og deildum við súrefni.“
Köfun:
SJÓRINN EINS
OG BLÁTT SILKI
„Ég ber mikla virðingu
fyrir sjónum,“ segir
Soffía sem hefur kafað
í Miðjarðarhafinu,
Kyrrahafinu...
„Ég ráðlegg öllum að fara
að minnsta kosti einu sinni
á ævinni til Las Vegas.“