Ægir

Volume

Ægir - 01.03.2007, Page 62

Ægir - 01.03.2007, Page 62
62 regla. Fyrirtækin hafa gott af að skipta um andlit á 5-6 ára fresti,“ segir Björgólfur. Löng saga Icelandic Group var áður Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna, félag sem rekur sögu sína allt aftur til ársins 1942 þegar hraðfrystihúsin, sem þá voru svo nefnd, bundust sam- tökum um „að selja sjávaraf- urðir sem ætlaðar eru til sölu á erlendum markaði og fram- leiddar eru í hraðfrystihúsum félagsmanna,“ eins og sagði m.a. í lögum félagsins. SH var lengi vel í eigu félagsmanna sem seldu framleiðslu sína og ríkti gagnkvæm skylda um af- hendingu og sölu, en félags- forminu var breytt fyrir rösk- um áratug, árið 1996. Var þá félagið gert að hlutafélagi og skráð á hlutabréfamarkað. Þróunin var sú að fyrri eig- endur seldu smám saman sína hluti og nýir eigendur komu inn og tóku við. Gagn- kvæmri skyldu um sölu og afhendingu var aflétt og við- skipti við framleiðendur þró- uðust í þá átt sem gengur og gerist meðal óskyldra aðila. Þarf að vera einhver tilgangur Afkoma félagsins hin síðari ár hefur ekki verið sem skyldi, afkoman var léleg að sögn Björgólfs árið 2005 og ekki nægilega góð á liðnu ári heldur. „Það eru margar ástæður fyrir því að félagið skilaði ekki viðunandi ár- angri. Það hefur stækkað heil- mikið, sú þróun hófst á síðari hluta árs 2003 og hélt áfram árið á eftir og fram til ársins 2005. Það má kannski segja sem svo að vaxtarverkir hafi einkennt félagið á þessum tíma,“ segir Björgólfur. Hann segir að í sínum huga þurfi klárlega að vera til staðar ein- hver tilgangur þegar fyrirtæki eru keypt. Í þeim efnum þurfi að horfa til margra þátta, m.a. hvernig rekstur þeirra fyr- irtækja sem keypt eru falli að þeim rekstri sem fyrir er „Það þarf að hafa að leiðarljósi að aukin hagkvæmni skapist í kjölfar kaupa á nýjum fyr- irtækjum, en það er ljóst að slík sjónarmið voru ekki alltaf uppi, það var að mínu mati of lítið horft til þess við kaup á fyrirtækjum á þessum ár- um,“ segir Björgólfur. Meðal þeirra fyrirtækja sem keypt voru á umræddu tímabili má nefna verksmiðju í Redditch sem framleiðir kælda tilbúna rétti, en tveim- ur árum síðar var fjárfest í fyr- irtækjunum Seachill í Grimsby og sjávarafurðasviði Cavag- han & Gray. Gömlu keppi- nautarnir í Bandaríkjunum, SH og Samband, voru sam- einuð á árinu 2005 sem þótti saga til næsta bæjar. Fyrirtæk- ið Pickenpack Hussmann & Hahn í Þýskalandi var keypt í árslok 2005. Þá var fjárfest í fyrirtækinu Barogel í Marseille í Frakklandi, sem þekktast er fyrir rækjuafurðir og önnur skeldýr og síðar var ráðist í kaup á Comigro Geneco í París, fyrirtæki sem starfar á sama sviði og Iclandic France og leggur áherslu á sölu hvít- fisks. Nú í fyrra var enn fjár- fest í Frakklandi þegar keypt var verksmiðja Alfesca í Wi- mille, þar sem framleiddar eru frosnar afurðir. Þá má nefna að starfsemi var aukin á Spáni með kaupum á Ecomsa, fyrirtæki í fram- leiðslu og dreifingu sjávaraf- urða á Suður-Spáni. Í fyrra festi félagið einnig kaup á fyr- irtækinu Jeka Fish í Dan- mörku og með því opnaðist sóknartækifæri inn á saltfisk- markaðinn. Sú sókn styrktist enn frekar með kaupum á Si- rius, fyrirtæki á Íslandi sem hefur sérhæft sig í saltfisk- afurðum um árabil. Starfsemi Iclandic hefur einnig verið aukin mjög t.d. í Asíu og má þar helst nefna sameiningu félagsins við Sjóvík árið 2005 og eins hefur félagið aukið starfsemi sína hin síðari ár í Noregi, Hollandi, Færeyjum og á vesturströnd Bandaríkj- anna. „Það má því segja með sanni að félagið hafi aukið mjög við starfsemi sína víða um heim og unnið lönd fyrir íslenskt sjávarfang sem og annað á öllum helstu mörk- uðum,“ segir Björgólfur. Stefndi ekki í rétta átt Björgólfur bendir m.a. á Bandaríkin og Bretland sem dæmi um að ekki hafi verið horft til samlegðaráhrifa við kaup á fyrirtækjum þar, ekki hafi náðst að hrista þau fyr- irtæki sem keypt voru nægi- lega vel saman til að ná sem mestu út úr rekstrinum. „Það má kannski segja að fókusinn hafi ekki verið nægilega S A L A S J Á V A R A F U R Ð A Í grunninn erum við með gott félag sem hefur alla burði til að gera gríðarlega góða hluti, en það skiptir auðvitað miklu máli að hafa tíma til að vinna með þau tækifæri sem bjóðast og eins að hafa nægt handbært fjármagn. Icelandic Group er til húsa við Borgartún.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.