Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.2007, Side 80

Ægir - 01.03.2007, Side 80
80 VGI er dótturfyrirtæki Ice- landic Group og er leiðandi í sölu á umbúðum og rekstr- arvörum til matvælafyrirtækja, þ.m.t. sjávarútvegsfyrirtækja. Fyrirtækið selur til framleið- enda innanlands sem utan, en afurðirnar koma frá innlend- um og erlendum birgjum. Fyrirtækið er gamalgróið – þó svo að núverandi nafn þess sé ekki gamalt – að stofni til er VGI 75 ára gamalt. Um 20 starfsmenn starfa hjá fyr- irtækinu. Segja má að undir hatti VGI séu í dag þrjú eldri fyr- irtæki. Í fyrsta lagi Icelandic Umbúðir, í öðru lagi Íspakk og í þriðja lagi Valdimar Gíslason. Valdimar Gíslason og Ís- pakk voru sameinuð árið 1998 undir kennitölu fyrr- nefnda fyrirtækisins. Icelandic Group keypti síðan Valdimar Gíslason-Íspakk á síðasta ári og sameinaði Icelandic Um- búðum undir nafninu VGI. Valdimar Gíslason er elstur þeirra fyrirtækja sem nú mynda VGI, stofnaður 1932, en Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna, sem Icelandic Umbúðir tengdust síðar, var sett á stofn árið 1946. Hlutur sjávarútvegsins 60- 70% af veltu VGI Að sögn Páls Pálssonar, að- stoðarframkvæmdastjóra VGI, er hlutur sjávarútvegsins í rekstri fyrirtækisins á bilinu sextíu til sjötíu af hundraði. „Við erum stórir á matvæla- markaði hér á Íslandi, en að mínu mati eru stækkunar- möguleikar okkar ekki síst erlendis,“ segir Páll Pálsson, aðstoðarframkvæmdastjóri VGI, í samtali við Ægi. Auk sölu á umbúðum og ýmiskonar vörum og tækja- búnaði til matvælaframleiðslu segir Páll að VGI veiti ráðgjöf á sviði matvælaframleiðslu og pökkunar á matvælum. Þetta á við um sjávarútveginn sem og aðra geira matvælafram- leiðslunnar. Af rekstrarvörum sem VGI selur má nefna vettlinga og hanska, vinnufatnað, hnífa, ýmsar smávörur, íblöndunar- efni, vélar og tæki, m.a. Fo- maco sprautuvélar, og hreinsi- efni. klukkustundir og helst þurfi að neyta hans strax því ann- ars sé hætta á að hann fúlni. Þetta geti skapað ákveðinn vanda, til dæmis fyrir veit- ingamenn ef þeir vita ekki hvort þeir eiga von á 10 eða 50 manns sem vilja í saltfisk þann daginn. Þess vegna hafi það hentað veitingamönn- unum mjög vel að fá léttsalt- aða fiskinn frystan því þá geta þeir tekið fram og mat- reitt það magn sem þörf er á hverju sinni. Áherslan á gæði Á vegum Icelandic Iberia hef- ur verið lögð mikil vinna í að byggja upp vörumerkið sem tákn um hágæða frystar sjáv- arafurðir. Að sögn Hjörleifs hafa íslenskar vörur og þá sérstaklega saltfiskurinn enn- þá mjög sterka gæðaímynd í hugum Spánverja. Því hafi þeir lagt áherslu á það í markaðsstarfinu að tengja fyr- irtækið annars vegar við upp- runann á Íslandi og hins veg- ar við þorskinn sem nú megi kalla flaggskipið í vöruvalinu. Hvort tveggja skírskoti til þeirrar gæðaímyndar sem menn eru að höfða til. Hann segir hins vegar að sjálft nafn- ið Icelandic hafi minna að segja í þessu sambandi en menn kynnu að halda, vegna þess að yfirleitt sé ensku- kunnátta Spánverja frekar lítil og því tengi þeir Icelandic ekkert endilega við Ísland. Tíu ár að baki Á síðasta ári var haldið upp á 10 ára afmæli Icelandic Iberia. Hjörleifur segir að það hafi verið mjög skemmtilegt og gefandi að taka þátt í upp- byggingunni. Þetta hafi hins vegar verið mikil vinna og fjarvistir við fjölskyldu drjúgar vegna þeirra miklu ferðalaga sem fylgja starfinu. Fyrirtækið hefur vaxið mikið frá því það hóf starfsemi og segir hann ekkert benda til annars en að það eigi að geta haldið áfram að vaxa þótt það verði kannski ekki eins hratt og síðustu ár. „Við erum hins vegar komin yfir mesta vaxt- arfasann í bili og munum á næstunni leggja áherslu á að ná meiru út úr núverandi starfsemi með því að hagræða og straumlínulaga reksturinn,“ segir Hjörleifur Ásgeirsson, forstjóri Icelandic Iberia, að lokum. Viðtal og myndir: Gunnar E. Kvaran. S A L A S J Á V A R A F U R Ð A Þ J Ó N U S T A VGI – dótturfyrirtæki Icelandic Group: Þjónustufyrirtæki við sjávar- útveginn með langa sögu Þrír af starfsmönnum VGI. Frá vinstri. Sigríður Þ. Sigurðardóttir, Magni Þ. Samson- arson og Jóhann I. Þorsteinsson. Mynd: Sverrir Jónasson. Hefðbundinn íslenskur saltfiskur er talsvert áberandi þegar komið er á matvæla- markaði í Barcelona og er ekki ódýr miðað við aðra matvöru.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.