Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Page 16

Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Page 16
102 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ofsóknum, unnið með markvísum ásetningi að því að eyðileggja alþýðusamtökin og grafið með þvi undan hornsteinum lýðræðisins og veikt þjóðfélagið i lieild. Kringum þessa valdaklíku hefur dafnað hin argasta fjár- málaspilling og óreiða, þjófnaður í stórum stíl á al- mannafé, mútur og atvinnukúgun. Þessi klíka hefur unnið að sundrung í þjóðfélaginu, reynt að etja einni stéttinni upp á móti annarri, hefur fjandskapazt við allar framfarir og' menningu og stendur orðið beinlínis i vegi fyrir því, að lieilbrigt atvinnulíf geti þróazt i land- inu. En það, sem gerir völd hennar langsamlega hættu- legust, eru þó hagsmunatengsl liennar við erlent auð- magn. Eitt fyrsta verkefnið, þegar skapa á sterka og samstillta þjóðarlieild, er að taka ráðin af þessari gróða- brallsklíku eða takmarka að minnsta kosti svo völd henn- ar, að liún ráði ekki í sjálfri landsstjórninni, geti ofur- selt hagsmuni þjóðarinnar erlendu valdi eða gert fs- lenzku atvinnulífi stórtjón. Því miður geta menn aldrei lært neitt, nema af dýr- keyptri eigin reynslu. Af örlögum annarra þjóða á síð- ustu árum og mánuðum hefði íslenzka þjóðin getað lært margt, sem henni væri nú mikilsvert að vita. Eilt er það, hvílík meginliætta hverju ríki stafar af því að láta traðka niður hjá sér lýðræði og þjóðarvilja. Er þar dæmi Frakklands harmsögulegast. Fyrir fáum árum var það stórveldi og þjóðin í miklum viðreisnarhug. En þá greip auðvaldsklíka yfirstéttarinnar í laumana, þegar hún sá mátt þjóðarinnar rísa, beitti valdi aúðmagnsins og fékk til þess erlenda aðstoð að sundra kröftum hinnar voldugu þjóðfvlkingar, sem alþýða og millistétt- ir Frakklands höfðu myndað í sameiningu, fella stjórn Iiennar og koma á nýrri stjórn, sem fengið var það hlut- verk að eyðileggja samtök þjóðarinnar, grafa undan verkíýðshreyfingunni og ofsækja forystukrafta hennar. Samtímis háværu gjálfri um baráttu og strið gegn fas- ismanum, létu stjórnarvöld Frakklands hneppa tugi þús-

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.