Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Blaðsíða 96
182
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
og er á Andvökum, og eru allir félagsmenn, sem vilja tryggja sér
það, beðnir að snúa sér til umboðsmanna í tæka tið. í fyrra
missti fjöldi félagsmanna af skinnbandinu vegna þess, að þeir
athuguðu ekki að panta það fyrirfram. Nú hefur verð á skinn-
bandi hækkað geysilega, og verðum við að selja það félagsmönn-
um á 7 krónur.
Því miður hlýtur útgáfa félagsins að verða minni nú en síðast-
liðið ár. Verðlag á prentun og pappír liefur hækkað mjög mikið,
og við höfum ekki í neinn sjóð að hlaupa. Vegna verðhækkun-
ar á miðju ári í fyrra og tjóns á upplagi aðalbókarinnar, varð
halli á útgáfunni, sem vinna verður upp. Strax á næsta ári kem-
ur verk, sem félagið verður að kosta miklu til: það er mann-
kynssagan, sem félagsmenn bíða með eftirvæntingu. Ásgeir Hjart-
arson, sagnfræðingur, er nú kominn vel á veg með fyrsta bindið.
Ég verð að fresta, þangað til í næsta hefti, að ræða frekar um
útgáfuna á næstunni. En ég vil leggja þá spurningu fyrir ykkur
félagsmenn: Iívað viljið þið, að gert sé útgáfunni til eflingar
umfram það, sem nú eru efni til? Viljið þið styrkja félagið
meira? Við hiðjum ykkur að skrifa og koma fram með tillögur.
Vegna hins fjandsamlega áróðurs, sem rekinn hefur verið gegn
Máli og menningu, liefur stofnendum og stjórnendum félagsins
þótt nauðsynlegt að hlaða um félagið sterkari varnargarð mikils-
metinna áhugamanna í Reykjavík, sem ekki vilja þola, að þetta
menningartæki íslenzkrar alþýðu sé ofsótt né starfsemi þess
hnekkt. Heimskringla h/f og Félag róttækra rithöfunda hafa af-
salað s'ér rétti til að kjósa stjórn Máls og menningar, en hafa
i þess stað tilnefnt 25 manna ráð, er semji ný lög fyrir félagið
og kjósi stjórn þess til hráðabirgða, því að annað fyrirkomulag
kann að þykja heppilegra s'íðar. Hefur i sambandi við þessa nýju
ráðstöfun, sem er reyndar ekki ákveðin til fulls enn, orðið sú
hreyting á stjórn félagsins að liana skipa nú auk Halldórs K.
Laxness, Sigurðar Thorlacius og mín, tveir nýir menn, prófessor
Sigurður Nordal og Ragnar Ólafsson, lögfræðingur. Halldór Stef-
ánsson og Eiríkur Magnússon gengu úr stjórninni. Voru þeir
heitustu hvetjendur þess, að félagið var stofnað, og hafa frá upp-
hafi unnið af óeigingjörnum áliuga að vexti og viðgangi Máls
og menningar. Veit ég, að þeir munu gera það eins framvegis, þó
að þeir eigi ekki sæti í stjórn félagsins.
Vil ég að endingu láta félagsmenn vita, að Mál og menning-
er sifellt vaxandi, þrátt fyrir alla samkeppni. Þjóðin skilur, hvers
virði félagið er, ekki sizt á þessum tímum.
Kr. E. A.