Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Blaðsíða 98
184
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Stofnfé sjóösins er kr. 1800.00.
2. gr. — Tilgangur sjóðsins er aö vernda andlegt frelsi ís-
lenzkra rithöfunda.
3. gr. — Höfuðstól sjóðsins má aldrei skerða, og skal jafnan
ávaxta hann í sem tryggustum ríkisskuldabréfum. Allir vextir
skulu lagðir við höfuðstólinn, unz hann er orðinn, ásamt gjöf-
um, er honum kunna að áskotnast, fullar kr. 50,000.00. Eftir það
leggst % vaxtanna við höfuðstólinn, en að öðru leyti skal þeim
varið til styrkveitinga samkvæmt 4. gr., þegar um slíka styrk-
jiega er að ræða, sem þar greinir.
4. gr. — Styrkja úr sjóðnum skulu njóta íslenzkir, starfandi
rithöfundar, sem fengið hafa opinberan rithöfundastyrk, en síð-
an verið sviptir honum að meira eða minna leyti, að þvi er
ætla má beinlínis eða óbeinlínis vegna skoðana sinna. Nú er
um fleiri styrkþega en einn að ræða á sama ári, og skal þá
skipta á milli þeirra úthlutaðri styrkupphæð i réttu hlutfalli við
þann styrk, sem þeir, hver um sig, hafa verið sviptir. Aldrei má
slyrkveiting úr sjóðnum til rithöfundar nema meiru á ári en
þeim styrk, er hann hefur verið sviptur.
Ef styrk er ekki úthlutað eitt ár eða fleiri eða % vaxtanna
ekki að fullu, er heimilt að draga þann liluta vaxtanna til út-
hlutunar síðar.
Nú hefur um engan styrkþega verið að ræða i 10 ár sam-
fleytt, og má þá verja því fé, sem beðið hefur úthlutunar, til
viðurkenningar einum eða fleiri íslenzkum rithöfundum, sem í
ritum sínum þykja sérstaklega hafa talað máli andlegs frelsis.
5. gr. — Stjórn sjóðsins og úthlutun styrkja úr honum skulu
annast 3 menn: Hinn fyrsti þeirra skal vera kennarinn í ís-
lenzkri bókmenntasögu við Háskóla íslands, annar tilnefndur
af rithöfundadeild Bandalags íslenzkra listamanna, eða, ef það
verður lagt niður, öðru félagi islenzkra rithöfunda, er til þeirr-
ar stofnunar telst svará, og hinn þriðji tilnefndur af liinum
tveimur með sérstöku tillili til þess, að hann sé kunnur að því
að unna og halda í lieiðri andlegu frelsi. Nú verður ekki sam-
lcomulag um þriðja mann, og skal þá skorið úr með hlutkesti.
0. gr. — Að öðru leyti skal sjóðurinn hlíta þeim almennu fyr-
irmælum, sem á hverjum tima kunna að gilda og miða til trygg-
ingar sem öruggastri varðveizlu opinberra sjóða og því, að þeir
starfi samkvæmt skipulagsskrám sínum og sem næst vilja stofn-
endanna. _____________
Leita skal staðfestingar konungs á skipulagsskrá jiessari.
Félagsprentsmiðan h.f.