Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Side 28

Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Side 28
114 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR og það væri hljóðfæri i meistara höndum. Geðið var ríkt og lundin ör, sveiflaðist frá einum strengnum til annars, þar gat komið fram ofsi og stórlæti, auðmýkt og þýð- leiki, einlægni og viðkvæmni, galsi og þunglyndi, sorg og gleði. Svo var tal Jóhanns. Hann hafði mikla þörf á að segja kunningjum sínum frá þeim verkum, sem hann hafði í smíðum, rekja uppistöðu þeirra, þær breytingar, sem þau voru að taka, fara með einstök tilsvör, skýra, livað fyrir honum vekti og að hverju hann stefndi, fara með ný og gömul kvæði. En þó að hann talaði um allt önnur efni, var liin skáldlega íinyndun sívakandi, hug- kvæmnin frjó og oröalagiö heillandi. Það var ótrúlega margt, sem hann hafði áhuga á og var hrifinn af, og allt af var honum mikið i niun að segja svo frá því, að aðrir tækju þátt í því með honum. Mér fannst oft á samvistar- stundum mínum við Jóhann, og þær voru margar allt til sumarsins 1918, er eg sá hann í síðasta sinn, að liann væri skáldið, eins og það ætti að vera, og hann gæti stund- um á einu kvöldi sagt nógu margt fallegt og frumlegt til þess að verða frægur maður fyrir það. Nú veit eg að vísu hetur en þá, að það getur engu síður verið eðli rit- höfunda að vera frábitnir því að tala skáldlega eða um skáldskap sinn. Og samt, mér finnst enn i dag það sama og um tvítugt, að Jóhann sé einstakur í sinni röð meðal þeirra listamanna, sem orðið hafa á vegi mínum. ★ Eg las Dr. Rung, en mér datt ekki í hug að taka mark á þeirri hók. Að vísu bar hún eindreginn svip höfundar síns, en gal ekki verið nema dauft endurskin af gáfum lians. Bóndinn á Hrauni kom út 1908. I þeirri hók var mikið af ljóðrænni fegurð, en Jóhann hlaut að gela gert mildu betur. Ilaustið 1910 kom eg til Hafnar eftir vetr- ardvöl í Reykjavík. Eg hitti Jóhann undir eins fyrsta dagiiin, og við sátum lengi saman uppi á Himnaríki. Hann var þá að skrifa fyrsta þáttinn í Fjalla-Eyvindi, bókinni, sem hann hafði unnið að 2—3 síðustu árin. Hann sagði

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.