Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Síða 53
'IÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
139
ég hafi hættulegar skoðanir eða jafnvel hugsanir, að þú
eða ég „vilji“ illa eða sé í vafasömum félagsskap, eða ein-
um eða öðrum of auðsveipur — eða „á annarri bylgju-
lengd“, eins og það hefur verið kallað, er það nægilegt til
að flæma þig eða mig frá atvinnu og bjargráðum og
stimpla óverðugan alls „trausts og viðurkennmgar“ þjóð-
félagsins. Hafi annar verið viðurkenndur samvizkusamur
embættismaður, skal sú viðurkenning af honum tekin.
Sé hinn viðurlcennt þjóðskáld, skal hann ekki vera það
lengur. Hafi hann ort kvæði á horð við Hulduljóð, skal
það vera eftir ókunnan höfund. Við könnumst við fyrir-
myndina. Að vísu er látið i veðri vaka, að hér sé aðeins
átt við kommúnista — og ef til vill nazista — sem nú er
111 jög mikið samkomulag um, að liafi sérstaklega hættu-
legar skoðanir, a. m. k. hinir fyrrnefndu — en að því
ógleymdu, að jafnvel kommúnistar eru líka menn og
borgarar þessa þjóðfélags, hver er öruggur um, að ekki
verði þá og þegar, ef til vill eftir viðeigandi snuður og
njósnir ef ekki ljúgvitni, „vitanlegt" um hann, ef á liggur
að ýta við honum, að hann sé kommúnisti? Ég ætla, að
ekki sé lengra síðan en í vetur, að sjálfur höfundur og
hv. aðalflutningsmaður þessarar tillögu gaf það vel í
skyn bæði í ræðu og riti, að ekki aðeins ég og hv. 9.
landkjörinn þingmaður (Árni Jónsson), bersyndugir menn,
værum ■ ef ekki kommúnistar þá ■—- þeim mjög nærri
standandi, heldur mjög margir aðrir hv. þingmenn til
þess mun óliklegri og þeirra á meðal hv. 4. þingmaður
Revkvíkinga, Pétur Halldórsson horgarstjóri, að ég ekki
minnist á prófessor Sigurð Nordal og „skáldin sjö“. Og
fyrir hvað? Fvrir það að við dirfðumst að treysta Al-
þingi og þar á meðal sjálfum okkur ekki miður til að út-
hluta styrkjum til skálda og listamanna en sjálfum hon-
um! Þá mætti hv. aðalflutningsmaður vera minnugur þess,
að árum ef ekki áratugum saman hefur liann sjálfur þvi
nær daglega verið litlaður kommúnisti. Það hefur verið
„vitanlegt* um hann, eins og hann orðar það í tillögunni.